Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Afstaða Brynjars lýsir aldagömlum viðhorfum“

Anna Þóra Krist­ins­dóttir og Anna Bentína Herman­sen, ráð­gjafar hjá Stíga­mótum, eru sam­mála um að við­horf sams­konar þeim sem Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur gagn­vart vændi séu á und­an­haldi.

„Afstaða Brynjars lýsir aldagömlum viðhorfum“

Í síð­ustu viku voru Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður VG, og Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, gestir Kast­ljóss. Þar var rætt um hvort nafn­greina ætti brota­menn í dómum sem falla hér á landi vegna vændis­kaupa. Bjarkey telur að nafn­birt­ing gæti haft fæl­ing­ar­mátt á meðan Brynjar sér engan til­gang í að nafn­greina þá vændis­kaup­endur sem eru sak­felldir.

Skiptar skoð­anir eru um málið en við­horf Brynjars gagn­vart vænd­is­málum almennt hafa vakið athygli, meðal ann­ars skoðun hans um það sé val að stunda vændi og því ætti ekki að skil­greina vændi sem ofbeldi.

Í sam­tali við Mannlíf segja þær Anna Þóra Krist­ins­dóttir og Anna Bentína Herman­sen, ráð­gjafar hjá Stíga­mótum, Brynjar greini­lega hundsa sögur þeirra kvenna sem hafa stundað vændi og stigið fram og greint frá reynslu sinni.

„Brynjar vill að selj­andi vændis taki ábyrgð á sinni ákvörðun og líti ekki á sig sem brota­þola, heldur jafn­vígan þátt­tak­anda í við­skiptum á þjón­ustu. Hann hundsar algjör­lega þau ummæli sem koma frá konum í vændi,“ segir Anna Bentína.

Hann hundsar algjör­lega þau ummæli sem koma frá konum í vændi.

„Ástæðan fyrir því að vændi var gert refsi­vert eru auknar upp­lýs­ingar, rann­sóknir og vit­neskja um afleið­ingar vændis. Sú vit­neskja er ekki úr lausu lofti gripin og fylgir ekki ein­hverjum skoð­unum sem við kunnum að hafa á skil­grein­ingu á við­skiptum. Afleið­ingar af vændi eru það víð­tækar og viða­miklar að fjöl­mörg lönd sem við berum okkur saman við líta á vændi sem kyn­ferð­is­of­beldi þar sem ein­stak­lingur í yfir­burða­stöðu nýtir sér neyð ann­arrar mann­eskju.“

Anna Þóra og Anna Bentína eru sam­mála um að við­horf sams­konar þeim sem Brynjar hefur gagn­vart vændi séu á und­an­haldi.

„Samkvæmt íslenskum lögum eru vændis­kaup lög­brot. Afstaða Brynjars lýsir alda­gömlum við­horfum sem gerðu konur ábyrgar fyrir þeim brotum sem þær urðu fyrir. Brynjar segir að selj­andi vændis eigi að taka ábyrgð á þeirri ákvörðun sem hún tekur þegar hún selur sig. Þessi við­horf eru, að okkar mati, á pari við þá hug­mynda­fræði að konan geti sjálfri sér um kennt að verða fyrir nauðgun eða heim­il­is­of­beldi. Hún þarf að taka ábyrgð á þeirri ákvörðun að gift­ast ofbeld­is­manni eða að búa áfram með honum. Hún hefði líka mátt vita að klæðn­aður hennar sendi körlum ákveðin skila­boð og þess vegna var henni nauðgað. Sem betur fer eru slík við­horf á und­an­haldi, við erum upp­lýst­ari og vitum betur hvers eðlis kyn­ferð­is­brot eru. Gagnvart vændi er hins vegar uppi berg­mál þess­ara úreltu við­horfa sem Brynjar Níelsson heldur á lofti.“

Líkti því að stunda vændi við það að starfa á skyndibitastað

Í þætti Kast­ljóss sagði Brynjar það vera ákvörðun að vinna við vændi, alveg eins og það væri ákvörðun að vinna á McDonalds.

„Stígamót gerði úttekt á afleið­ingum vændis hjá 41 ein­stak­lingi sem leit­aði til okkar yfir ákveðið tíma­bil og hafði verið í vændi. Þar kom fram að 90% þess­ara ein­stak­linga upp­lifði skömm í kjöl­far vænd­is­ins og 66% þeirra höfðu gert til­raun til sjálfs­vígs í kjöl­far vænd­is­ins. Setjum þessar tölur í sam­hengi við „önnur störf“, eins og það að vinna hjá McDonalds, eins og Brynjar gerði. Hvað ef 90% þeirra sem ynnu hjá McDonalds upp­lifðu svo mikla skömm að þeir gætu ekki talað við nokkurn mann um starfið eða við hvað þeir störf­uðu? Hvað ef að 66% þeirra sem hafa starfað hjá McDonalds eða í annarri starfs­stétt hefðu gert til­raun til sjálfs­vígs?

Vafa­laust mundum við setja spurn­ing­ar­merki við starfs­um­hverfi McDonalds og gera nákvæma úttekt á hvers vegna starfs­fólki liði svona. Sam­bæri­legar úttektir á reynslu þeirra sem stunda vændi gerðu það að verkum að mörg sam­fé­lög hafa gert vændis­kaup refsi­verð.“

Til að grein­ast með áfallastreituröskun þarf maður að verða fyrir áfalli þar sem maður er hætt komin.

Anna Þóra og Anna Bentína benda einnig á að erlendar rann­sóknir hafi leitt í ljós að um 70% þeirra sem hafa stundað vændi hafa þróað með sér áfallastreituröskun. „Þessar tölur gefa til kynna að afleið­ingar vændis geta verið þær sömu og þegar við erum stödd í miðjum stríðs­á­tökum eða nátt­úru­ham­förum. Sem sýnir alvar­leika afleið­ing­anna. Til að grein­ast með áfallastreituröskun þarf maður að verða fyrir áfalli þar sem maður er hætt komin, til dæmis vegna alvar­legs slyss, nátt­úru­ham­fara eða kyn­ferð­is­of­beldis, sem vændi er.“ Þær benda einnig á að rann­sóknir hafa leitt í ljós að mik­ill meiri­hluti þeirra sem stunda vændi hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi sem börn eða ung­lingar.

„Svo má velta fyrir sér hvort skoð­anir Brynjars á vænd­is­málum megi heim­færa á önnur mál. Ef refs­ingar í vænd­is­málum duga ekki, eins og Brynjar segir, og gerir brota­flokk­inn aðeins harð­ari, eigum við þá að gera önnur brot refsi­laus? Auka þyngri refs­ingar sjálf­krafa á að brotin verði harð­ari og ofbeld­is­fyllri? Eigum við þá ekki að afnema refs­ingar alveg, eða á það bara við um vændi?“

Sjá einnig: „Fólk sem kaupir vændi er fólk sem beitir ofbeldi“

Sjá einnig: Vænd­is­málum á borði lög­reglu fækkar þrátt fyrir „spreng­ingu“

Sjá einnig: „Hvað fær menn til að kaupa vændi?“

Sjá einnig: „Ætlaði bara að prufa og bakka út þegar ég vildi“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vændi

InnlentVændi

Brynja stund­aði vændi á Íslandi: „Algjör skyndi­hug­detta“

„Þar sem ég hafði enga virð­ingu fyrir sjálfri mér og lík­ama mínum datt mér í hug að fyrst ég væri að sofa hjá mönnum á djamm­inu gæti ég alveg eins fengið greitt fyrir það. Þetta var ekki eitt­hvað sem ég lagði mikla hugsun í. Þetta var algjör skyndi­hug­detta,“ segir fyrr­ver­andi vænd­is­kona í Helg­ar­við­tali Mannlífs. Konan, sem við köllum Brynju, lýsir...
InnlentVændi

Hvað kostar góð rass­skell­ing? Ég á góða spaða og svipur

Mannlífi lék hugur á að gera óform­lega könn­una á eft­ir­spurn eftir vændi íslenskra kvenna eftir við­tal við Önnu Bentínu Herman­sen hjá Stíga­mótum sem sagði vændi íslenskra kvenna í atvinnu­leysi og Covid hafa stór­auk­ist. Tæplega 40 svör á sól­ar­hring Sett var aug­lýs­ing inn á íslenskan vef­mið­miðil sem margir tengja meðal ann­ars við vænd­is­sölu en ekki ein­vörð­ungu. Aug­lýs­ingin var sett inn fyrir...
InnlentVændi

Neyð rekur íslenskar konur í vændi. Gífurleg eft­ir­spurn í Covid-far­aldri

Stígamót hafi fundið fyrir auknu vændi íslenskra kvenna í Covid far­aldr­inum. ,,Okkar konur segja að áreitið sé tals­vert meira frá kaup­endum vændis í kjöl­far Covid. Margar fá lág­marks­fram­færslu í gegnum örorku, félags­þjón­ustu eða atvinnu­leys­is­bætur. Sú upp­hæð nægir ekki til þess að fram­fleyta þeim og þá verður vændi neyð­ar­úr­ræði” segir Anna Bentína Herman­sen ráð­gjafi hjá Stíga­mótum, ,, Atvinnu­leysi hafi aldrei mælst...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð