Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Umferðin eins biluð og hægt er að ímynda sér“

Ingvar Rúnar Jóhann­es­son, vél­fræð­ingur hjá Kölku, tók þátt í ævin­týra­legri keppni á Indlandi á dög­unum ásamt vinum sínum Elmari Gunn­ars­syni og Hróðmari Jónssyni. Hann segir að heima­menn hafi tekið þeim vel og verið hjálp­samir en að sama skapi hlegið mikið að þeim.

„Umferðin eins biluð og hægt er að ímynda sér“
Vinirnir Ingvar Rúnar Jóhann­es­son
Ingvar, til hægri, á toppnum og Hrói, til vinstri, hang­andi á Tuk Tuk-inum.

„Það var nú bara þannig að Hrói sá aug­lýs­ingu um keppn­ina á Instagram og átt­aði sig strax á að þarna væri á ferð­inni eitt­hvað nógu skemmti­legt, heimsku­legt og öðru­vísi til að plata mig og Ella með sér,“ svarar Ingvar hlæj­andi þegar hann er spurður út í til­urð þess að vin­irnir þrír tóku þátt í Rickshaw Run India sem haldin er í Indlandi þar sem ekið er á svoköll­uðum Tuk Tuk (Auto Rickshaw), 2500 kíló­metra leið.

„Ferða­lagið hófst í Jaisal­mer sem er rétt hjá landa­mærum Pakistan og svo keyrðum við niður allt Indland til Kochi. Við villt­umst hell­ing á leið­inni og fórum út úr leið þannig að við höldum að við höfum keyrt tæpa 3500 kíló­metra í heild­ina.“

Þeir reyndu að aka um það bil 200-300 kíló­metra á dag en það gat tekið allt upp í tíu klukku­stundir þegar veg­irnir voru verstir og yfir fjall­vegi að fara. „Tuk Tuk-inum fannst hit­inn og hæð­irnar ekk­ert sér­stak­lega spenn­andi svo oft þurftu tveir að fara úr bílnum og hlaupa á eftir honum til að hann kæm­ist upp. Ferðin gekk betur en við áttum von á og við komumst í gegnum allar bil­anir sjálfir eða með hjálp vina­legra Indverja.“

„Tökum líf­inu ekki svo alvar­lega að við gleymum að hafa gaman.“

Hann segir að far­ar­tækið þeirra hafi verið 2003 módel með 150 cc tví­gengis mótor, fjög­urra gíra bein­skipt­ingu og að hann minnir sjö hest­öfl með enda­hraða upp á 60 kíló­metra á klukku­stund, niður brekku. „Við köll­uðum hann bara Nikka enda mynd­skreyttur með Nicolas Cage, besta leik­ara í heimi. Við vorum sem sagt allir þrír á sama far­ar­tæk­inu enda nauð­syn­legt að geta skipst á að keyra, bæði vegna þess að þetta voru langar vega­lengdir og að umferðin var auð­vitað eins biluð og hægt er að ímynda sér. Auk þess er miklu skemmti­legra og óþægi­legra að vera fleiri en færri,“ segir Ingvar.

Mælir ekki með að keyra í myrki

Hrói, til vinstri, og Elmar, til hægri, að fylla á tank­inn ein­hvers staðar úti á vegi.

„Það eru engin verð­laun fyrir sæti og keppnin er fyrst og fremst haldin til að gera lífið skemmti­legra (e. make life less bor­ing) sem er aðals­merki Adventurist sem halda keppn­ina,“ heldur Ingvar áfram. „Auk þess er þetta til að vekja athygli á hjálp­ar­sam­tök­unum Coolearth og safna pen­ingum fyrir þau. Við ákváðum strax að koma ekki í mark fyrr en rétt áður en tíma­tak­mörk runnu út til að skoða og upp­lifa eins mikið og við gátum af Indlandi. Við vorum bara þrír og algjör­lega upp á eigin spýtur. Ef eitt­hvað bil­aði eða við lentum í ein­hvers konar ves­eni þá þurftum við ann­að­hvort að redda því sjálfir eða fá heima­menn með okkur í lið, sem að var aldrei neitt vanda­mál.“

Svona far­ar­tæki eru sjald­séð á Íslandi og því æfðu þeir sig ekki sér­stak­lega fyrir ferð­ina. „Ég er með nokkra reynslu af mót­or­hjólum sem kom sér vel og Elli og Hrói eru fæddir „mót­or­hjól­istar“ og því eldsnöggir að mastera Nikka.“

Það kom þeim félögum á óvart hve heima­menn voru vina­legir og alltaf til­búnir að hjálpa. „Ef eitt­hvað bil­aði hjá okkur þá voru strax komnir tíu „bif­véla­virkjar“ í kringum okkur sem vildu hjálpa sem gat stundum orðið aðeins of mikið en allir meintu vel. Okkur var langoft­ast vel tekið og mikið hlegið að okkur þar sem heima­menn eru ekki vanir að sjá túrista á slíkum far­ar­tækjum. Svo fannst þeim enn fyndn­ara þegar við sögðum þeim hvaðan við vorum að koma og hvert við værum að fara. Og varð­andi umferð­ina þá bara mæli ég alls ekki með því að keyra í myrkri í Indlandi því þeim finnst ekk­ert athuga­vert við að keyra á móti umferð ef þeir eru að fara stutta vega­lengd.“

Lægst í „fæðukeðju“ þjóðveganna

Ingvar segir að þessi reynsla hafi verið ómet­an­leg og ótrú­leg á sama tíma. „Að sjá allar þessar öfgar í Indlandi, hvort sem það er fátæktin og auð­æfin eða ruslið og svo feg­urðin, þetta er ótrú­legt land og hvet ég alla til að fara þangað því þarna er menn­ing sem þú getur ekki upp­lifað ann­ars staðar og mat­ur­inn er auð­vitað heimsklassa. Ég mæli að sjálf­sögðu með því að ferð­ast á Tuk Tuk því þannig fáið þið að upp­lifa að vera lægst í fæðu­keðju þjóð­veg­anna, stoppið þar sem þið mynduð ann­ars ekki stoppa. Svo finnið þið alla lykt og skynjið umhverfið eins vel og mögu­legt er. Hitinn var lík­lega það erf­ið­asta við ferða­lagið en við vorum þarna á heitasta tíma­bil­inu. Þegar við stopp­uðum þá hætti vind­kæl­ingin og við fljót­lega orðnir blautir í gegn af svita. Allt ferða­lagið var frá­bært; að koma sér vel fyrir í Tuk Tuk-inum, fá vind­inn í and­litið, njóta útsýn­is­ins í bæjum og sveitum, hitta fólkið og vera stopp úti á þjóð­vegi með bilað öku­tæki. Þetta var æðis­legt og maður varð aldrei þreyttur á því.“

Kenndi þessi reynsla þér eitt­hvað? „Hún kenndi mér að taka líf­inu alls ekki of alvar­lega en einnig að muna hvað við höfum það í raun gott hérna á Vest­ur­lönd­unum og Íslandi. Hættum að taka öllu sem sjálf­sögðum hlut eins og hreinu renn­andi vatni og örygg­is­net­inu sem Íslend­ingar búa við. Tökum líf­inu ekki svo alvar­lega að við gleymum að hafa gaman,“ segir Ingvar að lokum.

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð