Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hermann sterklega orðaður við Arion banka

Orðrómur er uppi um að Hermann Björns­son for­stjóri Sjóvá muni taka við af Höskuldi H. Ólafs­syni sem banka­stjóri Arion banka.

Hermann sterklega orðaður við Arion banka

Hermann Björnson, for­stjóri Sjóvá trygg­inga­fé­lags, er sterk­lega orð­aður við stöðu banka­stjóra Arion banka. Eins og kunn­ugt er sagði Hösk­uldur H. Ólafsson starfi sínu lausu sem banka­stóri Arion fyrr í mán­uð­inum eftir hafa starfað þar í níu ár og í kjöl­farið hafa ýmsir verðir nefndir sem mögu­legir arf­takar Hösk­uldar.

Gott orð fer af Hermanni sem hefur starfað hjá Sjóvá síðan 2011. Fyrr á árinu var hann val­inn yfir­stjórn­andi árs­ins af Stjórn­vísi og í fyrra, á hund­rað ára afmæli Sjóvár, varð félagið undir hans stórn, efst trygg­inga­fé­laga í Íslensku ánægju­vog­inni sem mælir ánægju við­skipta­vina fyr­ir­tækja í nokkrum mis­mun­andi atvinnu­greinum. Hefur félagið einnig mælst mjög ofar­lega þegar kemur að ánægju meðal starfs­manna. Þá greindi Við­skipta­blaðið frá því í fyrra að Sjóvá hafi farið úr 472 millj­óna tapi á þriðja árs­fjórð­ungi 2017 í hagnað árið 2018. Ljóst er að Hermann hefur viða­mikla reynslu úr við­skipta­líf­inu. Áður en hann tók við stöðu for­stjóra Sjóvár árið 2011 hafði hann m.a. gengt starfi for­stöðu­manns rekstr­ar­deildar Íslands­banka, seinna stöðu for­stöðu­manns úti­búa­sviðs Íslands­banka og svo aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra þess sviðs og síðar stöðu aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra við­skipta­banka­sviðs hjá Kaup­þingi. Vafa­laust skemmir svo ekki fyrir Hermanni að á árunum 2009 til 2011 gegndi hann stöðu fram­kvæmda­stjóra við­skipta­banka­sviðs Arion banka.

Fleiri hafa verið orð­aðir við stöð­una og er einn þeirra er Sigurður Við­ars­son, for­stjóri TM. Samkvæmt upp­lýs­ingum Mannlífs hafa for­svars­menn Arion banka þegar haft sam­band við þá Hermann og Sigurð með for­stjóra­stól­inn í huga.

Aðrir sem hafa verið orð­aðir við starfið eru Benedikt Gíslason, stjórn­ar­maður í Arion banka sem hefur starfað fyrir Kaupþing, sem enn er stærsti hlut­hafi bank­ans. Ármann Þor­valds­son, sem tók við sem for­stjóri Kviku fjár­fest­inga­banka 2017, Marínó Örn Tryggva­son, aðstoð­ar­for­stjóri Kviku banka, Árni Þór Þor­björns­son, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Lands­bank­ans, Sveinn Sölvason, fjár­mála­stjóri Össurar, Linda Jóns­dóttir, fjár­mála­stjóri Marel, Katrín Ólafs­dóttir, lektor við Háskól­ann í Reykja­vík og Ásgeir Jónsson, dós­ent og for­seti hag­fræði­deildar Háskóla Íslands, hafa öll líka verið nefnd á nafn í þessu sam­hengi og nú fyrr­nefndur for­stjóri Sjóvár, Hermann Björns­son sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs.

Staða banka­stjóra Arion banka þykir mjög eft­ir­sótt, ekki síst vegna launa. Þannig var Hösk­uldur Ólafs­son með 6,2 millj­ónir á mán­uð­i þegar hann gengdi stöðu banka­stjóra Arion, eins og Kjarninn greindi frá í síð­asta mán­unði. En til sam­an­burðar má geta þess að Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans var með 3,8 millj­ónir á mán­uði í fyrra og Birna Ein­ars­dótt­ir, banka­stjóri Íslands­banka var með 5,3 millj­ónir á mán­uði. Þáver­andi banka­stjóri Arion banka var því lík­ast til launa­hæsti banka­maður lands­ins á meðan hann gegndi starf­inu og lík­legt að arf­taka Hösk­uldar komi til með að vera boð­inn enn betri kjör.

Þess má geta að Stefán Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs Arion bank­a, gegnir tíma­bundið starfi banka­stjóra Arion, eða frá 1. maí og þar til stjórn hef­ur ráðið banka­stjóra til fram­búðar.

Mynd: Sjóvá-Almennar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð