Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Tók alveg á taugarnar

Valgeir Bergmann hefur staðið í ströngu und­an­farin ár sem fram­kvæmda­stjóri Vaðla­heið­ar­gang­anna umdeildu. Hann seg­ist þó ekki hafa tekið gagn­rýn­ina nærri sér, seink­an­irnar eigi sér eðli­legar skýr­ingar og göngin séu sam­göngu­bót sem skipti Norð­lend­inga og Aust­firð­inga gríð­ar­legu máli. Þeir sem hæst hafi í gagn­rýn­inni hafi bara ekki kynnt sér málið nægi­lega vel.

Tók alveg á taugarnar
||||

Valgeir Bergmann tók við starfi sem fram­kvæmda­stjóri Vaðla­heið­ar­gang­anna í maí 2013 og flutti til Akur­eyrar með alla fjöl­skyld­una, eig­in­konu, tvö börn og hund. Hann var alinn upp í Kópavogi, en bjó tvö ár á Seyð­is­firði og seg­ist yfir­leitt kalla sig Seyð­firð­ing. Hann sé nefni­lega mik­ill lands­byggð­ar­maður í eðli sínu og uni sér hvergi betur en úti á landi.

„Ég bjó reyndar í Hafn­ar­firði í ell­efu ár eftir að við konan mín fórum að búa, en ég er sko alls eng­inn Hafn­firð­ingur,“ segir Valgeir og skelli­hlær. „Það var ódýr­ast að kaupa hús­næði þar á sínum tíma og ekki var verra að nokkrir vinir mínir bjuggu í næsta húsi.“

Vanur umdeildum framkvæmdum

Valgeir er bygg­ing­ar­tækni­fræð­ingur að mennt og segir að sú ákvörðun hafi komið til eftir að hann hafði unnið sem húsa­mál­ari með föður sínum og bróður árum saman og fund­ist eft­ir­lits­menn­irnir ekki hafa næga þekk­ingu á því sem þeir voru að gera þegar þeir fylgd­ust með verkum.

„Mér fannst þeir bara ekk­ert vita um hvað þeir voru að tala, þeir höfðu aldrei unnið við þetta,“ útskýrir hann. „Þannig að ég ákvað að fara í skól­ann og sýna þeim hvernig ætti að gera þetta. Það þró­að­ist þannig að ég end­aði inni á fram­kvæmda­línu og fékk vinnu á verk­fræði­stofu við að hanna vegi og lagnir. Þegar ég var búin að vinna við það í eitt og hálft ár fór ég að bauna því á yfir­mann­inn hvort ég gæti ekki fengið að fara í eft­ir­litið til að sjá svart á hvítu hvort maður væri að hanna hlut­ina rétt. Þannig að ég end­aði í eft­ir­liti með verk­tökum og fór að segja þeim fyrir verkum. Í kjöl­farið bauð einn verk­tak­inn mér vinnu og fyrsta verkið mitt í verk­efn­is­stjórnun var færsla Hring­braut­ar­innar þar sem við sneiddum af flug­vell­inum. Það var mjög umdeild fram­kvæmd á sínum tíma.“

Valgeir Bergmann hefur staðið í ströngu und­an­farin ár sem fram­kvæmda­stjóri Vaðla­heið­ar­gang­anna umdeildu. Mynd / Auðunn Níelsson

Valgeir er sem sagt ekki óvanur því að stjórna umdeildum verk­efnum, en gagn­rýnin sem Vaðala­heið­ar­göngin hafa fengið hlýtur þó að toppa það flest.

„Það hefur loðað við mig að vera í verk­efnum sem hafa mætt mót­vindi,“ segir hann glað­beittur. „Það er bara orð­inn eðli­legur hluti af vinn­unni að það sem ég geri sé umdeilt. En mót­vind­ur­inn hefur vissu­lega verið sterk­ari en oft áður eftir að ég varð fram­kvæmda­stjóri Vaðla­heið­ar­gang­anna, ég neita því ekki.“

Fyllti út umsókn á flugvellinum

Valgeir fór að vinna í Noregi eftir hrun, eins og svo margir Íslend­ingar í þessu fagi, og var staddur ytra þegar hann frétti af fram­kvæmda­stjóra­stöð­unni.

„Ég hafði verið að vinna hjá Háfelli sem er jarð­vinnu­verk­taki, og meðal ann­ars verið verk­efna­stjóri í Héð­ins­fjarð­ar­göng­unum. Svo kom hrunið og það var eig­in­lega enga vinnu að fá í þessum jarð­vinnu­bransa, allar fram­kvæmdir stöðv­uð­ust, svo ég, eins og mjög margir aðrir í mínu fagi, fór til Noregs þar sem ég vann í þrjú ár fyrir Ístak, ásamt fjöl­mörgum öðrum Íslend­ingum sem voru í sömu stöðu og ég. Það var alveg ágætis tími. Við vorum yfir­leitt þrjár til fjórar vikur úti, þar sem við ferð­uð­umst á milli verk­efna og svo viku heima. Konan mín var eftir heima og var orðin dálítið þreytt á þessu og það var hún sem benti mér á að það væri verið að aug­lýsa eftir fram­kvæmda­stjóra fyrir Vaðla­heið­ar­göng. Ég var staddur á flug­vell­inum í Ósló þegar hún sagði mér frá þessu og ég fyllti umsókn­ina út meðan ég beið eftir flugi.“

Fram­kvæmdir við Vaðla­heið­ar­göngin hófust vorið 2013 og þeim átti að ljúka í lok árs 2016, en verkið dróst í tvö ár.

„Eins og þeir vita sem hafa fylgst með fram­kvæmd­inni þá gekk verkið mjög vel til að byrja með og það var góður gangur í því,“ segir Valgeir. „Síðan gróf verk­tak­inn sig inn í heita­vatnsæð og út fossuðu 350 lítrar á sek­úndu af 46 gráðu heitu vatni og það tafði auð­vitað vinn­una því það þurfti að auka allar þétt­ingar og loka fyrir allt vatn sem hugs­an­lega gæti verið í göng­unum. Það hægði mjög á hraða verks­ins. Að lokum var hætt að grafa Eyja­fjarð­ar­megin og bor­inn færður yfir í Fnjóska­dal og byrjað að bora niður á við í átt að Eyja­firði. Það gekk ágæt­lega framan af, þangað til göngin voru komin um einn og hálfan kíló­metra inn. Þá var verið að grafa í mis­geng­isprungu með lausu efni og það vildi svo illa til að efnið hrundi niður og fyllti göngin og í kjöl­farið fylgdi mikið vatns­flóð þeim megin. Þá fyllt­ust göngin því að dæl­urnar höfðu ekki við og ganga­vinnan var stopp í 32 daga.“

Vanur neikvæðri umfjöllun

Valgeir tekur fram að hann sé ekki hluti af verk­takateym­inu, heldur full­trúi verk­kaupa og hlut­verk hans hafi verið að hafa yfir­um­sjón með verk­inu, sam­skipti við eft­ir­lit með verk­inu og semja við verk­taka.

„Öll sam­skipti við opin­bera aðila voru líka á minni könnu,“ útskýrir hann. „Þannig að ég þurfti að koma fyrir þing­nefndir og slíkt og gefa yfir­lit yfir stöð­una.“

En þetta tók á taug­arnar, ég segi það ekki, að þurfa stöðugt að vera að end­ur­meta stöð­una í verk­inu og reikna út hvort það gangi upp eða ekki og alltaf að svara sömu spurn­ing­unum.

Það getur varla hafa verið mjög skemmti­legt í öllum þessum áföllum og töfum en Valgeir kvartar ekki. „Eftir á að hyggja var þetta alveg skemmti­legt,“ segir hann og hlær. „Það er gaman að fá að upp­lifa eitt­hvað sem maður hafði áður bara lesið um og heyrt af ann­ars staðar. En þetta tók á taug­arnar, ég segi það ekki, að þurfa stöðugt að vera að end­ur­meta stöð­una í verk­inu og reikna út hvort það gangi upp eða ekki og alltaf að svara sömu spurn­ing­unum. En maður er svo sem kom­inn með ágætis reynslu og far­inn að kunna að anda með nef­inu í svona djobbum. Það ger­ist aldrei allt á tveimur, þremur dögum, þetta er lang­tíma­vekefni.

Þetta var eins með færslu Hring­braut­ar­innar og Héð­ins­fjarð­ar­göngin svo maður var orð­inn vanur því að fá alltaf þessa nei­kvæðu punkta og spurn­ingar. Það sem hefur kannski komið mest á óvart varð­andi Vaðla­heið­ar­göngin er hversu margir fjöl­miðlar hafa verið til­búnir að stökkva á vagn­inn og gagn­rýna. Það voru fljót­lega farnar að ber­ast þrjár, fjórar spurn­ingar á dag frá frétta­mönnum þannig að við ákváðum að halda úti Facebook-síðu fyrir verk­efnið til að upp­lýsa fólk um gang mála. Við vildum ekki fá það orð á okkur að við værum að fela eitt­hvað.“

Sama fólkið sem gagnrýnir allt

Spurður hverju hann svari þessum gagn­rýn­is­röddum segir Valgeir að hann meti það svo að full ástæða hafi verið til að ráð­ast í þessa fram­kvæmd, þótt ákvörð­unin hafi auð­vitað að vissu leyti verið póli­tísk.

„Póli­tíkin er búin að svara fyrir að þetta hafi verið rétt­læt­an­legt,“ segir hann. „Ég missti reyndar af allri þeirri umræðu vegna þess að ég var úti í Noregi, ég bara réði mig þarna í vinnu og kom norður í góðum fíl­ing. Svo þegar ég fór að lesa mér til um það sem á undan var gengið og fékk allar þessar spurn­ingar, átt­aði ég mig á því að þetta væri kannski aðeins við­kvæmara mál en ég hafði haldið. En það sem margir af þeim sem gagn­rýna fram­kvæmd­ina mest vita ekki er að Vík­ur­skarðið er annar mest ekni fjall­vegur á land­inu á eftir Hell­is­heiði. Flestir sem hafa hæst keyra frá Reykja­vík til Akur­eyrar, fara ekk­ert austar og halda að sú leið sem þeir keyra sé mest ekin. Menn átta sig ekki á því að þarna fara á milli þús­und og átján hund­ruð bílar á dag, sem er nán­ast sama magn bíla og keyrði Hval­fjörðin áður en göngin komu þar. Þannig að teknu til­liti til umferðar er þessi fram­kvæmd alveg eðli­leg.

Ég bara réði mig þarna í vinnu og kom norður í góðum fíl­ing. Svo þegar ég fór að lesa mér til um það sem á undan var gengið og fékk allar þessar spurn­ingar, átt­aði ég mig á því að þetta væri kannski aðeins við­kvæmara mál en ég hafði haldið.

Þetta styttir leið­ina og gerir hana örugg­ari. Svo er þetta líka heil­brigð­is­mál, þetta styttir við­bragðs­tíma sjúkra­bíla og það hefur algjör­lega gleymst í þess­ari umræðu að Akureyri er þjón­ustu­mið­stöð fyrir bæði Norð­ur­land og Aust­ur­land. Mjög margir sem búa austan Vaðla­heiðar sækja verslun og aðra þjón­ustu til Akur­eyrar. Þannig að ég er alveg harður á því að þessi fram­kvæmd átti rétt á sér, hún var bara ekki fram­ar­lega í for­gangs­röð­inni og það var ekki hægt að koma henni á kopp­inn öðru­vísi en að taka lán sem síðan verða borguð með veggjöldum. Ef það væru ekki veggjöld hefði hún til dæmis örugg­lega ekki farið af stað á undan göng­unum til Norð­fjarðar og Dýra­fjarð­ar­göngum, en hún væri örugg­lega að fara af stað í dag vegna þess að umferðin er orðin það mikil.“

Sorglegt andlát á lokametrunum

Nú er komið gott af þessum tækni­legu atriðum, finnst okkur báðum, og við snúum okkur að per­sónu­legri reynslu Valgeirs af því að vera í for­svari fyrir þessi umdeildu göng? Hefur hann orðið fyrir aðkasti vegna stöðu sinnar sem for­svars­maður þess­ara fram­kvæmda? „Nei, ég get nú ekki sagt það,“ segir hann poll­ró­legur. „Sér­stak­lega ekki þar sem öll fjöl­skyldan flutti hingað og ekki bara það að okkur hafi verið vel tekið hérna, heldur fór ég líka beint út í félags­lífið, byrj­aði að stunda blak með félögum í KA og það end­aði með því að ég varð for­maður í blak­deild­inni og sinni ýmsum störfum varð­andi það. Þegar við komum hingað mættum við eig­in­lega bara fjölda já-fólks.

„Við höfum aldrei orðið fyrir aðkasti eða heyrt mikið af gagn­rýn­is­röddum hérna fyrir norðan.“

Við höfum aldrei orðið fyrir aðkasti eða heyrt mikið af gagn­rýn­is­röddum hérna fyrir norðan. Hér vita allir að þetta eru veggjalda­göng og eru bara jákvæðir fyrir því. En aftur á móti hafa félag­arnir fyrir sunnan verið dug­legir við að senda manni skot og maður heyrði það alltaf þegar maður fór suður að þar voru ekki allir á eitt sáttir. En mér per­sónu­lega finnst stór hluti af þess­ari gagn­rýni bara vera skiln­ings- og þekk­ing­ar­leysi. Það var ein af ástæð­unum fyrir því að stjórn Vaðla­heið­ar­ganga lagði mikla áherslu á að kynna verk­efnið og hafa allar upp­lýs­ingar aðgengi­legar. Við birtum alveg jafnt fréttir af því sem ekki gekk vel, það var allt uppi á borðum.

Ég held reyndar að mest af gagn­rýn­inni sé frá sama fólk­inu og gagn­rýnir allt annað. Það eru enn þá sömu aðilar að gagn­rýna göngin á kommenta­kerf­unum og voru að því í upp­hafi.

Það var hins vegar þannig að þegar vel gekk og met voru sleg­inn sýndu fjöl­miðlar því lít­inn áhuga en ef illa gekk var því sam­stundis slegið upp. Þannig að maður var stundum skammaður fyrir að setja vondu frétt­irnar inn, en það var bara stefnan að segja frá öllu sem var að ger­ast. Ég held reyndar að mest af gagn­rýn­inni sé frá sama fólk­inu og gagn­rýnir allt annað. Það eru enn þá sömu aðilar að gagn­rýna göngin á kommenta­kerf­unum og voru að því í upp­hafi. Það skiptir engu hvernig gengur, það eru alltaf sömu nei­kvæðniradd­irnar og ef maður spyr þessa aðila út í gagn­rýn­ina og reynir að útskýra eitt­hvað fyrir þeim þá vita þeir alveg um hvað málið snýst en eru bara búnir að ákveða að vera á móti þessu. Þannig að maður verður bara að brosa að svona fólki, það heyr­ist alltaf hæst í því.“

Sitt af hverju sem kom upp í vinn­unni við göngin hlýtur að hafa verið erfitt, eins og dauðs­fallið sem varð á loka­metr­unum.

„Varðandi dauðs­fallið þá var það vissu­lega hörmu­legt. Þetta var þó ekki vinnu­slys, málar­inn varð bráð­kvaddur við vinnu sína næst­síð­asta dag­inn sem aðal­verk­tak­inn var að vinna í göng­unum. Mjög erfitt og sorg­legt fyrir alla auð­vitað. En almennt fyrir mig sjálfan þá er aðal­málið að hafa mikið að gera, þótt fjöl­skyldan sé reyndar ekki alveg sam­mála þeirri stefnu minni, fjöl­skyld­unni finnst ég alltaf vera í vinn­unni.“

Orðið eins og barnið manns

Þegar göngin voru loks opnuð fann Valgeir fyrir góðri til­finn­ingu en verk­efnum hans er þó ekki lokið. „Já, það var mjög gott þegar göngin opn­uðu,“ segir hann með sann­fær­ingu. „Það er alltaf góð til­finn­ing að geta lokið verki og horft til baka og skoðað það sem búið er að gera. En á móti kemur að þetta er auð­vitað ekki alveg búið og mitt verk­efni heldur áfram við gjald­tök­una og veggjaldapæl­ingar og slíkt, þannig að ég er ekki enn kom­inn í neina slökun og far­inn að anda út.

Fyrsti mán­uð­ur­inn í rekstri og gjald­töku er reyndar búinn þannig að það er aðeins farið að gef­ast tóm til að anda – ég vinn ekki lengur allar helgar og alla nótt­ina, á bak­vakt, til­bú­inn að stökkva til ef eitt­hvað kemur upp á. Ég er samt enn þá með sömu stöðu og ég var sem fram­kvæmda­stjóri Vaðla­heið­ar­ganga og er áfram eini starfs­maður félags­ins, en ég hef góða í kringum mig bæði í stjórn­inni og ráð­gjafa sem hafa sinnt eft­ir­lit­inu. Ég sé sem sagt um rekst­ur­inn á félag­inu auk þess að vera með aðkeypta þjón­ustu í ýmis konar umsýslu eins og gjald­heimt­unni. Ég vona að ég haldi því áfram, því þetta er orðið eins og barnið manns sem maður vill halda áfram að sinna og styðja út í heim­inn.“

Valgeir og hund­ur­inn Bella. Mynd / Auðunn Níelsson

Valgeir er greini­lega virkur í félags­lífi Akur­eyr­inga og virð­ist lítið far­ar­snið á honum og fjöl­skyldu hans.

„Nei, við höfum engin plön um að fara héðan,“ segir hann hlæj­andi.

„Okkur líður vel hér. Til afslöpp­unar og að vinna á móti vinnu­tengdu stressi er Akureyri algjör snilld. Ég er mik­ill lands­byggð­ar­maður í mér og svo erum við með hund sem börnin fengu til að sætta sig við flutn­ing­ana á sínum tíma, en þau höfðu lengi suðað um að fá hund. En svo fannst þeim auð­vitað bara gaman að honum á meðan hann var hvolpur og það hefur komið í minn hlut að fara með hann út alla daga og sinna honum. Sem er ynd­is­legt, þetta er ekta úti­vistar­para­dís, það er jafn­stutt fyrir mig að fara í sund og upp í fjall hvort sem er á skíði, hjól eða göngur.“

Best að slaka á í náttúrunni

Ertu sem sagt algjört úti­vi­starf­rík?

„Ekki frík, nei,“ segir Valgeir, hálf­móðg­aður. „En ver­andi kom­inn á minn aldur, 45 ára, þá kann ég betur að meta Ísland og það sem ég hef í kringum mig. Ég er búinn að sjá það sem ég þarf um allan heim og mér finnst lang­best að slaka á úti í nátt­úr­unni. Ég er með fastar venjur; ég fer í fjár­göngur upp á Eyvind­ar­staða­heiði og hef gert und­an­farin fimmtán ár. Frí­tím­inn fer í göngur, helst þar sem er ekk­ert síma­sam­band og gist er í gangna­manna­kofum með bænd­unum sem mér finnst óskap­lega skemmti­legt. Síðan er ég líka í göngu­hóp sem fer eina ferð á ári í langa göngu. Það er óskap­lega gaman að koma í þessar göngur og hitta fólk sem maður hittir kannski bara í þetta eina sinn á árinu. Svo er ég í öld­unga­blaki með vina­hópnum fyrir sunnan sem kall­ast Mass­arnir og tók líka að mér að þjálfa blak­hóp­inn Stell­urnar frá Akureyri, hóp sem sam­anstendur af konum á besta aldri og hefur notið gríð­ar­legra vin­sælda, svo mik­illa reyndar að þær geta ekki lengur tekið við fleiri félögum, við höfum ekki pláss til að æfa marga hópa í einu. Þannig að ég hef alltaf nóg að gera í frí­tím­anum og nýt þess virki­lega að fá útrás og slökun í gegnum alls konar lík­am­lega áreynslu.“

Framkvæmdin mun sanna gildi sitt

Valgeir finnur fyrir þakk­læti þegar hann lítur um öxl, fyrir að hafa fengið að taka þátt í vinn­unni við Vaðla­heið­ar­göngin. „Þetta er þarft sam­göngu­verk­efni og mun sanna sig þótt það hafi verið umdeilt. Það tekur bara tíma fyrir fólk að átta sig á því hvernig þetta virkar. Auðvitað er alveg ljóst að þetta kost­aði miklu meira en áætlað var og sumir vilja ganga svo langt að segja að þetta hafi verið eitt­hvert plott og menn hafi vitað að þetta yrði miklu dýr­ara. Ég get ekki tekið undir það. Sumt er bara ekk­ert hægt að sjá fyr­ir­fram hvernig endar og stór hluti af þessum auka­kostn­aði er óút­skýrðar jarð­fræði­legar aðstæður. Þetta er bara eins og þegar verið er að leita að vatni fyrir hita­veitur.

Auðvitað er alveg ljóst að þetta kost­aði miklu meira en áætlað var og sumir vilja ganga svo langt að segja að þetta hafi verið eitt­hvert plott og menn hafi vitað að þetta yrði miklu dýr­ara.

Það er ekki hægt að segja með hund­rað pró­sent vissu þegar byrjað er að bora að hitt verði á vatn og það var það sama hjá okkur. Við gátum ekki sagt með hund­rað pró­sent vissu að við myndum ekki hitta á vatn enda kom það á dag­inn að þarna var fullt af vatni sem eng­inn bjóst við að væri þarna. Norð­ur­orka sem leitar að vatni hérna fyrir norðan hafði til dæmis ekki grun um að allur þessi forði af vatni væri í heið­inni, þótt þeir séu sér­fræð­ingar á því sviði. Það sá það eng­inn fyrir.“

Mynd / Auðunn Níelsson

Þannig að þú ert sáttur og stoltur við verk­lok?

„Já, ég er mjög sáttur og mjög stoltur og bara mjög ánægður að vera hér á þessu svæði. Það eina sem maður sér eftir er að hafa ekki alist upp hérna og hafa hér dýpri rætur. Þetta hefur verið skemmti­legt verk­efni, þótt það hafi verið krefj­andi og erfitt og hafi á köflum reynt vel á taug­arnar. Í þessi ár dreymdi mig aldrei neitt nema vinn­una. Konan mín getur vottað að ég var alltaf að leysa ein­hver verk­efni tengd göng­unum í svefni. Ég veit ekki alveg hvað mig mun dreyma hér eftir, en maður finnur sér alltaf ein­hver verk­efni til að glíma við. Nú er ég einmitt á leið út til að kaupa mér göngu­skíði og stefni að því að taka þátt í Fossa­vatns­göng­unni á Ísafirði í byrjun maí. Mér finnst gott að hafa sífellt nýjar áskor­anir til að sigr­ast á og finnst það nauð­syn­legt.“

Myndir / Auðunn Níelsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ