Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hamingjusamur starfsmaður verður betri starfsmaður

VIRK, Embætti land­læknis og Vinnu­eft­ir­litið munu halda morg­un­fundi á fimmtu­dag­inn þar sem mik­il­vægi þess að auka vellíðan á vinnu­stöðum verður rætt. Skipu­leggj­endur fund­ar­ins eru sam­mála um að vellíðan sé lyk­ill að betri heilsu til fram­tíðar.

Hamingjusamur starfsmaður verður betri starfsmaður

Sigríður Kristín Hrafn­kels­dóttir, verk­efna­stjóri heilsu­efl­andi vinnu­staða hjá Embætti land­læknis, og Ingi­björg Lofts­dóttir, sviðs­stjóri rýni hjá VIRK Starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóði segja fólk almennt vera orðið með­vitað um mik­il­vægi þess að líða vel í vinn­unni og á vinnu­stað sínum.

Aðal­fyr­ir­les­ari á morg­un­fund­inum er Vanessa King en hún er þekktur fyr­ir­les­ari og sér­fræð­ingur um vellíðan, þraut­seigju og ham­ingju á vinnu­stöðum. Auk Vanessu ávarpar Alma D. Möller land­læknir morg­un­fund­inn, Dóra Guðrún Guð­munds­dóttir reifar rann­sóknir sínar á ham­ingju vinn­andi fólks á Íslandi og Ingi­björg Lofts­dóttir kynnir VelVIRK verk­efnið.

Spurðar nánar út í VelVIRK segir Ingi­björg: „Það er rúmt ár síðan að VIRK fór af stað með for­varn­ar­verk­efni sem hefur fengið heitið VelVIRK og í fram­haldi af því hófum við sam­starf við bæði Embætti land­læknis og Vinnu­eft­ir­litið. Í kjöl­farið hafa þessar þrjár stofn­anir ákveðið að hefja sam­vinnu um Heilsu­efl­andi vinnu­staði sem er verk­efni nátengt Heilsu­efl­andi sam­fé­lögum og Heilsu­efl­andi skólum sem unnið hefur verið að hjá Embætti land­læknis síð­asta ára­tug.“

Vanessa King lumar eflaust á góðum ráðum fyrir okkur til að auka vellíða.

Beðnar um að nefna dæmi um það sem verður fjallað um á fund­inum segir Ingi­björg: „Vanessa King lumar eflaust á góðum ráðum fyrir okkur til að auka vellíðan en hún hefur meðal ann­ars ritað tvær bækur um lyk­il­inn að ham­ingju­sömu lífi. Hún mun kynna fyrir okkur nið­ur­stöður rann­sókna um ham­ingju á vinnu­stöðum og leiðir til að tengja þær við raun­veru­legar aðstæður.

Dóra Guðrún Guð­munds­dóttir, sviðs­stjóri áhrifa­þátta heil­brigðis hjá Embætti land­læknis, mun síðan fjalla um íslenskar rann­sóknir á ham­ingju en Dóra hefur meðal ann­ars sér­hæft sig í þeim fræðum. Ingi­björg kynnir síðan for­varn­ar­verk­efnið VelVIRK sem hefur vinnu­heitið „Er brjálað að gera“ en verk­efnið heldur meðal ann­ars úti vef­síð­unni www.velvirk.is. Þar er hægt að finna hag­nýt ráð fyrir ein­stak­linga og stjórn­endur til að ná jafn­vægi í líf­inu og auka vellíðan á vinnu­stöðum. En fyrst mun Alma Dagbjört Möller, land­læknir, setja morg­un­verð­ar­fund­inn. Alma er mik­ill tals­maður heilsu­efl­ingar og for­varna og telur mik­il­vægt að huga að vinnu­stöðum lands­ins í því sam­hengi.“

Jafnvægi á milli vinnu og heimilis mikilvægur þáttur

Að ykkar mati, er fólk orðið meira með­vitað um mik­il­vægi þess að líða vel í vinn­unni og á vinnu­stað sínum?

„Já, tví­mæla­laust. Við erum orðin með­vit­aðri um að vellíðan er lyk­ill að betri heilsu til fram­tíðar og fyr­ir­byggj­andi aðferðir eru áhrifa­ríkar í því sam­bandi. Rann­sóknir sýna að vellíðan í starfi, bæði lík­am­leg, and­leg og félags­leg, er fyr­ir­byggj­andi og spornar gegn streitu og kulnun. Jafnvægi á milli vinnu og heim­ilis er mik­il­vægur þáttur og til að skapa jafn­vægi þurfa bæði stjórn­endur og starfs­fólk að vinna saman.

Ábyrgðin liggur hjá báðum aðilum, það er hlut­verk stjórn­enda að skapa heilsu­efl­andi umhverfi sem starfs­fólki líður vel í, er vel skipu­lagt og hlut­verk starfs­manna séu skýr. þeir þurfa að vita hvers er til af þeim ætl­ast og svo þarf umhverfið að styðja við fjöl­skyldu­líf starfs­manna á jákvæðan máta. Starfs­mað­ur­inn sjálfur ber ábyrgð á að stunda heilsu­sam­lega lifn­að­ar­hætti; huga að hreyf­ingu, matar­æði og svefni ásamt því að sinna félags­legum tengslum sem hefur sýnt sig að leiði til auk­innar vellíð­anar og betri heilsu til fram­tíðar,“ segir Sigríður.

Kostn­aður fyr­ir­tækja vegna auk­inna veik­inda, streitu og kuln­unar er hár og því til mik­ils að vinna fyrir stjórn­endur að huga að heilsu­efl­ingu því hún styður við vellíðan allra.

Hvað yfir­menn og stjórn­endur varðar þá eru þeir vissu­lega jafn ólíkir og þeir eru margir að sögn Sigríðar og Ingi­bjargar. „En við teljum að vit­und stjórn­enda hafi auk­ist mikið, þeir eru með­vit­aðri um ábyrgð sína í að skapa umhverfi sem er heilsu­efl­andi. Í því felst það sem styður við lík­am­lega, and­lega og félags­lega heilsu. Líði starf­manni vel og finnur að vinnu­um­hverfi hans styður við hann, þá verður hann að sjálf­sögðu betri starfs­maður. Kostn­aður fyr­ir­tækja vegna auk­inna veik­inda, streitu og kuln­unar er hár og því til mik­ils að vinna fyrir stjórn­endur að huga að heilsu­efl­ingu því hún styður við vellíðan allra.“

Þess má geta að í lok morg­un­verð­ar­fund­ar­ins ætla for­svars­menn stofn­an­anna þriggja að skrifa undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um sam­starfið sem mun einkum snú­ast um að gefa út við­mið um heilsu­efl­andi vinnu­staði. Með til­komu slíkra við­miða munu stjórn­endur geta mátað sig inn í þá þætti sem ein­kenna heilsu­efl­andi vinnu­staði.

„Við erum mjög spenntar fyrir kom­andi sam­starfi með Vinnu­eft­ir­lit­inu og viljum benda stjórn­endum og starfs­mönnum á að hægt er að skrá sig á morg­un­verð­ar­fund­inn um ham­ingju á vinnu­stöðum sem verður þann 21. febr­úar kl. 8.30 á virk.is,“ segir Ingi­björg.

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð