Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

27% brottfall úr framhaldssnámi: Drengir mun líklegri til brottfalls

27% nem­enda falla úr námi fjórum árum eftir inn­ritun. Sýni­legur munur milli kynj­anna er í þeim hóp. Brott­fall stráka er 31% en stelpna tæp 23%. Árgangs­brott­hvarf í fram­halds­skólum hefur hald­ist nokkuð stöðugt á árunum 2003-2012.

27% brottfall úr framhaldssnámi: Drengir mun líklegri til brottfalls

Margrét V. Tryggva­dóttir, vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um skipt­ingu brott­falla í fram­halds­skólum. Fyr­ir­spurn Mar­grétar og svar ráð­herra má skoða hér.

„Þetta er flott og ýtar­legt svar, búið að liggja aðeins yfir þessu” segir Margrét. „Ég held það sé mjög gagn­legt að fá þessar upp­lýs­ingar, en eins og kemur fram þá er ekki sama hvernig er lesið úr þessu” segir Margrét og bætir við, „Það er margt sem spilar inn í þetta. Kannski má líka skoða mun­inn á bekkjar- og fjöl­braut­ar­kerfi, það virð­ist vera meira um brott­fall á krökkum sem fara í fjöl­brauta­skóla. Þetta eru auð­vitað bara vanga­veltur sem kvikna þegar maður skoðar svarið. Ekkert sem að maður getur full­yrt út frá þessu. Í smærri skólum getur maður séð að þetta eru það fáir nem­endur, einn nem­andi getur haft tölu­verð áhrif á töl­fræð­ina og óþarfi að lesa og mikið í það”. Skýrslan sýnir að Mennta­skól­inn í Borg­ar­firði var með 16,7% brott­fall nýnema árið 2017. Fjöldi skráðra nýnema það árið voru 36. Skólinn með lægsta hlut­fall brott­falls sama ár var Versl­un­ar­skóli Íslands, ein­ungis 0,4%. Fjöldi skráðra nýnema þar voru 278.

4,1% ungmenna utan kerfis árið 2017

„Þetta er eitt­hvað sem þarf að fylgj­ast með og það er gott að sjá að það er farin af stað grein­ing­ar­vinna hjá ráðu­neyt­inu, af því að núna erum við að stytta­fram­halds­skól­ann.Hvaða áhrif­það­mikla og aukna álag sem að margir tala um hefur í raun,” segir Margrét og bætir við, „mun það skila sér í meira brott­falli eða munu fleiri útskrif­ast á styttri tíma. Þannig að það er mjög spenn­andi að fylgj­ast með þessu áfram og mik­il­vægt að það sé gert”.

Margrét vekur áhuga á hlut­falli ung­menna sem eru ekki í kerf­inu; „Svo er líka slá­andi að sjá að það eru um 5% sem eru utan kerfis, hvorki í skóla né í vinnu. Þetta virð­ist þó vera skárra en á Norð­ur­lönd­unum“. Í skýrsl­unni kemur fram að 4,1% ung­menna á aldr­inum 18-24 ára á Íslandi eru utan kerfis. Þá er borið saman ung­menni 18-34 ára við Norð­ur­löndin þar sem Ísland er lægst með 4,9%. Svíþjóð kemur þar á eftir með 7,8%, Noregur með 9,8%, Danmörk 11,8% og Finnland hæst með 14,5%.

Stytting náms erfiðari fyrir eldri nemendur

Margrét lýsir von­brigðum gagn­vart stytt­ing­unni þar sem ekki voru gerðar ráð­staf­anir fyrir eldri nem­endur. Til eru dæmi um nem­endur, sem byrj­uðu eldra kerf­inu og flosn­uðu upp úr nám­inuen séu að koma aftur „Krakkar sem voru kannski­bún­ir­með annan kúrs af tveimur sem núna eru kenndir í einu nám­skeiði. Þau þurfa að taka það aftur. Við neyðum þau til að taka sama efnið aftur” segir Margrét og bætir við, „Ég er með eitt dæmi í mínu nærum­hverfi sem er í þessum pakka. Fyrir við­kom­andi er þetta bara leng­ing. Að taka aftur efni sem­hann­hefur áður klárað með góðum árangri. Allavega hefur fram­kvæmdin ekki verið nógu vel útfærð á því og ég tel reyndar að betra hefði verið að stytta gunn­skól­ann um eitt ár frekar en fram­halds­skól­ann. Þar er mun meira svig­rúm.”

Margir þættir sem geta valdið brottfalli

Margrét segir kynja­mun liggja í brott­föllum. „Mér finnst alveg gríð­ar­legur munur á kynjum í þessu. Það virð­ist þó vera að draga úr brott­falli, og það er gott að sjá” segir Margrét sem úti­lokar ekki að stytt­ing náms hafi þessi jákvæðu áhrif. „Kannski er það líka þessi stytt­ing og áhrifin af henni, hver sem þau kunna að vera, því það er kannski ekki alveg komið í ljós ennþá”. Atvinnu­á­standið í þjóð­fé­lag­inu virð­ist einnig vera áhrifa­valdur. „Þeir nem­endur sem til dæmis voru að byrja árið 2008, þau hafa senni­lega unnið minna með skóla og klára þetta fyrr en við vitum að fyrir hrun var mikil ásókn í skólakrakka í ýmis störf. Þetta hefur greini­lega allt saman áhrif”.

Þrenns konar gerðir brotthvarfs

Í svar­inu eru gefnar upp­lýs­ingar um þrenns konar gerðir brott­hvarfs tíu ár aftur í tím­ann, eftir því sem upp­lýs­ingar leyfa. „Þetta er mælt bæði í árganga­brott­hvarfi, það eru þeir sem eru á fjórða, sjötta og sjö­unda ári eftir fyrstu inn­ritun í fram­halds­skóla. Þeir sem eru lengi í námi, Þá hvenær þeir eru að útskrif­ast og hvort þeir eru að útskrif­ast” er haft eftir Margréti sem segir það mjög gott að fá þær tölur. „svo þetta árlega brott­fall nýnema. Mér finnst það slá­andi hvað þau eru mörg að fara bara svona á fyrsta árinu. En það eru auð­vitað krakkar sem að kannski hætta í einum skóla en fara svo eitt­hvert annað næst, þannig þau eru ekk­ert endi­lega hætt alveg í námi.” Þriðja gerð upp­lýs­inga er Snemm­bært brott­hvarf sem er ekki greint eftir fram­halds­skólum og tekur mið af ald­urs­bil­inu 18–24 ára.

Nemendahópar mismunandi

„Þetta er í nokkuð góðu sam­ræmi við það sem ég hélt, því ég hef stundum verið að skoða þetta, en með til­finn­ingu frekar en tölu­leg gögn. Það er oft svo hættu­legt að dæma eitt­hvað út frá ein­staka dæmum sem maður heyrir frá­sagnir af” segir Margrét. „Þannig að það frá­bært að fá heild­ar­yf­ir­lit. En mér finnst mjög slá­andi munur á brott­falli nýnema eftir skólum en ég er algjör­lega sam­mála þeim var­nöglum sem eru slegnir um að þetta sé ekki allt saman algjör­lega sam­bæri­legt. Nem­enda­hóp­arnir í ákveðnum skólum eru bara mjög mis­mun­andi.“

Skólar með mikla aðsókn með minna brottfall

„Sumir skólar eru þannig að þeir velja sér nem­endur af því að það sækja um fleiri en skól­inn getur tekið við. Þeir geta kannski valið sér úrvalsnem­endur. Maður sér það til dæmis Í Versl­un­ar­skól­anum, MR og Kvennó sem eru allt saman bekkj­ar­kerf­is­skólar” segir Margrét en brott­föll þar námu 0,5-2% árið 2017. „Þar er alveg ótrú­lega lítið brott­fall í sam­an­burði við marga aðra skóla”. Margrét segir það koma sér á óvart þar sem þessir skólar hafa haft það orð á sér að vera erf­iðir. „Talað er um að námið sé bara mjög erfitt og það sé fall­hætta en hún virð­ist ekki til staðar. MH hefur líka verið í þeirri að geta valið sér nem­endur en þar hætta tölu­vert fleiri á fyrsta ári eða 5,6%”.

Vekur upp fleiri spurningar en svör

Aðspurð segir Margrét það helst koma sér á óvart hversu mik­ill munur sé á skól­unum. „Til dæmis Versl­un­ar­skól­inn, tölur frá 2017 sýna 0,4% brott­fall, það er bara ekki neitt. Á meðan að þetta fer upp í 20% í ein­hverjum skólum”. Eins og Margrét hefur bent á er ekki hægt að vita hver skýr­ingin er án frek­ari rann­sókna. „Það þarf að fara mjög var­lega út í að leggja of mikið í þetta. Viðmótið er kannski eitt­hvað sem þyrfti að skoða ennþá betur. Taka til dæmis við­tal við þessa krakka sem eru að flosna upp úr námi” segir Margrét og bætir við; „Grennsl­ast betur fyrir hvað það er. Hvort það sé bara að námið standi ekki undir vænt­ingum, eða þau ráði ekki við það. Eða er það vegna þess að þeim líður illa í skól­anum? Er þetta eitt­hvað félags­legt og að þau finna sig ekki í hóp? Þetta kveikir eig­in­lega upp fleiri spurn­ingar en svör. En það er líka alltaf mjög gott, að manni langi að vita meira”.

Mikilvægt að fylgjast vel með

„Mér finnst ofsa­lega mik­il­vægt að vera búin að fá ein­hverjar tölur. Líka að það sé áfram­hald­andi vinna við að fylgj­ast áfram með þessu og greina þetta. Ég held að núna sér­stak­lega, þegar við erum að breyta skóla­kerf­inu, skipti rosa­lega miklu máli að vera með putt­ann á púls­inum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð