Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Æfir minna með betri árangri

Sigurjón Ernir Sturlu­son, íþrótta­fræð­ingur, þjálf­ari og mark­aðs- og kynn­ing­ar­full­trúi í Sport­vörum, er einn af okkar allra sterk­ustu hlaup­urum. Hann tekur þátt í heims­meist­ara­mót­inu í utan­vega­hlaupum sem fram fer í Portúgal þann 8. júní næst­kom­andi ásamt átta öðrum íslenskum ofur­h­laup­urum.

Æfir minna með betri árangri
Sigurjón Ernir

Heims­meist­ara­mótið þetta árið er 44 kíló­metra langt með 2.400 metra hækkun. „Það er því óhætt að segja að þetta sé hörku­á­skorun þó að þetta kall­ist stutt hlaup í ár. En þess má til gam­ans geta að heims­meist­ara­mótið í fyrra var 88 kíló­metrar með 5.000 metra hækkun,“ segir Sigurjón en ásamt honum eru í lið­inu þau Þor­bergur Ingi Jónsson, Örvar Stein­gríms­son, Ingvar Hjart­ar­son, Elísabet Mar­geirs­dóttir, Rannveig Odds­dóttir, Anna Berglind Pálma­dóttir, Þórdís Jóna Hrafn­kels­dóttir og Melkorka Árný Kvaran. Liðs­stjóri hóps­ins er ofur­hlaupar­inn Frið­leifur Frið­leifs­son.

Sigurjón hefur lengi haft áhuga á hreyf­ingu og matar­æði og finnst frá­bært að geta hjálpað öðrum á því sviði en hann er fjar­þjálf­ari, einka­þjálf­ari og Boot Camp-þjálf­ari. Hann er einnig öfl­ugur snapp­ari og sendir út beint frá nán­ast öllum sínum keppn­is­hlaupum í gegnum Snapchat undir not­anda­nafn­inu sig­ur­jon1352.

Sigurjón ásamt Katrínu Sigrúnu Tóm­as­dóttur en þau tóku bæði þátt í sól­ar­hringslangri Spartan-keppni í Hvera­gerði í des­em­ber 2018.

„Mitt mesta afrek til þessa er án efa sól­ar­hringslöng Spartan-keppni sem ég tók þátt í hér í Hvera­gerði í des­em­ber 2018, en þá hljóp ég 115 kíló­metra með 250 hindr­unum og 5.559 metra hækkun,“ segir Sigurjón en þess má geta að þarna var senni­lega um að ræða erf­ið­ustu keppni sem haldin hefur verið hér á landi. „Í keppn­inni var hlaup­inn rúm­lega 10 kíló­metra hringur með 25 hindr­unum og þú áttir að hlaupa eins marga hringi og þú treystir þér til á 24 klukku­stundum. Mín síð­asta stóra áskorun var 74 kíló­metra fjalla­hlaup á La Palma, Spáni, með 4.400 metra hækkun núna 11. maí.“

Sigurjón Ernir tók þátt í 74 kíló­metra fjalla­hlaupi á La Palma í byrjun maí.

Þrátt fyrir að keppa í löngum og krefj­andi hlaupum hleypur Sigurjón að með­al­tali ekki meira en 20-40 kíló­metra á viku. „Mín nálgun á hlaup og æfingar hefur alltaf verið sú að horfa á gæði fram yfir magn og með því að draga úr magni æfinga hefur mér tek­ist að halda mér frá álagstengdum meiðslum alveg frá því ég byrj­aði að hlaupa. Einnig þykir mörgum sem þekkja mig lítið eflaust ansi sturlað að ég sé græn­metisæta og fasta ávallt hluta úr degi en æfi samt þetta mikið og keppi mjög reglu­lega í krefj­andi keppnum.“

„Mín nálgun á hlaup og æfingar hefur alltaf verið sú að horfa á gæði fram yfir magn og með því að draga úr magni æfinga hefur mér tek­ist að halda mér frá álagstengdum meiðslum alveg frá því ég byrj­aði að hlaupa.“
Sigurjón er með góða æfinga­að­stöðu í bíl­skúrnum heima hjá sér.

Sigurjón í hnotskurn

Hvar líður þér best? „Mér hefur alltaf liðið vel í nátt­úr­unni og líður afar vel uppi á fjöllum og þá oftar en ekki í krefj­andi fjalla­hlaupi. Ég á þó til að halda ró minni milli keppna og líður þá vel í faðmi fjöl­skyldu.“

Bakstur eða elda­mennska? „Er ekki bara bæði betra? En ég verð að segja elda­mennska þar sem ég hef lít­inn tíma í bakstur þessa dag­ana. Þar sem við verðum öll að borða þá kemst ég ekki upp með að sleppa því alveg að elda.“

Helsti keppi­nautur á hlaupum? „Hér áður fyrr var það senni­lega Þórólfur Ingi en í dag fer hann létt með að sigra mig í götu­hlaup­unum og því eru það senni­lega Ingvar Hjart­ar­son, Örvar Stein­gríms­son og Guðni Páll Pálsson sem ég keppi mest við í fjall­inu.“

Hver var fyrsta vinnan þín? „Fyrsta laun­aða vinnan mín var ung­linga­vinna í mínu sveit­ar­fé­lagi þegar ég bjó í Hval­fjarð­ar­sveit­inni. En þar sem ég var alin upp í sveit var ég far­inn að sinna ýmsum störfum tengdum sveit­inni um leið og ég hafði þroska og getu til að sinna slíkum störfum.“

Hvað er það leið­in­leg­asta sem þú gerir? „Án efa að sitja fastur í mik­illi umferð til lengri tíma.“

Hvaða stað á Íslandi langar þig að heim­sækja? „Góð spurn­ing, ég hef nú ferð­ast tals­vert hér á landi og komið víða við. En ef ég ætti að velja mér stað til að koma aftur á væri það senni­lega Þórsmörk.“

Á hvaða þætti horfir þú? „Ég er nýbú­inn að klára Lucifer og hef nú ekki dottið inn í neina þætti eftir þá, ein­hverjar upp­á­stungur?“

Hvaða sögu­frægu mann­eskju myndir þú vilja hitta? „Ég væri til í að hitta David Goggins, en hann hefur tvisvar farið í gegnum Hell Weekend í Navy Seals-æfinga­búðum og er í dag mik­ill ultra-hlaup­ari. Án efa harð­asta mann­eskja sem þú finnur og ég mæli með að hlusta á „podcast“ með honum og Joe Rogan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð