Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Stjarneðlisfræðingur um „Flat Earthers“: „Þetta er grátbroslegt“

„Þetta er grát­bros­legt. Þú villt ekki gefa sam­sær­is­kenn­ingu svona stóran umræðu­vett­vang,“ segir stjarneðl­is­fræð­ing­ur­inn Kári Helgason um heim­ild­ar­mynd­ina Behind The Curve sem fjallar um fólk sem trúir því að jörðin sé flöt.

Heim­ild­ar­myndin Behind The Curve, sem kom út í lok árs 2018, varð nýverið aðgengi­leg á streym­isveit­unni Netflix. Myndin fjallar um fólk sem heldur því fram að jörðin sé flöt. Fólk hvaðanæva úr heim­inum trúir þeirri sam­sær­is­kenn­ingu og kallar sig „Flat Earthers“.

Einn helsti tals­maður „Flat Earthers“-hóps­ins er Mark Sargent og er í aðal­hlut­verki í Behind The Curve. Myndin hefur vakið tölu­verða athygli.

„Ég hef ekki séð þessa mynd. En ég hef heyrt um hana, þetta er skot­spónn á sam­fé­lags­miðlum. Þetta er auð­vitað svo­lítið fyndið í ljósi þessa tíma sem við lifum á. Allt í einu virð­ist vera hægt að efast um allt,“ segir stjarneðl­is­fræð­ing­ur­inn Kári Helgason í sam­tali við Mannlíf.

Kári segir mynd­ina eflaust vera áhuga­verða út frá mann­fræð­i­sjón­ar­horni en veltir fyrir sér hversu lagt sé hægt að ganga í því að efast um stað­reyndir.

Allt í einu virð­ist vera hægt að efast um allt.

„Það er alltaf merki­legt þegar eitt­hvað sem er aug­ljós sann­leikur, eitt­hvað sem allir eru sam­mála um, er allt í einu dregið í efa,“ segir Kári.

Í Behind The Curve gefa nokkrir vís­inda­menn álit sitt á sam­sær­is­kenn­ing­unni og Kári tekur fram að hann sé frekar von­svikin yfir því að Netflix gefi „Flat Earthers“-hópnum svona stórt svið til að kynna sam­sær­is­kenn­ingu sína með áliti frá vís­inda­mönnum. „Þetta er grát­bros­legt. Þú villt ekki gefa sam­sær­is­kenn­ingu svona stóran umræðu­vett­vang.“

Að mati Kára er vara­samt að senda þau skila­boð að allar skoð­anir eigi rétt á sér og að fólk ætti að bera virð­ingu fyrir öllum skoð­unum. „Það er bara ekki þannig. Ef að skoð­anir eru rangar og jafn­vel hættu­legar, þá þarf maður bara alls ekki að bera virð­ingu fyrir þeim. Lýðræði þýðir ekki að þín heimska sé mik­il­væg­ari en mín þekk­ing. Þú hefur alveg rétt á að trúa á allt sem þú villt en það breytir því ekki að það sem þú trúir á getur verið alveg kol­rangt.“

Þekkir engan sem trúir því að jörðin sé flöt

Spurður út í hvort hann sjálfur hafi ein­hvern tím­ann hitt fólk sem trúir því að jörðin sé flöt segir Kári: „Nei, sem betur ekki. Ef ein­hver Íslend­ingur héldi því fram við mig að jörðin væri flöt þá væri það merki um að eitt­hvað hefur verið gert rangt í upp­eldi eða mennta­kerf­inu.“

Sumum finnst eðli­legar útskýr­ingar á hlut­unum ekki nógu spenn­andi.

Kári tekur aftur fram að áhuga­vert sé að velta fyrir sér af hverju fólki þykir gaman að sam­sær­is­kenn­ingum. „Sumum finnst eðli­legar útskýr­ingar á hlut­unum ekki nógu spenn­andi eða of hvers­dags­legar. Þetta fólk er ef til vill ekki búið að upp­götva hversu spenn­andi vís­indin eru. En þetta getur orðið skað­legt, eins og þegar fólk efast um lofts­lags­breyt­ingar eða bólu­setn­ingar. Þá er þetta orðið hættu­legt,“ útskýrir Kári.

Hann bætir við: „Þegar þetta er komið út í vit­leysu þá verður maður að skipta sér að.“

Stiklu úr Behind The Curve má sjá hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð