Andri Þór Sigurjónsson, frændi Ingu, segir einnig frá slysinu á Facebook.
Þar kemur fram að Inga hafi slasast lífshættulega.
„Hún slasaðist lífshættulega og hlaut mikla innvortis áverka, heilablæðingu og mörg alvarleg beinbrot Hún var lögð inn á gjörgæsludeild á ríkisspítalanum í Danmörku eftir að hafa gengist undir aðgerð til að stöðva innvortis blæðingar,“ skrifar hann.
„Nú er stefnan að Inga María flytjist yfir á annan spítala sem líkja mætti við Grensás hér heima. Móðir hennar mun standa við hlið hennar allan tímann og dveljast í Danmörku á meðan. Eins og allir vita er mjög kostnaðarsamt að halda sér uppi í öðru landi og gisti- og fæðiskostnaður ansi fljótur að telja. Eins og þið vitið sem þekkið þessa yndislegu fjölskyldu hafa þau gengið í gegn um ansi erfiða tíma á síðustu árum,“ skrifar Andri og bendir á söfnunarreikninginn 544 – 26 – 62406, kennitala 240688-2559.
Mynd / Af Facebook































Athugasemdir