Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sjálfstætt framhald af sýningu sem mistókst

Vorblót Tjarn­ar­bíós og Reykja­vík Dance Festival er í gangi þessa dag­ana. Þar munu sjálf­stæðu lista­kon­urnar Ástrós Guð­jóns­dóttir og Alma Mjöll Ólafs­dóttir meðal ann­ars stíga á svið með verkið I want to dance like you part 2.

Sjálfstætt framhald af sýningu sem mistókst
Mynd / Sunna Axels|Ástrós og Alma

„Vor­blótið er spenn­andi vett­vangur fyrir sviðs­lista­menn til að deila verkum sínum. Þetta er fjög­urra daga sviðs­lista­há­tíð þar sem hátíðin kannar mörkin milli dans, leik­listar og tón­listar og gefur gestum tæki­færi til að upp­lifa fjöl­breyti­leika íslensku sviðs­list­anna á einu bretti en vert er að geta þess að lista­menn á Vorblóti þessa árs eru nær ein­göngu konur,“ segja Ástrós og Alma.

Þær eru báðar útskrif­aðar úr Lista­há­skóla Íslands, Alma af sviðs­höf­unda­braut og Ástrós af sam­tíma­dans­braut. Þessa stund­ina er Alma blaða­maður hjá Stund­inni auk þess að sinna fjöl­breyttum list­rænum verk­efnum hér og þar á borð við útvarps­gerð og leik­stjórn. Ástrós er dans­list­ar­kenn­ari hjá Dan­list­ar­skóla JSB, með­limur hjá Hatara ásamt því að vera nýbúin að setja upp Rent í Gamla Bíó.

„Við erum báðar ham­ingju­sam­ari að þessu sinni en lífið samt stærra og flókn­ara. Allar þessar breyt­ingar hafa haft áhrif á útkomu verks­ins.“

Verkið sem þær sýna er sjálf­stætt fram­hald I want to dance like you, útskrift­ar­verki Ástrósar. „Það verk var unnið út frá löngun okkar til að læra að dansa út frá for­sendum hvor ann­arrar. Vinnsla verks­ins gekk vel framan af en end­aði svo með ósköpum þegar perónu­legt líf okkar tróð sér með offorsi inn í æfinga­ferlið með þeim afleið­ingum að sýn­ingin mistókst.Okkur mistókst svo rosa­lega að gera sýn­ingu að hún tókst óvart, akkúrat af því að hún mistókst. Sýningin fjall­aði á end­anum um mis­tök. Nú, ári síðar, höfum við tekið höndum saman á ný. Margt hefur breyst á þessu ári, við erum báðar útskrif­aðar með BA-gráðu í sviðs­listum, Alma er orðin rann­sókn­ar­blaða­maður og Ástrós er á leið­inni í Eurovision. Við erum báðar ham­ingju­sam­ari að þessu sinni en lífið samt stærra og flókn­ara. Allar þessar breyt­ingar hafa haft áhrif á útkomu verks­ins I want to dance like you part 2,“ segja þær.

Verk Ástrósar og Ölmu, I want to dance like you part 2, verður sýnt þann 7. apríl klukkan 19 í Tjarn­ar­bíói.

Lista­kon­urnar Ástrós Guð­jóns­dóttir og Alma Mjöll Ólafs­dóttir sýna nýtt verk á gömlum grunni á Vor­blót­inu.

Hat­ara­æv­in­týrið lær­dóms­rík áskorun
Ástrós og Alma hafa haft nóg að gera síðan þær útskrif­uð­ust og segja að hvert verk­efni hafi gefið þeim mikið og verið lær­dóms­ríkt. „Við erum enn þá að finna út úr því hvers­konar lista­menn við erum eða viljum vera en það er kannski eitt­hvað sem maður ver ævinni í. Að vera sjálf­stæður lista­maður er ótrú­lega lif­andi og skemmti­legt en líka stór­hættu­legt. Maður þarf í sífellu að takast á við sjálfan sig og sam­fé­lagið.“

Eins og fram hefur komið er Ástrós í dans­at­riði Hatara fyrir Eurovision og okkur lék for­vitni á að heyra aðeins um reynslu hennar af því. „Hat­ara­æv­in­týrið mikla er búið að vera ótrú­lega skemmti­legt og lær­dóms­ríkt,“ segir Ástrós. „Ég vissi ekk­ert hvað ég væri að koma mér út í þegar að ég var spurð hvort ég vildi taka þátt í Söngvakeppn­inni með Hatara. Ég sagði bara já og amen, mætti á fyrstu æfing­una með krökk­unum og fann á mér að þetta yrði skemmti­legt sam­starf. Nú, nokkrum mán­uðum seinna, erum við á leið í Eurovision.

„Auðvitað er það líka mikil áskorun að keppa fyrir Íslands hönd í þessum til­teknu aðstæðum. Ég lendi enda­laust í aðstæðum þar sem ég spyr mig spurn­inga og velti hlutum fyrir mér.“

Þetta ferli í heild­ina hefur verið mjög frá­brugðið öllu öðru sem ég hef upp­lifað áður. Ég hef tek­ist á við nýjar áskor­anir og lært nýja hluti, eins og að mæta í söng­tíma til Heru Bjarkar eða reyna að setja þessar risa­stóru linsur í augun á mér. Auðvitað er það líka mikil áskorun að keppa fyrir Íslands hönd í þessum til­teknu aðstæðum. Ég lendi enda­laust í aðstæðum þar sem ég spyr mig spurn­inga og velti hlutum fyrir mér. Eurovision hefur svo sann­ar­lega opnað á margt sem ég hefði ann­ars ekki tek­ist á við. Þetta eru allt nýjar áskor­anir fyrir mér. Á sama tíma og þetta ferli hefur verið göf­ult tekur það mikla vinnu og orku. Ég er því fegin að hafa haft öðrum verk­efnum að sinna sam­hliða Hatara til að dreifa hug­anum og þar hefur verkið hjá mér og Ölmu spilað stóran part.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð