Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fyrrverandi utanríkisráðherra rífst við tyrkneska fótboltaaðdáendur: „Hræddir við Íslendinga?“

Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, fer mik­inn í umræðum við tyrk­neska fót­bolta­að­dá­endur á Facebook færslu KSÍ í gær­kvöldi. „Ansi eru menn orð­ljótir á KSÍ vefnum í kvöld….Hræddir við Íslend­inga?” skrif­aði Össur og hófust þar með hat­rammar sam­ræður milli hans og stuðn­ings­manna Tyrk­lands.

Fyrrverandi utanríkisráðherra rífst við tyrkneska fótboltaaðdáendur: „Hræddir við Íslendinga?“
Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra.

„Haltu kjafti kerl­ing” skrif­aði þá stuðn­ings­maður tyrkja. Össur svar­aði mann­inum og vitn­aði í Íslend­inga­sögur „Grettir, sem var sterkasti maður Íslands, hefndi dauða bróður síns fyrir framan Hagia Sophia,” skrif­aði Össur og bætti við; „Í stað­inn munum við taka á móti ykkur með ást og kær­leik. Við munum samt rústa ykkur á vell­inum.” Grettir sterki Ásmund­ar­son er aðal­per­sóna Grett­is­sögu sem er hluti af Íslend­inga­sögum.

Hagia Sophia er ein merkasta bygg­ing Istanbúl. Hún var byggð árið 537 af róm­verjum sem grísk rét­trún­að­ar­kirkja. Á þeim tíma var hún stærsta bygg­ing heims og verk­fræði­legt undur síns tíma vegna stærð hvelf­ing­ar­innar. Þá er hún talin marka upp­hafið að Býzönskum arki­tektúr. Á tímum Ottóman veldis varð hún að Mosku. Í dag er bygg­ingin safn þar sem enn má sjá kaþ­ólsk ummerki í bland við íslömsk.

Styrkur íslendinga arfleifð Væringja

Össur hélt áfram að svara þegar athuga­semdir reiðra stuðn­ings­manna dundu yfir hann: „Ég veðja að Ísland muni vinna með tveimur mörkum….Tyrkland á ekki séns á móti sönnum afkom­endum Væringja.” Lík­leg­ast á hann við nor­ræna vík­inga sem voru kall­aðir Vær­ingjar. Þeir voru á mála hjá keis­ar­anum í Mikla­garði í kringum árið 1000. Nafnið hefur þá einnig verið notað yfir unga íslend­inga sem fóru fluttu út í byrjun 20. Aldar. Þeir fóru að leita sér að fjár og frama meðal stór­þjóða heims.

„Við ótt­umst ykkur að sjálf­sögðu….En ótti er nátt­úru­leg leið oln­boga­barns­ins til að finna leið að far­sælum sigri. Hversu oft hefur litla Ísland unnið Tyrkland? Hversu oft England (1066 og 2016). Hroki er þekktasta leiðin að tapi. Hafið þið gleymt Davíð og Golíat?” Össur vitnar hér í sögu þar sem Davíð sigr­aði ris­ann Golíat. Sagan kemur bæði fram í Bibl­í­unni og Kór­an­inum, sem er opin­bert rit Íslams­trúar. Opinber trú Tyrk­lands er Íslams­trú en 98% þjóð­ar­innar eru skráðir múslimar. Margir hverjir sjálf­krafa líkt og skrán­ing nýfæddra ein­stak­linga í þjóð­kirkj­una fer fram hér á landi.

„Mustafa Kemal hugsaði eins og íslendingur!”

„Ég er aðdá­andi Mustafa Kemal og hef lesið dag­bækur hans. Hann hugs­aði eins og íslend­ingur!” skrif­aði Össur sem svar við einni athuga­semd­inni. Mustafa Kemal Atatürk var fyrsti for­seti Tyrk­lands. Hann fór fyrir frið­samri bylt­ingu í kjöl­far fyrri heim­styrj­aldar þar sem soldána­veldið var leyst upp og Tyrkland varð að lýð­ræð­is­ríki. Hann lagði mikla áherslu á vest­ræn gildi, inn­leiddi meðal ann­ars lat­neskt staf­róf í tyrk­nesku og bann­aði fjöl­kvæni.

Össur sat á Alþingi á árunum 1991-2016, fyrir Alþýðu­flokk­inn 1991-1999 og Sam­fylk­ing­una frá árinu 1999. Hann var þing­flokks­for­maður Alþýðu­flokks­ins 1991-1993 og þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar 2006-2007. Þá var hann umhverf­is­ráð­herra á árunum 1993-1995, iðn­að­ar­ráð­herra 2007-2009 og utan­rík­is­ráð­herra 2009-2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð