Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Viðtalið við Guðrúnu Harðardóttur rifjað upp

Ósæmileg hegðun og kyn­ferð­is­legt áreiti Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar hefur verið mikið í umræð­unni und­an­farið eftir að hópur kvenna stof­aði meetoo-hóp um Jón Baldvin á Facebook. Þær opn­uðu svo vef­síðu þar sem þær birta sögur sínar , sög­urnar spanna sex ára­tugi. Þar á meðal er saga Guðrúnar Harð­ar­dóttur en hennar frá­sögn var gerð opin­ber árið 2012 í Nýju Lífi. Jón Baldvin hóf að senda Guðrúnu afar óvið­eig­andi bréf þegar hún var 10 ára gömul.

Viðtalið við Guðrúnu Harðardóttur rifjað upp

Guðrún Harð­ar­dóttir, syst­ur­dóttir Bryn­dísar Schram, eig­in­konu Jóns Balds­vins, sagði sögu sína í Nýju Lífi í febr­úar árið 2012. Þóra Tóm­as­dóttir, þáver­andi rit­stjóri Nýs Lífs, tók við­tal við hana. Viðtalið má lesa í heild sinni hérna:

Úr Nýju Lífi, febr­úar 2012.

Vill að fólk taki afstöðu

Guðrún Harð­ar­dóttir segir bréf Jóns Baldvins eig­in­manns móð­ur­systur hennar, hafa gert hana hrædda. Fjöl­skyldan sé splundruð vegna máls­ins og nú sé kom­inn tími til að fólk leggi mat á stað­reyndir og taki afstöðu í mál­inu.

Hvers vegna viltu að inni­hald bréf­anna birt­ist opin­ber­lega?

„Vegna þess að ég er komin með nóg. Reglu­lega kemur upp hjá mér reiði, sorg eða bit­urð yfir þessu máli og nú langar mig að koma því frá mér. Þegar ég heyri um Jón Baldvin talað í fréttum eða á net­inu, þá líður mér illa. Fjöl­skyldan mín er splundruð útaf þessu og mér finnst eins og það sé kom­inn tími til að fólk fái að vita sann­leik­ann og taki afstöðu. Ég vil að fólk lesi bréfin og sjái svart á hvítu hvað í þeim stendur. Sumir þykj­ast standa með mér en mæta svo í veislur til Jóns Baldvins. Mér finnst vissu­lega skrítið að koma fram í fjöl­miðlum en tel það einu leið­ina til að fá fólk til að horfast í augu við stað­reyndir.“

En það er langt um liðið síðan þú fékkst síð­ast bréf frá honum. Hvers vegna viltu koma fram með þetta núna?

„Mig hefur lengi langað til að koma þessu frá mér. Ég treysti mér ekki til að gera það þegar ég var átján ára. Nú held ég að ég sé orðin nógu þroskuð.“ Beðin um að lýsa sinni upp­lifun á sam­skiptum þeirra Jóns Baldvins segir Guðrún að hann hafi dekrað hana sem barn og henni hafi liðið eins og hún væri í upp­á­haldi hjá honum. „Þegar hann kom til Íslands bauð hann mér í hádeg­is­mat á Hótel Sögu og kom fram við mig eins og ég væri prinsessa. Ég var ofboðs­lega opin krakki og gam­alt fólk í hverf­inu voru vinir mínir. Það var alltaf mikið af gestum heima og ég var vön því að tala við full­orðið fólk. Til að byrja með þótti mér gaman að póli­tíkus héldi svona uppá mig. En auð­vitað var skrítið að full­orð­inn maður í fjöl­skyld­unni sýndi mér svona mikla athygli.“

Hvað fannst þér um bréfa­skriftir hans?

„Fyrst sendi hann bréf heim. Ég man eftir að hafa flissað yfir þeim með systrum mínum. Okkur þótti þau ein­kenni­leg. En bréfin fóru að verða skrítin þegar hann bað mig um að segja ekki frá þeim og fór að senda mér bréf í skól­ann. Einu sinni var hringt inn í skóla­stof­una og til­kynnt að ég ætti að koma uppá skrif­stofu því þar væri bréf til mín frá Ameríku. Ég hugs­aði á leið­inni á skrif­stof­una að kannski væri verið að bjóða mér í ein­hvern æðis­legan mynd­lista­skóla. Svo reynd­ist bréfið vera frá Jóni Baldvin og ég man að mér þóttu það von­brigði.“

Bréfin urðu grófari

Guðrún segir stíg­anda í bréf­unum og þau fyrstu hafi verið sak­laus­ari.

„Í þeim var hann að skrifa um Önnu í Grænu­hlíð og hvað væri ynd­is­legt að vera ung­lingur. Hann hvatti mig líka til að skrifa dag­bók. Ég svar­aði honum eig­in­lega aldrei en eitt skiptið sendi ég honum bréf, bara svona til að hafa hann góðan, en það fjall­aði bara um hvers­dags­lega hluti í mínu lífi. Eftir það kvart­aði hann yfir því að ég væri ekki nógu per­sónu­leg og ég man hvað mér þótti það skrítið. Ég vissi ekki hverju hann vildi að ég tryði honum fyrir.“

Árið 2001 sendi Jón Baldvin tvö bréf til Guðrúnar þar sem hún var skiptinemi í Venes­ú­ela. „Það var þegar ég fékk bréfið sem hann skrifar í Tallin sem ég varð hrædd. Í þessu bréfi talar hann um mig og hórur í sömu andrá. Í öðru bréfi lýsir hann kyn­lífi með kon­unni sinni, sem kemur mér ekk­ert við. Ég man hvar ég sat þegar ég las lýs­ingar á sam­förum hans við frænku mína og ég hálf­part­inn henti frá mér bréf­inu. Ég varð brjál­æð­is­lega hrædd og átt­aði mig á því að þetta væri alls ekki í lagi. Eftir að hafa fengið þessi bréf sagði ég í fyrsta sinn ein­hverjum frá því að þetta væri vanda­mál. Fólkið í Venes­ú­ela var fyrst til að fá að vita það.“

Skömmu áður stóð til að Jón Baldvin kæmi í sendi­ráðs­heim­sókn til Venes­ú­ela. „Hann hringdi í mig og spurði hvort ég vildi ekki hitta hann. Sem betur fer laug ég því að honum að skiptinemar mættu ekki fá heim­sóknir og hann trúði því.“

Niðurfelling málsins var sjokk

Guðrún segir að eftir heim­kom­una frá Venes­ú­ela hafi fjöl­skylda hennar fengið að heyra af ásök­unum á meintum brotum Jóns Baldvins. Guðrún segir að Bryndísi og börnum þeirra Jóns Baldvins hafi staðið til boða að lesa bréfin en hún er ekki viss um að þau hafi öll gert það. Bréfin bár­ust að minnsta kosti til Bryn­dísar og yngri dætra hennar tveggja. „Dætur Jóns Baldvins hömr­uðu á því við mig að hann væri sak­laus þar til sekt hans væri sönnuð. Aldís, elsta dóttirin hefur reyndar staðið með mér eins og klettur.“ Hvernig leið þér með að kæra hann? „Í fyrstu var það mik­ill léttir að það væri í höndum ann­arra að dæma um hvort hann væri sekur eða sak­laus. Til­hugs­unin var góð um að nú væri málið í höndum lög­regl­unnar og hún gæti séð hvernig málið væri.“

Hver voru þín við­brögð við frá­vísun máls­ins?

„Ég var hissa og mér var brugðið. Lög­fræð­ing­ur­inn minn sagði mér að þetta væri svart á hvítu og neglt mál. Nið­ur­fell­ing máls­ins var algjört sjokk. Mér fannst eins og það væri verið að svíkja mig og ég missti alla trú á íslensku rétt­ar­kerfi. Ég var líka sár yfir því að ég fengi það í bakið að hafa farið til útlanda sem skiptinemi. Að ég hafi einmitt verið stödd í útlöndum þegar bréfið barst og mér fannst sorg­legt að það hafi skipt sköpum í máls­með­ferð­inni. Ég hélt að það væri jákvætt að fara til útlanda í skipti­nám og í eina skiptið sem ég hef séð eftir því að hafa farið, var þegar þessi nið­ur­staða kom. Mér þykir þetta fár­an­legt. Nið­ur­staða rík­is­sak­sókn­ara, að fella málið niður, vegur jafn þungt og veldur mér jafn mik­illi reiði og málið sjálft.“

Sagði Bryndísi alla söguna

Guðrún segir að eftir að móðir hennar lést árið 1993 hafi Bryndís móð­ur­systir hennar verið henni eins­konar amma. Hefur þú rætt málið við hana?

„Já. Ég hitti hana á 20 ára afmæli mínu þar sem við sátum á Kaffi Nauthóli í nokkra klukku­tíma og ræddum um hvers­dags­lega hluti. Eftir kaffi­húsa­ferð­ina keyrði ég hana að hót­el­inu sem hún bjó á og sagði henni að ég vildi ræða við hana um Jón Baldvin. Hún spurði hvort það væri nauð­syn­legt. Ég játti því og sagði henni alla sög­una frá upp­hafi til enda. Við sátum í heill­anga stund báðar hágrát­andi í bílnum fyrir utan hót­elið. Hún sagði mér að henni þætti skelfi­legt að heyra þetta. Áður en hún fór inn á hót­elið til Jóns Baldvins, spurði hún að lokum hvort við tvær gætum ekki verið vin­konur. Ég sagði að ef hún færi inn til hans og léti eins og ekk­ert hefði í skorist, væri það ekki séns. Hún fór hágrát­andi út úr bílnum.“

Guðrún hefur búið mest megnis í útlöndum frá því hún kærði Jón Baldvin. Aðspurð um hvaða áhrif málið hafi haft á líf hennar, brestur hún í grát. Hún nefnir það sem dæmi að vegna máls­ins þyki henni óþægi­legt að búa á Íslandi.

„Mig langar ekki til að rekast á þetta fólk og þau eru mjög áber­andi á Íslandi. Mér finnst ég vera örugg­ari í útlöndum. Þau eru stöðugt að opin­bera sitt líf í fjöl­miðlum og mér finnst það til­gerð­ar­legt.“ Auk þess segir hún and­leg áhrif máls­ins vera marg­þætt. „Þegar ég var lítil og fékk svona mikla athygli frá honum, þá hélt ég það væri eitt­hvað við mig sem léti full­orðna karl­menn verða skotna í mér. Að ég þyrfti alltaf að passa mig að vera ekki of skemmti­leg í kringum karla. Ég hef líka átt erfitt með að treysta eftir þessa lífs­reynslu. Það er erfitt að benda á hvað það er, en ég er að mörgu leyti lituð af þessu.“

Sjá einnig: „Hann snerti mig afar ákveðið, glotti og hló“
Sjá einnig: Sterkari við­brögð við ásök­unum – í krafti fjöld­ans

Mynd / Síða úr Nýju Lífi, 2. tbl. 2012.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð