Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Oft sváfum við bara á garðbekkjum eða undir runna“

Þor­steinn Ein­ars­son, tón­list­ar­maður í hljóm­sveit­inni Hjálmum, hefur löngum forð­ast sviðs­ljósið. Hann er rólyndur sveita­strákur í grunn­inn sem hefur glímt við þung­lyndi og kvíða frá æsku, lét neysl­una ná tökum á sér um tíma en er laus frá slíku og ein­beitir sér nú að börn­unum sínum, tón­list­inni og því að hafa jákvæðar og kær­leiks­ríkar til­finn­ingar í for­grunni.

„Oft sváfum við bara á garðbekkjum eða undir runna“

„Ég var svona þrettán ára þegar ég fann að þetta var það sem ég vildi gera. Að tón­listin þyrfti alltaf að vera órjúf­an­legur hluti af mínu lífi og ég hef haft hana að atvinnu frá því 2003 eða þar um bil,“ segir Þor­steinn Ein­ars­son, tón­list­ar­maður, oft kenndur við hljóm­sveit­ina Hjálma sem nýverið sendi frá sér hljóm­plöt­una Allt er eitt og hefur hlotið fínar við­tökur.

Þrátt fyrir að hafa átt far­sælan feril innan dæg­ur­lagatón­listar í þetta langan tíma hefur Þor­steinn aldrei sóst eftir frægð­inni sem oftar en ekki er hennar fylgi­fiskur. Þvert á móti hefur hann frekar kosið að forð­ast sviðs­ljós fjöl­miðl­ana og eiga sitt einka­líf þar sem þó hafa skipst á skin og skúrir eins og gengur.

„Ég er alinn upp í Hall­ormas­stað­ar­skógi og þessi nálægð við nátt­úr­una hefur eflaust átt sinn þátt í að móta hvaða mann ég hef að geyma,“ segir Þor­steinn og það kemur eilítið blik í augun þegar hann hugsar til æsku­slóð­anna. „Þegar ég var sextán ára flutti ég til Reykja­víkur með mömmu eftir að for­eldrar mínir skildu árið 1994. Ég á þrjú alsystk­ini en þau eru öll umtals­vert eldri, það er bara eitt og aftur eitt ár á milli þeirra þriggja en svo kom ég tólf árum seinna. Pabbi gift­ist aftur og það er nán­ast jafn­langt á milli mín og þeirra í hina átt­ina, þannig að ég ólst upp svona dálítið eins og ein­birni. Var einn þarna mitt á milli sem var óneit­an­lega dálítið sér­stakt.“

Þor­steinn segir að þrátt fyrir ald­urs­mun­inn sé hann í góðu sam­bandi við systk­ini sín og að á meðal þeirra yngri sé tón­list­ar­mað­ur­inn Ásgeir Trausti sem hann hafi unnið mikið með í seinni tíð. „Ég var líka oft fyrir austan, einkum á sumrin enda alltaf gott að koma af mal­bik­inu í faðm nátt­úr­unnar, auk þess lít ég alltaf á að ég sé þaðan því þessi fyrstu ár eru svo mót­andi.“

Datt inn í heim neyslunnar

Það var fyrir austan sem Þor­steinn heill­að­ist af tón­list­inni og hann segir að eftir það hafi ekki komið annað til greina. „Ég fór í gít­ar­nám ekki síst vegna þess að tón­listin veitti mér svo góða líðan. Mér leið alltaf best þegar ég var að spila og ég fann sterk­lega að þetta vildi ég gera. Það merki­lega er að þessi sterka til­finn­ing hefur aldrei farið. Það lifnar alltaf yfir mér þegar ég er að fást við tón­list og ég á ekki von á því að það breyt­ist.“

Þegar Þor­steinn flutti til Reykja­víkur þá var hann á þeim aldri að hefja nám í mennta­skóla en hann segir að slíkt hafi ekki átt fyrir sér að liggja. „Ég reyndi að fara í menntó en það gekk ekki. Var í sama tíma í FÍH og það gekk aðeins skárr en svo var dáldið mikið djamm og rugl á mér á þessum tíma. Ég datt aðeins inn í heim neysl­unnar, var að drekka og jafn­vel dópa og það stundum efni á borð við spítt en var þó ekki í dag­neyslu. En þetta rugl tekur allt frá manni og ég held að ég hafi gert mér grein fyrir því að ein­hverju leyti.

Þannig að þegar ég var átján ára þá flutti ég til Sví­þjóðar til þess að fara þar í skóla. Þetta var svona tón­list­ar­mennta­skóli, mjög fram­sæk­inn og spenn­andi, eitt­hvað sem var langt frá öllu sem var til hérna heima á þessum tíma. Eitthvað sem var hugsað fyrir krakka sem passa ekki endi­lega í kass­ana sem kerfið hefur að bjóða.“

Aðspurður hvort að neyslan hafi komið til baka með vel­gegn­inni í tón­list­inni þá tekur Þor­steinn ekki fyrir það. „Ég fór svona aðeins að fá mér aftur en það var fyrst og fremst þegar við vorum að spila. Þetta var aðal­lega vín og gras og ég hafði það fyrir reglu að þetta kæmi aldrei inn á heim­ilið.“

Þor­steinn segir að æsku­vinur hans Kristinn Snær Agn­ars­son trommu­leik­ari hafi flust til Svíð­þjóðar ásamt móður sinni og að það hafi komið sér vel. „Ég eig­in­lega elti þau og fékk að búa hjá þeim fyrst um sinn þangað til ég var kom­inn með íbúð. Fyrsti bær­inn sem ég bjó í var Gävle, sem mér var sagt að hefði áður kall­ast Gevalia og geymir einmitt sam­nefnda kaffi­verk­smiðju. Ég bjó meira að segja í nágrenni við Gevalia-kaffi­brennsl­una á þessum tíma og þar var kaffi­brennslu­lyktin við­var­andi alla daga, alltaf. Það hafði sinn sjarma og vand­ist eins og annað.

Þarna fór ég að leigja stúd­enta­í­búðir með bekkj­ar­fé­lögum og kynn­ist fljót­lega vinum mínum sem áttu svo eftir að starfa með okkur hérna heima í tón­list­inni seinni meir. Frábæru fólki sem ég er í sam­bandi við enn í dag.“

Rekinn úr skólanum

Þor­steinn segir að auk þess að sækja skól­ann hafi hann ásamt vinum sínum líka verið að spila á minni stöðum bæj­ar­ins og að það hafi verið góð reynsla. „Þetta var hálf­út­ópísk reynsla fyrir mig að vera í þessum skóla því þarna var sér­hæfð jazztónlistarbraut sem var með frá­bæra kenn­ara og allt til alls. Ég ætl­aði mér að verða jazzgítarleikari og lærði margt þarna.“

Eftir að hafa verið kom­inn í neyslu og vesen með sjálfan sig hérna heima fannst Þor­steini gott að koma til Sví­þjóðar og ein­beita sér að tón­list­inni. Hann segir að fyrst um sinn hafi gengið vel að halda sig frá öllu slíku þarna úti. „Lengi vel þá gekk það ljóm­andi vel en svo rataði ég inn í neyslu aftur og tók hana þá með tals­verðum trukki illu heilli. Mér meira að segja tókst að láta reka mig úr skól­anum stuttu áður en ég lauk námi. Það var ein­fald­lega vegna neyslu og fylgi­fiska hennar sem kom mér í þá stöðu. Ég mætti illa og svo þegar ég mætti þá var ég kannski ein­fald­lega ekki í lagi. Ég mundi svo sann­ar­lega gera þetta öðru­vísi ef ég fengi að gera þetta núna,“ segir Þor­steinn og hlær við til­hugs­un­ina.

„Um sum­arið, eftir að mér tókst að láta reka mig úr skól­anum, fór ég með góðum vini mínum að ferð­ast um Evrópu og spila á göt­unni.“

Hann bætir við að í kjöl­farið hafi komið afskap­lega ævin­týra­legur tími í hans lífi. „Um sum­arið, eftir að mér tókst að láta reka mig úr skól­anum, fór ég með góðum vini mínum að ferð­ast um Evrópu og spila á göt­unni. Fórum tveir að „böska“ eins og að er kallað. Þessi vinur minn er því miður fall­inn frá en hann hét Andreas og var alltaf kall­aður Gúrkan. Það fest­ist við hann vegna þess að hann var dálítið sér­stakur í útliti, var langur og mjór með hárið allt rakað að und­an­skyldu dread-lokkum sem spruttu upp úr miðju höfð­inu og minntu á sprota á agúrku. Þessi strákur var alveg ein­stakur. Hann var gríð­ar­lega hæfi­leik­a­ríkur tón­list­ar­maður; gít­ar­snill­ingur, laga­smiður og söngv­ari, það lék allt í hönd­unum á honum. Að auki þá var hann líka ein­stak­lega gef­andi og ynd­is­leg mann­eskja. Svona gaur sem var alltaf gott að hafa við hlið sér, ég sakna hans mikið.“

Svaf á garðbekkjum

Þor­steinn segir að þeir félagar hafi um þetta sumar ferð­ast um Evrópu þvera og endi­langa og lent í allskyns ævin­týrum. „Við vorum mis­vel efn­aðir á þessu ferða­lagi þannig að oft sváfum við bara á garð­bekkjum eða undir runna og venju­lega var það allt í lagi. Við vorum að stefna suður eftir álf­unni og ætl­uðum okkur að halda áfram alla leið til Afríku. Vorum komnir til Gíbraltar og frekar svona þreyttir og slæpptir og gerðum þau mis­tök að leggja okkur aðeins á strönd­inni. Það var glamp­andi sól og hiti og við ætl­uðum bara rétt aðeins að pústa en sofn­uðum.

Þegar við vökn­uðum vorum við komnir með alveg heift­ar­legan sól­sting sem getur verið mjög hættu­legt. Ég slapp samt betur, brann þó nokkuð illa og var aðeins ringlaður en Andreas varð alveg fár­veikur svo ekki sé meira sagt. Þannig að það var ekk­ert annað í stöð­unni en að reyna að koma okkur til baka. Við hefðum kannski átt að koma okkur á næsta sjúkra­hús en gerðum það samt ekki heldur tókum stefn­una á London. Þar átti ég vini og treysti á að þeir gætu svona eitt­hvað hjálpað okkur. Við vorum þó ekki komnir nema til Barcelona þegar við vorum rændir og þá fóru málin að flækj­ast. Okkur tókst þó að kom­ast til Parísar og þar fékk ég útgefið bráða­birgða­vega­bréf og þaðan gátum við loks komið okkur til London en Andreas meira og minna veikur allan tím­ann. Þegar við komum til London gekk líka seint og illa að finna vini mína því þetta var fyrir daga Inter­nets­ins en það hafð­ist þó að end­ingu með því að leita á réttu stöð­unum.“

Þor­steinn segir að þeir hafi fengið hjálp frá vinum hans í London en hann hafi þó fljót­lega ákveðið að fara heim til Íslands. „Andreas varð eftir hjá þeim, fékk sér vinnu í London og var þar í svo­lít­inn tíma. Talsvert seinna hafði hann svo sam­band við mig til þess að athuga hvort að ég vildi ekki koma með sér til Afríku til þess að klára ferð­ina. Á þeim tíma var ég kom­inn með vinnu á leik­skól­anum Sælukoti sem er rek­inn af Ananda Marga, lík­lega var þetta 2003, og kunni vel við mig þannig að ég ákvað að sleppa ferð­inni. En Andreas fór til Afríku, ferð­að­ist þar um nokkuð langan tíma þar til hann skyndi­lega veikt­ist og lést. Hann var ekki nema 28 ára og lík­lega fékk hann ein­hverja baktar­íu­sýk­ingu sem hafði þessar ömur­legu afleið­ingar.“

Ætlaði að verða munkur

Þor­steinn segir að þegar hann hafi verið rek­inn úr skól­anum hafi orðið ákveðin vit­unad­ar­vakn­ing hjá honum gagn­vart neysl­unni. „Við vorum ekki í neyslu þegar við vorum að „böska“ um Evrópu, fengum okkur kannski bjór en það var ekk­ert meira en það. Eftir að ég kom heim þá tók ég svo upp hrein­lifnað og það hent­aði mér því vel að vinna á Sælukoti. Það fylgir því ákveðin menn­ing að vinna þar, þarna er græn­met­is­fæði og hug­leiðsla höfð í önd­vegi og ég var alvar­lega að íhuga að ger­ast munkur innan þess­arar hreyf­ingar. Var búinn að vera að spila með ein­hverjum böndum úti í Svíþjóð og fannst ég vera búinn að vera að harka lengi án árang­urs þannig að það væri best að fara bara í munk­inn.

En á sama tíma þá var ég búinn að kynn­ast gaurum í Keflavík í gegnum vin minn Kristin Snæ, sem ég sé núna að hefur reynst örlaga­valdur í mínu lífi, sá hinn sami og ég flutti með til Sví­þjóðar. Það má í raun segja að það hafi verið Kristni Snæ að þakka að Hjálmar urðu til vegna þess að þetta voru strákar sem hann svona dró saman til þess að fara að leika sér í tón­list. Við fórum að spila saman og allt í einu vorum við bara byrj­aðir að taka upp plötu. Það var fyrsta plata Hjálma, hún kom út 2004 og gekk nægi­lega vel til þess að við höfðum heil­mikið að gera við að spila. Okkur fannst auð­vitað að við værum búnir að sigra heim­inn,“ segir Þor­steinn og brosir út í annað.

„Þarna var tón­listin aftur orðin að leið­andi afli í mínu lífi og hefur verið það alla daga síðan. Á þessum tíma kynnt­ist ég líka Sigríði Eyþórs­dóttur og við fórum að eign­ast börn og þar með var munka­hug­myndin end­an­lega út úr mynd­inni,“ segir Þor­steinn hlæj­andi og bætir við að lífið hafi ein­fald­lega tekið hann í hina átt­ina. „Ég kynnt­ist Sigríði í árs­lok 2004 og við fórum að vera saman í upp­hafi næsta árs. Við eign­uð­umst tvö ynd­is­leg börn og það var nóg að gera í tón­list­inni og lífið bara ljóm­andi gott.“

Missti tökin

Hjálmar hafa verið starf­andi alla tíð síðan að þessir strákar kynnt­ust í Keflavík á sínum tíma og Þor­steinn segir að enn séu þrír í band­inu sem hafi verið með alveg frá byrjun. „Auk mín eru það Guð­mundur Kristinn Jónsson sem er alltaf kall­aður Kiddi og Sigurður Guð­munds­son. Valdi Kolli og Helgi Svavar eru svo reyndar búnir að vera með síðan 2007 og við þar með óbreytt band síðan þá.“

Aðspurður um hvort að neyslan hafi komið til baka með vel­gegn­inni í tón­list­inni þá tekur Þor­steinn ekki fyrir það. „Ég fór svona aðeins að fá mér aftur en það var fyrst og fremst þegar við vorum að spila. Þetta var aðal­lega vín og gras og ég hafði það fyrir reglu að þetta kæmi aldrei inn á heim­ilið. En svo er jókst þetta hægt og bít­andi með tím­anum og þá fær­ast mörkin. Þetta er eitt­hvað sem tekur lífið yfir fyrr eða síðar. Það end­aði auð­vitað með því að það var allt komið í hnút í sam­band­inu og ég verð að játa að það var að stórum hluta til vegna minnar neyslu.

„Það end­aði auð­vitað með því að það var allt komið í hnút í sam­band­inu og ég verð að játa að það var að stórum hluta til vegna minnar neyslu.“

Það end­aði með því að við skildum árið 2013 og það var erf­iður tími. Þá var ég líka bara mjög týndur. Hafði á þessum tíma byrjað að spila með Ásgeiri Trausta, bróður mínum, og fljót­lega fórum við að ferð­ast og vorum að því mjög stíft í nokkur ár. Ég átt­aði mig reyndar ekki á því hvað Ásgeir Trausti er mik­ill snill­ingur fyrr en hann kom sér sjálfur í sam­band við Kidda, vin minn, og byrj­aði að taka upp. Hann er ótrú­lega hæfi­leik­a­ríkur og það er gaman að hann skyldi svona koma inn í mitt vina­mengi.

En á þessum tíma þegar ég fór að túra með Ásgeiri Trausta þá missti ég hrein­lega alveg tökin og það end­aði með því að öll mörk voru orðin útmáð og ógreini­leg. Þá gat verið erfitt að halda sér hreinum þegar maður kom heim. En sem betur fer þá end­aði það með því að ég átt­aði mig á því að ég var búinn að missa stjórn­ina á þessu og ákvað að gera eitt­hvað í mál­inu. Fór í með­ferð hjá SÁÁ 2016 og hef verið laus við þetta síðan.“

Þor­steinn segir að á þeim tíma sem hann var að túra með Ásgeiri Trausta og enn í neyslu hafi honum þó tek­ist að halda ágætu sam­bandi við börnin. „Ég var alltaf með þau þegar ég var heima og var í sam­bandi við þau, þó svo ég hafi ekki verið neinn fyr­ir­mynd­ar­faðir. Alls ekki, en það hefði getað farið verr. Auðvitað sé ég eftir þessum tíma og hefði viljað gera hlut­ina þannig að það hefði verið best fyrir alla. En á sama tíma þá veit ég að það er ekki til neins að sjá eftir hlut­unum en það má þó læra af þeim. Annað getur bara skemmt fyrir manni núlíð­andi stund og fram­tíð­ina.“

Bara on- og off-takki

Þor­steinn tekur og heldur áfram. „Þung­lyndi hefur fylgt mér allt frá ung­lings­ár­unum. Vonleysi og aðgerð­ar­leysi þar sem mig langar ekki á fætur og þessu fylgir líka kvíði þar sem allt verður erfitt og mikið mál. Bara það að fara út í búð getur verið skelfi­leg til­hugsun. Þetta er eitt­hvað sem ég er að læra á alla daga og það gengur alltaf betur og betur. Þetta er eitt­hvað sem byrj­aði að láta á sér kræla snemma, löngu áður en ég byrj­aði að fikta við ein­hverja neyslu til að mynda. Þannig að það er í sjálfu sér ekki hægt að rekja þetta til þess en auð­vitað hjálpar neyslan aldrei, heldur þvert á móti.

„Þung­lyndi hefur fylgt mér allt frá ung­lings­ár­unum. Vonleysi og aðgerð­ar­leysi þar sem mig langar ekki á fætur og þessu fylgir líka kvíði … Bara það að fara út í búð getur verið skelfi­leg til­hugsun.“

En mér finnst vera grund­vall­ar­at­riði að góð and­leg iðkun, hug­leiðsla og annað slíkt, hjálpar alveg gríð­ar­lega. Að ná teng­ingu við ein­hverjar jákvæðar og kær­leiks­ríkar til­finn­ingar. Reyna að velja þær til­finn­ingar og hafa þær í for­grunni.

Þor­steinn segir að fyrir honum sé mik­il­vægt að njóta stund­ar­innar og nefnir sem dæmi að það sé honum mik­il­vægt að njóta þess núna að Hjálmar hafi verið að koma með sína fyrstu eig­in­legu breið­skífu, undir titl­inum Allt er eitt, síðan 2011.

Hvað lífs­stíl­inn varðar þá er ég í hið minnsta búinn að átta mig á því að ég hef ekki áhuga á því að fara í nokk­urs konar neyslu, að taka ein­hver hug­breyt­andi efni eða eitt­hvað slíkt. Þar hef ég ekki stjórn­ina og ég læt hana ekki af hendi. Það eru nefni­lega bara tvær still­ingar þegar kemur að neysl­unni hjá mér: Það er on og off. Það eru engar fín­is­er­ingar, eng­inn tóntakki. Þannig að mér líður best að hafa þetta bara off og stefni að því að hafa þetta þannig.

Það hefur klár­lega hjálpað mér gagn­vart þung­lynd­inu og alveg sér­stak­lega mikið gagn­vart kvíð­anum. Ég er miklu betur í stakk búinn til þess að takast á við hlut­ina. Maður er nógu rugl­aður fyrir til þess að maður sé ekki að auka á það,“ segir Þor­steinn og hlær.

Hann segir að fyrir sér sé mik­il­vægt að njóta stund­ar­innar og nefnir sem dæmi að það sé sér mik­il­vægt að njóta þess núna að Hjálmar hafi verið að koma með sína fyrstu eig­in­legu breið­skífu, undir titl­inum Allt er eitt, síðan 2011. „Á þessum árum höfum við verið að taka upp eitt lag í einu og senda frá okkur lög sem hafa komið á Spotify. Þannig að þessi plata sam­anstendur af nokkrum slíkum ásamt nýlega upp­teknu efni. Við erum mjög ánægðir með plöt­una og finnst að lögin njóti góðs af því að við höfum gefið okkur tíma í að vinna þau alla leið. Þarna er ekk­ert lag til upp­fyll­ingar heldur aðeins lög sem við höfum gefið okkur tíma til að klára. Það er góð til­finn­ing sem er gaman að upp­lifa.“

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ