Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Áföll má ekki grafa í þögn

Í Íslend­inga­sög­unum end­ur­spegl­ast það við­horf að best sé að bíta á jaxl­inn og bölva í hljóði þegar sorgir og áföll dynja yfir. Hetj­urnar okkar beygðu ekki af, þeim í mesta lagi súrn­aði í augun á reyknum áður en þær létu lífið. Lengi var þetta lífs­speki Íslend­inga og erf­iðir hlutir voru helst ekki ræddir.

Áföll má ekki grafa í þögn
|||

Nú erum við farin að gera okkur grein fyrir að lítil viska er fólgin í þess­ari hug­mynda­fræði. Áföll og sorg setj­ast að í vöðvum og taugum, draga allan mátt úr fólki og valda smátt og smátt lík­am­legum sjúk­dómum. Öllu skiptir að takast strax á við atburð­inn og fá aðstoð til þess. Vinátta og hlýja fjöl­skyldu fer langt en gerir ekki allt.

Nýlega bár­ust af því fréttir að 101 barn missir árlega for­eldri sitt hér á landi. Það er mikið áfall og börn­unum finnst öryggi þeirra ógnað. Þau þurfa skyndi­lega að horfast í augu við eigin dauð­leika og ann­arra og ótt­ast oft lengi að hitt for­eldrið lát­ist líka. Fram að þessu hefur lítil hjálp verið í boði fyrir þessi börn önnur en sú sem fæst frá umhverf­inu. Sigrún Júl­í­us­dóttir pró­fessor kynnti nýlega fyrsta hluta rann­sóknar sinnar á ráð­stefnu í Norræna hús­inu á líðan barna er misst hafa móður úr krabba­meini. Hún sýnir að börnin misstu hluta af sjálfum sér við dauðs­fallið og þau yrðu oft utan­veltu og afskipt. Hinir full­orðnu í nærum­hverfi þeirra eru oft að glíma við eigin sorg og þess vegna van­hæfir til að takast á við til­finn­ing­a­rót barn­anna. Mér fannst einnig merki­legt að þarna kemur fram að fólk hikar einnig við að ræða við börnin um miss­inn og móð­ur­ina því það ótt­ast að valda þeim skaða, ýfa upp sárin. Þetta snart mig því ég þekki vel þann sárs­auka. Amma mín lést 28 ára gömul frá fjórum ungum börnum árið 1935. Upp frá því var lítið um hana talað og á full­orð­ins­aldri töl­uðu börn hennar um að þau vissu lítið um móður sína. Með þögn­inni var hún í raun tekin frá þeim tvisvar.

En missir for­eldris eða dauðs­föll í fjöl­skyldu eru ekki einu áföllin sem helst eru vafin þögn. Kyn­bundið ofbeldi hefur aldrei þótt þægi­legt umræðu­efni eða eitt­hvað sem taka eigi á opin­ber­lega. Hvenær sem slíkt kemur upp í fjöl­skyldum er leit­ast við að kveða málið niður og forð­ast að takast á við vand­ann. Þolendur ofbeldis af þessu tagi upp­lifa einnig tregðu og van­mátt rétt­ar­kerf­is­ins til að vinna úr þeirra málum. Flestir líta svo á að rétt­ar­kerf­inu sé ætlað að útdeila rétt­læti en þolendur kyn­bund­ins ofbeldis fá sjaldn­ast úrlausn. Það er annað áfall og í rann­sókn­inni Áfalla­saga kvenna er öllum íslenskum konum gef­inn kostur á að tíunda þau áföll er yfir þær hafa dunið um ævina og afleið­ingar þeirra á heils­una. Fyrstu nið­ur­stöður sýna að þær eru umtals­verðar og ætti það að vera nægi­leg hvatn­ing til að end­ur­skoða úrvinnslu þess­ara mála. Ef sam­fé­lagið bæri gæfu til að koma til móts við fólk á erf­iðum stundum væri hægt að létta mjög á heil­brigð­is­kerf­inu og skapa mun betra sam­fé­lag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ