Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Í fjölskylduboðum með átrúnaðargoðinu

Söng­konurnar Jóhanna Guðrún og Birgitta Haukdal voru í guðatölu hjá tónlistar­konunni Guðrúnu Ýr Eyfjörð Jóhann­es­dóttir þegar hún var yngri.

Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir
Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhann­es­dóttir

Þessu segir hún frá í viðtali sem birtist í Mannlífi sem kom út á föstu­daginn.

Þegar hún var spurð hvaða söngkonur séu hennar helstu fyrir­myndir, hvaða söngkonum hún hafi verið hrifnust af þegar hún var yngri var Guðrún fljót að svara. „Ég var rosalega hrifin af Birgittu Haukdal og Jóhönnu Guðrúnu.

„Sko, pabbi kærastans míns er bróðir Birgittu Haukdal.“

Þær voru alveg í guðatölu. Ég man að á tímabili var Jóhanna Guðrún oft í Stundinni okkar og ég lá alveg heilluð fyrir framan sjón­varpið og spurði mömmu hvort hún héldi að ég mætti fara að syngja í Stundinni okkar líka. Hún benti mér á að ég yrði allavega að verða aðeins eldri fyrst, en útilokaði það ekki. Svo var Birgitta Haukdal alveg rosalega fræg á þessum tíma og ég var alltaf að hlusta á hana og Jónsa í Grease. Ég átti lítinn geisla­spilara með heyrnar­tólum og hjólaði um allt hverfið með Írafár alveg á blasti. Mér fannst Birgitta svo æðisleg.“

Spurð hvort hún hafi hitt Birgittu eftir að hún fór sjálf út í tónlistar­bransann fór Guðrún að skelli­hlæja og sagði: „Sko, pabbi kærastans míns er bróðir Birgittu Haukdal.“

„Þannig að ég er alltaf að hitta hana í fjöl­skylduboðum. Það finnst mér ótrúlega skemmtileg tilviljun. Þegar ég hitti hana fyrst var ég auðvitað með smá stjörnur í augunum eftir að hafa litið svona mikið upp til hennar þegar ég var lítil, en það vandist fljótt. Hún er líka alveg frábær og hefur gefið mér fullt af góðum ráðum fyrir tónlistar­bransann.“

Lestu viðtalið við Guðrúnu í heild sinni hérna.

Myndir / Aldís Páls­dóttir
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förðunar­fræðingur YSL á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra