Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Harðvítugar deilur innan Siðmenntar

Tvær stríð­andi fylk­ingar deila nú hart innan lífs­skoð­un­ar­fé­lags­ins Sið­menntar. Deil­urnar snú­ast í hnot­skurn um það að fyrr­ver­andi stjórn­ar­með­limir vildu hækka laun sín en því hefur sitj­andi stjórn verið alfarið mót­fallin. Á lok­uðu spjall­svæði félags­ins á Facebook logar allt í ill­deilum vegna máls­ins og hafa ásak­anir gengið á víxl.

Harðvítugar deilur innan Siðmenntar

Samkvæmt heim­ilda­mönnum Mannlífs sem ekki vilja láta nafns síns getið, hefur ósættið kraumað undir niðri í lengri tíma. Deil­urnar hafi náð hámarki síð­ast­liðið vor þegar fram­kvæmda­stjóri félags­ins, Bjarni Jónsson, sagði af sér vegna auk­ins þrýst­ings frá stjórn félags­ins um að „stjórn og vara­menn í stjórn fengju greidd laun fyrir hvert ein­asta við­vik“, eins og einn heim­ild­ar­manna kemst að orði. Í kjöl­farið, eða um mitt síð­asta sumar, ákvað þáver­andi for­maður félags­ins, Jóhann Björns­son, einnig að hætta. Eftir breyt­ing­arnar varð Sigurður Hólm Gunn­ars­son for­maður og Auður Sturlu­dóttir vara­for­maður.

„Allt var gert á handa­hlaupum og öll skila­boð frá for­manni voru óvönduð. En í ljósi þess að þetta er lífs­skoð­un­ar­fé­lag sem býður upp á athafna­þjón­ustu er mik­il­vægt að sýna starf­inu virð­ingu.“

Samkvæmt fyrr­nefndum heim­ilda­mönnum versn­aði dag­legur rekstur félags­ins eftir þau stjórn­ar­skipti. „Það má segja að starf­semi félags­ins hafi farið „hnign­andi“. „Allt var gert á handa­hlaupum og öll skila­boð frá for­manni voru óvönduð. En í ljósi þess að þetta er lífs­skoð­un­ar­fé­lag sem býður upp á athafna­þjón­ustu er mik­il­vægt að sýna starf­inu virð­ingu,“ hefur Mannlíf eftir einum heim­ild­ar­manna sem bætir við að stjórnin hafi látið nokkra mán­uði líða áður en nýr fram­kvæmda­stjóri var ráð­inn. Siggeir F. Ævarsson fékk það starf í ágúst á síð­asta ári.

Meðal þeirra sem hækkað hafa í launum er Sigurður Hólm en sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Mannlíf hefur undir höndum hækk­uðu laun hans sem vef- og kerf­is­stjóri í 25 pró­sent starfs­hlut­falli úr 300.000 krónum á ári upp í 1.764.000, sem er 288 pró­senta hækkun. Þá hafi Sigurður greitt sér þrjá mán­uði aft­ur­virkt þegar hann tók við sem for­maður á síð­asta ári.

Fyrr­ver­andi for­maður sak­aður um hall­ar­bylt­ingu
Á aðal­fundi Sið­menntar 18. febr­úar sl. kom fram óvænt mót­fram­boð í stjórn félags­ins þegar Jóhann Björns­son, þá fyrr­ver­andi for­maður, bauð sig fram fyr­ir­vara­laust og hlaut kjör gegn sitj­andi for­manni. Sigurður Hólm sagði í kjöl­farið inni á fyrr­nefndum spjall­þræði Sið­menntar að hall­ar­bylt­ing hafi átt sér stað og sak­aði Jóhann og Bjarna Jónsson fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra um smölun.

Sigurður Hólm sagði í kjöl­farið inni á fyrr­nefndum spjall­þræði Sið­menntar að hall­ar­bylt­ing hafi átt sér stað og sak­aði Jóhann og Bjarna Jónsson fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra um smölun.

Eftir kjörið hafa öll spjót beinst að Jóhanni og hefur „stans­laust verið ham­ast í honum“ af fyrr­ver­andi stjórn­ar­með­limum sam­kvæmt heim­ilda­mönnum Mannlífs. Að lokum lét Jóhann undan og sagði sig frá for­mennsku félags­ins, en það kom fram á stjórn­ar­fundi 4. mars síð­ast­lið­inn, og tók Helga Jóhanna Úlf­ars­dóttir tíma­bundið við kefl­inu sem for­maður. Boðað hefur verið til auka­að­al­fundar 24. apríl næst­kom­andi. Þar verður kosið um for­mann, stjórn og vara­menn í stjórn en sam­kvæmt heim­ildum íhuga núver­andi stjórn­ar­með­limir að segja sig úr félag­inu í kjöl­farið.

Helga Jóhanna stað­festir í sam­tali við Mannlíf að deilur standi yfir í félag­inu. „Ég ætl­aði í raun aldrei að verða for­maður, ég fékk þetta bara upp í hend­urnar þegar þessi staða kom upp,“ segir hún og tekur fram að hún ætli sér ekki að sækj­ast eftir kjöri í apríl. „Ég hugsa að ég fari úr félag­inu ef það finnst ekki lausn í mál­inu.“

Segir deilur ekki snú­ast um með­ferð fjár­muna
Sigurður Hólm Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi for­maður Sið­menntar, stað­festi í sam­tali við Mannlíf að deilur væru innan félags­ins en vildi ekki tjá sig um ein­stök atriði. „Ég vil síður tjá mig um þetta. Þetta hefur verið rætt heil­mikið inni á spjall­borði Sið­menntar þar sem hafa verið skrif­aðar ítar­legar skýrslur um þetta mál. Mér finnst rétt­ast að málið fái að þró­ast þar áður en fólk fer að gaspra um þetta í fjöl­miðlum,“ segir hann en leggur áherslu á að deil­urnar snú­ist að engu leyti um launa­greiðslur eða ráð­stöfun fjár­muna og ítrekar að ekki væri greitt fyrir setu í stjórn félags­ins.

„Þetta hefur verið rætt heil­mikið inni á spjall­borði Sið­menntar þar sem hafa verið skrif­aðar ítar­legar skýrslur um þetta mál. Mér finnst rétt­ast að málið fái að þró­ast þar áður en fólk fer að gaspra um þetta í fjöl­miðlum.“

„Það eru alls kyns störf innan Sið­menntar sem er greitt fyrir eins og t.d. ýmis­legt tengdu borg­ara­legum ferm­ingum, fram­kvæmda­stjórn og tölvu­málum. Það eru bara sér­verk­taka­greiðslur sem fólk fær fyrir unnin störf óháð því hvort það er í stjórn eða ekki,“ útskýrir Sigurður en stað­festir að hann fái sjálfur greitt fyrir ákveðna tíma á mán­uði fyrir að sjá um vef- og tölvu­mál Sið­menntar.

Þá aftekur Sigurður fyrir það að hann íhugi að bjóða sig fram til for­manns á auka­legum aðal­fundi í apríl. „Nei ég hef aldrei sóst eftir því að vera for­maður, ég lenti bara í því í fyrra þegar fyrri for­maður hætti.“

Í kjöl­far ofan­greindrar fréttar hefur Sigurður Hólm Gunn­ars­son, fyrrum for­maður Sið­menntar, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegan um mál­efni félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ