Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Millifærðu 45 milljónir í hvelli“

Tölvu­þrjótar svíkja út tugi millj­óna í stökum milli­færslum.

„Millifærðu 45 milljónir í hvelli“
|Guðný Hjalta­dóttir

Tölvu­glæpir og nettengd afbrot af marg­vís­legu tagi hafa færst mjög í auk­ana und­an­farin ár og verða tölvu­þrjótar sífellt betri í því að blekkja fórn­ar­lömb sín. Falsanir á greiðslu­fyr­ir­mælum er ein teg­und tölvu­glæpa sem hefur valdið fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum á Íslandi tjóni. Dæmi eru um að starfs­fólk fyr­ir­tækja hafi verið blekkt til að milli­færa tugi millj­óna króna í þeirri trú að um við­skipta­mann sé að ræða.

Guðný Hjalta­dóttir, lög­fræð­ingur Félags atvinnu­rek­enda (FA), segir ástæðu til að hafa miklar áhyggjur af þró­un­inni, en næst­kom­andi þriðju­dag efnir félagið til morg­un­verð­ar­fundar undir yfir­skrift­inni Hvernig geta fyr­ir­tæki varist net­glæpum?
„Það hafa komið inn á okkar borð dæmi um félags­menn sem hafa lent í þessu og við þekkjum einnig mörg dæmi utan félags­ins. Við viljum vekja athygli á þess­ari þróun áður en dæm­unum fjölgar,“ segir Guðný í sam­tali við Mannlíf.

Guðný Hjalta­dóttir, lög­fræð­ingur Félags atvinnu­rek­enda (FA).

Hún seg­ist telja að fyrst og fremst sé um að ræða erlenda tölvu­þrjóta en úti­lokar ekki sam­starf við íslenska aðila og bendir á að tölvu­þrjót­arnir séu farnir að nota mun vand­aðra mál­far en áður hefur þekkst og því sé sífellt auð­veld­ara að láta blekkj­ast. „Þeim tekst að taka yfir net­föng og fara yfir tölvu­póst­sam­skipti. Þannig ná þeir að kynna sér sam­skipta­sögu aðila og orð­færi þess aðila sem á að líkja eftir.“

Spurð að því hvernig þessir glæpir lýsi sér í dag segir hún að algeng­ast sé að sjá svo­kall­aðar greiðslu­fyr­ir­mælafals­anir. „Það koma tölvu­póstar frá við­skipta­mönnum fyr­ir­tækja, t.d. erlendum birgjum, þar sem verið er að biðja um að fyr­ir­tækið leggi inn á nýjan reikn­ing og við­kom­andi reikn­ingar virð­ast tengdir við nafn raun­veru­lega kröfu­hafans.

Einnig eru dæmi um að gef­inn sé út nýr reikn­ingur sem lítur út eins og hefð­bund­inn reikn­ingur en þar er búið að breyta greiðslu­fyr­ir­mælum. Reikn­ing­ur­inn er þá greiddur til rangra aðila en eftir stendur hinn upp­haf­legi reikn­ingur sem er ógreiddur,“ útskýrir Guðný og bætir við að önnur teg­und þess­ara svika séu svokölluð stjórn­enda­svik (e. CEO Fraud).

„Það eru svik þar sem yfir­maður virð­ist senda beiðni á und­ir­mann og biður hann um að milli­færa sem snöggvast. Í báðum til­vikum er verið að senda þessa pósta úr raun­veru­legum net­föngum yfir­manna. Þrjót­unum tekst s.s. að taka yfir tölvu­póstana, þannig að fals­póst­ur­inn kemur beint frá yfir­manni, jafn­vel í fram­haldi af eldri sam­skiptum.

Í öðrum til­fellum er búið að gera ein­hverjar smá­vægi­legar breyt­ingar á net­fangi, eins og t.d. að setja inn tölu­staf­inn 1 í stað­inn fyrir lítið l eða bæta við staf eða kommu. Þannig að þetta eru keim­lík net­föng og sá sem gengur í gildr­una tekur ekki eftir mun­inum. Þá eru til svo­kall­aðir spoof-tölvu­póstar þar sem unnt er að láta tölvu­pósta líta út fyrir að koma úr öðru net­fangi en þeir koma raun­veru­lega. Greið­endur falla þá í þessa gryfju þar sem þeir telja sig vera í sam­skiptum við fólk sem þeir treysta.“

„Ég hef heyrt dæmi um allt frá 500 þús­undum og upp í 45 millj­ónir sem sviknar eru út úr fyr­ir­tækjum í stökum færslum.“

Guðný segir að um mjög háar upp­hæðir sé að ræða. „Ég hef heyrt dæmi um allt frá 500 þús­undum og upp í 45 millj­ónir sem sviknar eru út úr fyr­ir­tækjum í stökum færslum hér á Íslandi,“ segir hún og bætir við að þegar milli­færsla hefur verið fram­kvæmd sé skað­inn skeður. Hún þekki ekki dæmi um fórn­ar­lömb slíkra glæpa sem hafi end­ur­heimt fjár­muni sína. Oft á tíðum sé þetta tap fyrir greið­and­ann en í þeim til­vikum sem greið­andi hafi talið sig vera að greiða kröfu sem er enn til staðar eftir greiðsl­una skipti m.a. máli hvernig net­ör­ygg­is­málum við­kom­andi aðila var háttað og úr hvaða net­fangi fyr­ir­mælin bár­ust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ