Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Verkfallsboðun ein og sér gæti leitt til fækkunar ferðamanna

Áhrif verk­falla lík­leg til að leggj­ast þungt á ferða­þjón­ustu.

Verkfallsboðun ein og sér gæti leitt til fækkunar ferðamanna
|

Jafnvel þótt ekki komi til verk­falla gæti verk­falls­boðun stétt­ar­fé­laga ein og sér orðið til þess að erlendir ferða­menn afbóki ferðir til Íslands.

Algjör óvissa er uppi á íslenskum vinnu­mark­aði á meðan enn nást ekki samn­ingar milli atvinnu­rek­enda og laun­þega og for­ystu­menn verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hafa enn ekki slegið verk­fall út af borð­inu. Mikið er undir, því kjara­samn­ingar tug­þús­unda starfs­manna eru lausir og því ljóst að verk­föll hefðu mikil og lam­andi áhrif á sam­fé­lagið.

Það er flókið mál að reikna út og greina þjóð­hags­leg áhrif þess að fjöl­mennar stéttir launa­fólks leggja niður störf eins og raunin getur orðið. Það má þó ljóst vera að afleið­ing­arnar yrðu miklar enda telja aðild­ar­fé­lög Starfs­greina­sam­bands­ins (SGS) um 57 þús­und félags­menn. Útfærsla á mögu­legum verk­föllum er auk­in­heldur óljós, það er hvort um alls­herj­ar­verk­fall verði að ræða eða afmörkuð skæru­verk­föll eins og for­maður VR, Ragnar Þór Ing­ólfs­son, hefur viðrað.

Karpað er um mörg atriði og ljóst er að allt þarf að ganga upp ef samn­ingar eiga að nást. Venju sam­kvæmt er launa­lið­ur­inn fyr­ir­ferð­ar­mestur en deilt er um önnur atriði á borð við til­lögur Samtaka atvinnu­lífs­ins sem ganga út á að fella niður neyslu­hlé úr vinnu­tíma launa­fólks og vinnu­dag­ur­inn stytt­ist sem því nemur. Þá er lagt til að deilitala dag­vinnu fari úr 173,33 tímum í 160 tíma og yfir­vinnu­á­lag breyt­ist úr 80 pró­sentum í 66. Þessu til við­bótar liggur fyrir að SA vill að dag­vinnu­tíma­bilið leng­ist með þeim hætti að hægt sé að vinna á dag­vinnu­taxta á tíma­bil­inu 06.00 til 19.00 á kvöldin og að upp­gjörs­tíma­bil til útreikn­ings á yfir­vinnu verði á þriggja mán­aða tíma­bili. Þessar hug­myndir hafa ekki hlotið hljóm­grunn verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.

SA hafa lagt fram til­boð í kjara­deil­unni sem verka­lýðs­fé­lögin liggja yfir og er svara að vænta frá þeim á fundi hjá rík­is­sátta­semj­ara í dag. En jafn­vel þótt þessir aðilar nái saman eru fjöl­mörg atriði sem standa uppi á rík­is­stjórn­ina að leysa svo að kap­all­inn gangi upp.

Viðbrögð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hafa verið hörð og Aðal­steinn Árni Bald­urs­son, for­maður Fram­sýnar, stétt­ar­fé­lags, kall­aði skýr­ingar banka­ráðs Lands­bank­ans á launa­hækk­un­inni „bull“.

Meiri­hluti til­bú­inn í verk­fall
Fréttir af 82% launa­hækkun banka­stjóra Lands­bank­ans voru síst til þess fallnar að lægja öld­urnar. Viðbrögð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hafa verið hörð og Aðal­steinn Árni Bald­urs­son, for­maður Fram­sýnar, stétt­ar­fé­lags, kall­aði skýr­ingar banka­ráðs Lands­bank­ans á launa­hækk­un­inni „bull“ en hann leiðir við­ræður SGS við SA sem snúa að störfum í ferða­þjón­ustu.
Í nýlegri könnun sem Gallup lét fram­kvæma meðal félags­manna Eflingar, stétt­ar­fé­lags kemur fram mik­ill stuðn­ingur við kröfu­gerð félags­ins. Tæplega 80% félags­manna telja hana sann­gjarna og sama hlut­fall félags­manna lýsir sig reiðu­búið til að fara í verk­fall til að knýja fram kröfur sínar.

Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar.

Verk­falls­boðun ein og sér er sterkt vopn
Aðspurður um hvaða áhrif langvar­andi vinnu­stöðvun gæti haft á þjóð­ar­búið svar­aði Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, því til að þau gætu orðið mikil. Hann vakti þó sér­stak­lega athygli á því að ekki þyrfti að koma til vinnu­stöðv­unar til þess að efna­hags­legra áhrifa færi að gæta.

„Bara það eitt að boða verk­fall getur strax farið að hafa mjög mikil áhrif, t.d. ef við lítum til ferða­manna­brans­ans. Við erum með mjög margt fólk sem starfar á hót­elum.“

„Það ber að hafa í huga að það er alltaf aðdrag­andi að verk­föllum. Það þarf að fara með þau í kosn­ingu og svo er sjö daga lág­marks­frestur frá því að verk­fall er boðað og þangað til það hefst. Á þeim tíma hafa samn­ings­að­ilar tæki­færi til að bregð­ast við,“ segir hann og bætir strax við: „Svo er vert að hafa í huga að núna er það þannig hjá okkur í Eflingu að mjög stór hluti félags­manna vinnur í geirum sem eru þannig að ekki þarf bein­línis að fara í verk­fall. Bara það eitt að boða verk­fall getur strax farið að hafa mjög mikil áhrif, t.d. ef við lítum til ferða­manna­brans­ans. Við erum með mjög margt fólk sem starfar á hót­elum,“ útskýrir Viðar og bendir á að ákveðin lög­mál gildi í t.d. hót­el­rekstri.

Gestir bóka gist­ingu gjarna með löngum fyr­ir­vara og fréttir af yfir­vof­andi verk­föllum eða öðrum þáttum gætu orðið til þess að fólk hugsi sig tvisvar um áður en það pantar gist­ingu. Þannig gæti í versta falli orðið tals­verð fækkun á komum ferða­manna til Íslands. „Þannig getur verk­falls­boðun ein og sér haft gríð­ar­leg áhrif,“ segir Viðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð