Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Skipun dómara í nýrri stjórnarskrá

Skipun dómara í nýrri stjórnarskrá

Skoðun Fyrr í vik­unni skrif­aði ég harð­orðan pistil um ferlið við skipun dóm­ara í Lands­rétt. Einkum um vinnu­brögð dóms­mála­ráð­herra. Eftir að ég las dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu komst ég hins vegar að því að dóm­ur­inn segði allt sem segja þarf sem og sú staða að heilt dóm­stig er í upp­námi vegna vinnu­bragða við skipan þess. Mínum skrifum er því betur varið í upp­byggi­legra efni eins og um mik­il­vægi þess að læra af mis­tök­unum og girða fyrir slík vinnu­brögð eins og unnt verður til fram­tíðar.

„Það er grund­vall­ar­for­senda í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi að sjálf­stæði hand­hafa dóms­valds sé tryggt eins og kostur er.“

Í nýrri stjórn­ar­skrá er ákvæði sem lýtur að skipun dóm­ara og rík­is­sak­sókn­ara. Ráðherra skipar dóm­ara en þarf að leggja til­lögu sína undir for­seta til sam­þykktar eða synj­unar. Synji for­seti er skip­un­inni skotið til Alþingis sem þarf að sam­þykkja til­lög­una með auknum meiri­hluta þ.e. 2/3 hluta þings. Þetta hlut­verk for­seta er nýmæli og hluti af heild­ar­sýn Stjórn­laga­ráðs á hlut­verki for­seta sem örygg­is­ventils við með­ferð opin­bers valds. Samkvæmt þessu hefur hann sjálf­stæðan mál­skots­rétt til Alþingis. Í grein­ar­gerð er tekið fram að gert sé ráð fyrir að fag­legt og hlut­laust hæfn­is­mat fari fram í sam­ræmi við dóm­stóla­lög. Þá er sér­stak­lega tekið fram í ákvæð­inu að hæfni og mál­efna­leg sjón­ar­mið skuli ráða för við skipan í emb­ætti.

Þetta er ein leið til að tryggja sjálf­stæði dóm­stóla. Ákvæðið á sér for­sögu enda er það ekki nýmæli á Íslandi að vinnu­brögð við skipan dóm­ara hafi verið ámæl­is­verð og/eða ólög­leg. Ráð­herrar hafa áður átt við nið­ur­stöðu hæfn­is­nefnda án þess að gætt sé að meg­in­reglum stjórn­sýslu­réttar. Annað ákvæði í nýrri stjórn­ar­skrá sem er þýð­ing­ar­mikið hér varðar upp­lýs­inga- og sann­leiks­skyldu ráð­herra. Upp­lýs­ingar sem ráð­herra gefur Alþingi þurfa að vera réttar, við­eig­andi og full­nægj­andi. Annað varðar ábyrgð ráð­herra. Í finnsku, sænsku og norsku stjórn­ar­skránni má finna sam­bæri­leg ákvæði.

Traust þarf að ríkja til starfa dóm­stóla. Það er grund­vall­ar­for­senda í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi að sjálf­stæði hand­hafa dóms­valds sé tryggt eins og kostur er. Í dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins er m.a. vitnað til eins dóms EFTA-dóm­stóls­ins en þar segir, í laus­legri þýð­ingu: „… meg­in­reglan um sjálf­stæði dóms­valds er ein af grund­vall­ar­reglum við fram­fylgd rétt­lætis … Það er brýnt að dóm­arar séu ekki aðeins sjálf­stæðir og sann­gjarnir, heldur jafn­framt að þeir líti út fyrir að vera það.“

Þetta mál, eins og mörg önnur mál sem hafa komið upp á und­an­förnum árum og varða íslenska stjórn­skipun, sýna fram á brýna nauð­syn þess að við sam­þykkjum nýja stjórn­ar­skrá. Hér má nefna óljós ákvæði um þing­rof, hlut­verk for­seta við stjórn­ar­myndun, úrelt ákvæði um Landsdóm, skort á ákvæði um auð­lindir í þjóð­ar­eigu og nátt­úru og um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur og svona má lengi telja. Á meðan mun­ur­inn á réttu og röngu vefst fyrir okkur við jafn­þýð­ing­ar­miklar ákvarð­anir og um skipan dóm­ara er betra að setja lág­marks­reglur í stjórn­ar­skrá. Lærum af þessum málum. Gerum nýja stjórn­ar­skrá að for­gangs­máli.

Höfundur er lög­fræð­ingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð