Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Einmanaleiki útbreitt vandamál

Nýtt grát­bros­legt leik­verk í Tjarn­ar­bíói varpar ljósi á ein­mana­leika og þrána eftir nánd í nútíma­sam­fé­lagi.

Einmanaleiki útbreitt vandamál
|Alda Rose Cartwright

„Það sem við gerum í ein­rúmi“ er nýtt íslenskt leik­verk sem segir frá fjórum ólíkum mann­eskjum í blokk sem hafa allar ein­angr­ast. Fólkið hefur sterka þörf fyrir félags­skap og í fram­rás verks­ins rekur sú þörf það fram á gang og inn í líf hvert ann­ars með ófyr­ir­séðum og oft kómískum afleið­ingum. Heiðar Sum­ar­liða­son er annar höf­undur þess og hann segir að í því sé leit­ast við að varpa ljósi á ein­mana­leika og þrána eftir nánd í nútíma­sam­fé­lagi.

Heiðar Sum­ar­liða­son er annar höf­undur verks­ins „Það sem við gerum í ein­rúmi“og hann segir að í því sé leit­ast við að varpa ljósi á ein­mana­leika og þrána eftir nánd í nútíma­sam­fé­lagi.

„Það er bara þannig að ein­mana­leiki er orðið útbreitt vanda­mál. Fólk er sífellt að ein­angr­ast meira og þar spila alls konar hlutir inn í. Sam­fé­lags­miðlar valda því til dæmis að fólk hitt­ist ekki lengur augliti til auglitis heldur á í sam­skiptum í gegnum Netið sem er langt frá því að vera sami hlut­ur­inn og milli þess sem það er á kafi í vinnu þá sækir það í afþr­ey­ingu, ann­að­hvort í sjón­varp­inu eða á Netinu. Með öðrum orðum erum við farin að fjar­lægj­ast hvert annað og ein­angr­ast, sem veldur ein­mana­leika, dep­urð og þung­lyndi.

„Sam­fé­lags­miðlar valda því til dæmis að fólk hitt­ist ekki lengur augliti til auglitis heldur á í sam­skiptum í gegnum Netið sem er langt frá því að vera sami hlut­ur­inn og milli þess sem það er á kafi í vinnu þá sækir það í afþr­ey­ingu, ann­að­hvort í sjón­varp­inu eða á Netinu.“

Leik­ritið varpar einmitt ljósi á þetta. Þar er til dæmis kona sem hefur helgað allt líf sitt manni og börnum, en er orðin félags­lega ein­angruð þar sem karl­inn er skil­inn við hana, annar son­ur­inn fluttur erlendis og hinn vill ekk­ert með hana hafa, svo hún hangir bara heima hjá sér og glápir á Omega. Á meðan liggur son­ur­inn yfir Youtube-kennslu­mynd­böndum sem ganga út á það hvernig eigi að ná í konur. Þannig að þetta verk er ekk­ert síður um þörf okkar fyrir hvert annað og ótt­ann við höfnun,“ segir Heiðar og bætir við að eflaust geti ein­hverjir speglað sig í aðstæðum per­són­anna, að minnsta kosti að ein­hverju leyti.

Hefur sjálfur upplifað einangrun

Spurður hvernig hug­myndin að verk­inu hafi eig­in­lega kviknað segir hann hana komna frá leik­stjór­anum Söru Martí Guð­munds­dóttur. Hún hafi komið með grunn­hug­mynd­ina til sín, þau útfært hana í sam­ein­ingu og hann svo skrifað. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég skrifa verk með ein­hverjum og sam­starfið okkar Söru hefur gengið vel. Við erum með svip­aðar skoð­anir á því hvernig eigi að vinna í leik­húsi, en hins vegar með ólíka styrk­leika og bætum hvort annað upp. Þess utan, þá er þetta líka örugg­lega í fyrsta skipti sem ég kem nálægt leik­verki sem er við hæfi barna og við­kvæmra, sem helg­ast fyrst og fremst af því að hug­myndin kemur ekki frá mér sjálfum,“ útskýrir hann og hlær.

Þótt leik­ritið snerti á ýmsum kunn­ug­legum þáttum segir Heiðar að farnar séu ýmsar frum­legar leiðir til að koma umfjöll­un­ar­efn­inu á fram­færi.

Verkið unnu Heiðar og Sara saman, eins og fyrr segir, og því liggur bein­ast við að spyrja hvort það byggi að ein­hverju leyti á reynslu höf­unda sjálfra. „Já,“ svarar Heiðar hik­laust. „Ég hef upp­lifað félags­lega ein­angrun. Til dæmis þegar ég bjó í Berlín í eitt ár. Fyrstu mán­uð­ina þekkti ég nán­ast engan þar og tal­aði litla sem enga þýsku. Þannig að framan af átti ég mest­megnis í sam­skiptum við fólk í þjón­ustu­störfum sem gat verið fer­lega dóna­legt og þetta allt saman gerði að verkum að ég þoldi eig­in­lega ekki að búa í Berlín til að byrja með. En svo þegar leið á dvöl­ina og ég fór að kynn­ast fleira fólki varð ástandið bæri­legra og fyrir rest lang­aði mig bara ekk­ert heim til Íslands. Sem sýnir auð­vitað vel hvað mann­leg nánd skiptir miklu máli.“

„Ég hef upp­lifað félags­lega ein­angrun. Til dæmis þegar bjó ég í Berlín í eitt ár. Fyrstu mán­uð­ina þekkti ég nán­ast engan þar og tal­aði litla sem enga þýsku.

Þótt leik­ritið snerti á ýmsum kunn­ug­legum þáttum segir Heiðar að farnar séu ýmsar frum­legar leiðir til að koma umfjöll­un­ar­efn­inu á fram­færi. „Já, til að mynda fléttum við saman lif­andi leik­húsi og kvik­mynd á skemmti­legan hátt sem sést af því í hvert sinn sem per­sónur yfir­gefa íbúð­irnar stíga þær inn í kvik­mynd. Sjálfur man ég ekki til þess að hafa séð sýn­ingu með svona miklu kvik­mynd­uðu efni áður og efast um að íslenskir áhorf­endur hafi gert það heldur,“ segir hann og bætir við að sýn­ingin sé því eflaust ólík öllu sem fólk hafi séð áður. Það verði því ekki svikið af því að gera sér ferð í leik­húsið. „Ég get eig­in­lega lofað því.“

Nánari upp­lýs­ingar um verkið má nálg­ast á vef Tjarn­ar­bíós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ