Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Ég er köttur í eðli mínu“

Tón­list­ar­konan Ragn­heiður Gröndal sendi nýverið frá sér plöt­una Töfra­börn. Mikil vinna fór í gerð plöt­unnar og ekki síst plötu­umslagið.

„Ég er köttur í eðli mínu“
Ragn­heiður var að gefa út nýja plötu

„Platan var tvö ár í vinnslu en fimm ár í sköpun. Ég held að hún sé mjög flott þó ég ætli ekki að vera að gorta mig neitt,“ segir Ragn­heiður ánægð með útkom­una. Plata hennar Töfra­börn er komin út á Spotify og hægt að kaupa hana í gegnum heima­síðu Ragn­heiðar. Einnig er hægt að kaupa diskinn í Eymunds­son bráð­lega. „Fyrir þá sem vilja vera með­vit­aðir kaup­endur þá fæ ég meira út úr því fjár­hags­lega ef fólk kaupir af mér disk. Disk­ur­inn er líka eins og hálf­gerð ljóða­bók, hvert ljóð fær mikið pláss,“ útskýrir Ragn­heiður, en maður hennar, Guð­mundur Pét­urs­son, tók flestar ljós­mynd­irnar sem prýða bæk­ling­inn með disknum. „Hann er fal­legur og eigu­legur gripur,“ segir hún og bætir við að sig langi líka að koma Töfra­börnum út á vínyl sem verði von­andi síðar á þessu ári.

Söngurinn alltaf verið ástríða

Móðir Ragn­heiðar segir að söngur hafi verið ástríða hennar frá því hún var eins og hálfs árs gömul. „Ég man ekki eftir því en mamma segir að ég hafi lifað mig svo mikið inn í lagið Frost er úti fugl­inn minn, sungið það og grátið mikið því ég vor­kenndi fugl­inum svo að fá ekk­ert að borða. Þannig að ég hef alltaf elskað að tjá mig í gegnum söng og segja sögur á þann hátt.“ Síðar fór Ragn­heiður í kór og kveðst hafa átt erfitt með að fá ekki að syngja ein­söng. „Eftir þá reynslu hef ég aldrei enst neitt sér­stak­lega í of miklum hópa­verk­efnum. Ég er köttur í eðli mínu og hef aldrei getað hlustað á ráð­legg­ingar ann­arra. Það er afar sterkt eðli í mér sem hefur mjög oft komið mér í koll og unnið gegn mér en líka verið minn helsti styrkur í tón­list­inni þegar upp er staðið.“

Hvers­konar tón­list hefur heillað Ragn­heiði í gegnum tíð­ina og hvaðan sækir hún sinn inn­blástur? „Djass­tón­list, þjóð­lagatón­list, gæða popp, Joni Mitchell, Sögumenn, Egill Ólafsson og ótrú­lega margir íslenskir tón­list­ar­menn og konur sem og sterkar fígúrur eins og sax­ó­fón­leik­ar­inn Wayne Shorter sem ég lít á sem mik­inn meist­ara,“ segir hún. „Björn Jörundur er eitt okkar flottasta ljóð­skáld. Einnig Megas og fólk sem hefur eitt­hvað að segja með tón­list­inni sinni. Bergþóra Árna­dóttir sem var frum­kvöð­ull. Ravel, Debussy, Svavar Knútur, djass­söng­konur og svo­kall­aðir „vocalists.“ Það orð er ekki til á íslensku, en það er ein­hver sem hefur mikið vald á rödd­inni sinni – eig­in­lega radd­list­maður eða kona, t.d. eins og Eivör, Mari Boine, fado-söng­konur, Theo Bleckmann og Meredith Monk. Ég gæti haldið enda­laust áfram. Ég held að ég sæki inn­blástur alls staðar. Í mínu til­felli er tón­list­ar­sköpun úrvinnsla á upp­lif­unum og sýn minni á veru­leik­ann sem ég er stödd í.“

Mikið andlegt álag að koma plötu frá sér

Spurð út í hvort tón­list­ar­sköpun hennar hafi breyst í gegnum árin, svarar Ragn­heiður að hún hafi breyst heilan hell­ing. „Tónlist fyrir mér hefur alltaf verið flókið og heil­agt fyr­ir­bæri sem ég þrái að kom­ast til botns í. Þar af leið­andi hef ég breyst alveg svaka­lega mikið frá því ég byrj­aði að iðka tón­list og hef aðra hug­mynda­fræði og hug­myndir í dag heldur en ég hafði kannski fyrir 5 árum, 10 árum eða guð veit hvað. Hug­myndir manns og sköpun breyt ast stöðugt, jafn­vel frá degi til dags,“ útskýrir hún.

„Það getur verið mikið and­legt álag að koma plötu frá sér og koma fram á tón­leikum,“ svarar hún þegar hún er spurð að því hvernig það sé að spila á tón­leikum og semja tón­list. „Hluti af mér reynir að forð­ast það eins og heitan eld­inn því heilsan er það dýr­mætasta sem maður á og oft finn ég fyrir mik­illi innri tog­streitu því ég er ekki athygl­is­sjúk að eðl­is­fari, eða ef ég er það, þá alla­vega skamm­ast ég mín fyrir það eða eitt­hvað og þess vegna finnst mér erfitt að taka þátt í þeim leik sem tón­list­ar­brans­inn er og hefur alltaf verið,“ segir hún. „Ég elska að fá að vera í friði heima hjá mér og spila á píanóið fyrir sjálfa mig. En jafn­framt finnst mér eitt­hvað rétt við það þegar ég stilli mér upp fyrir framan fólk og syng og spila fyrir það. Ég virð­ist hafa ein­hverja innri þörf til að vera far­vegur fyrir tón­list og það knýr mig áfram til að feta þessa mjög svo þyrnum stráðu braut. Og ég held að mörgum tón­list­ar­mönnum líði nákvæm­lega svona. Við erum orkídeur.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Mynd / Heiða Helga­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ