Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Öryrkjar hafa verið skildir langt eftir

Um 21 þús­und manns eru með 75 pró­sent örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­mat á Íslandi. Fjöldi þeirra hefur tvö­fald­ast frá ald­ar­mótum, eða um 500 að með­al­tali á ári. Um 30 pró­sent hóps­ins eru undir fer­tugu. Þessi hópur á mjög erfitt með að sækja sér bjargir ann­ars­staðar en í almanna­trygg­inga­kerfið, þar sem íslenskur vinnu­mark­aður tekur lítið sem ekk­ert við fólki með skerta starfs­getu og bætur sem rík­is­sjóður greiðir skerð­ast mjög hratt ef öryrkjar reyna að vinna.

Öryrkjar hafa verið skildir langt eftir

Þannig er frí­tekju­mark atvinnu­tekna til að mynda 109.600 krónur og hefur verið óbreytt í ára­tug. Ef það hefði fylgt verð­lags­hækk­unum væri frí­tekju­markið rúm­lega 151 þús­und krónur.

Lág­marks­fram­færslu­trygg­ing þeirra sem fá örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri er 247.183 krónur hjá þeim sem fá ekki greidda heim­il­is­upp­bót, en 310.800 krónur hjá þeim sem fá slíka.

Það þarf ekki að leggja lengi saman til að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að um fátæktr­ar­gildru sé að ræða sem erfitt er að kom­ast út úr. Ytri aðstæður, eins og hækk­andi hús­næð­is­kostn­aður, sem fjallað er um hér í hlið­ar­efni, ýkja síðan þessa stöðu enn frekar.

Á Íslandi eru í gildi lög um almanna­trygg­ingar, sem ákvarða hver örorku­líf­eyrir eigi að vera. Í þeim, nánar til­tekið í 69. grein þeirra, er fjallað um hver almenn hækkun bóta almanna­trygg­inga eigi að vera. Þar segir að þær bætur skuli „breyt­ast árlega í sam­ræmi við fjár­lög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skal taka mið af launa­þróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verð­lag sam­kvæmt vísi­tölu neyslu­verðs.“

Textinn í lög­unum er nokkuð skýr. Líf­eyr­inn á að fylgja launa­þróun í land­inu og verð­bólga, sem er mæld með vísi­tölu neyslu­verðs, á ekki að geta étið virði bót­ana upp. Ef allt væri í sam­ræmi við laga­text­ann ættu því kjara­bætur öryrkja á hverju ári að vera hið minnsta hærri en verð­bólga hvers árs, og ef hún er lægri hlut­fallstala en hækkun launa þá eiga bæt­urnar að halda í við þá launa­þróun.

Þannig hefur málum þó ekki verið háttað. Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands,sem sýna þróun vístalna milli ára frá jan­ú­ar­mán­uði hvers árs, kemur skýrt fram að örorku­líf­eyrir hefur hækkað langtum minna en önnur laun í land­inu á síð­ustu 20 árum. Frá árinu 1998 hefur hækkun örorku­líf­eyris ein­ungis þrí­vegis verið hærri en annað hvort launa­þróun eða verð­bólga. Í alls 19 ár á því tíma­bili hefur hækkun örorku­líf­eyris hins vegar verið lægri en þróun þess­arra tveggja við­miða. Við það hefur átt sér stað kjaragliðnun.

Á manna­máli þýðir það að kjör öryrkja hafa oftar en ekki setið eftir á meðan að kjör ann­arra hafa batnað. Frá árinu 1998 nemur þessi kjaragliðnun 59,4 pró­sentum, sam­kvæmt tölum sem unnar hafa verið fyrir Mál­efna­hóp Öryrkja­banda­lags Íslands um kjara­mál. Frá árinu 2007 hefur gliðn­unin verið 28,4 pró­sent.

Ítarlega frétta­skýr­ingu um málið er hægt að lesa á vef Kjarnans og í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Mynd/ Birgir Þór Harð­ar­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ