Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Glímir enn við reiðina

Sveini Rúnari Ein­ars­syni var nauðgað af hópi karl­manna á Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum sum­arið 2012. Hann leit­aði til gæslu­liða á svæð­inu eftir nauðg­un­ina og segir að þeir hafi tekið honum vel og verið hjálp­legir en lög­reglan var aldrei kvödd til og honum bent á að fara að sofa og leita til neyð­ar­mót­töku dag­inn eftir. Sveinn Rúnar sagði aðeins sínum allra nán­ustu vinum frá atvik­inu, bældi niður til­finn­ingar sínar og byrj­aði ekki að vinna í afleið­ing­unum fyrr en mörgum árum síðar.

Glímir enn við reiðina
Sveinn Rúnar Ein­ars­son

„Ég gróf þetta bara niður í und­ir­með­vit­und­ina, ræddi ekki við neinn og leit­aði mér ekki neinnar hjálpar,“ segir Sveinn Rúnar. „Ég kærði aldrei og sé í raun­inni mjög mikið eftir því í dag. Mér finnst að ef fólk verður fyrir ofbeldi, tala nú ekki um nauðgun, þá eigi það skil­yrð­is­laust að kæra. En það er auð­velt að vera vitur eftir á. Ég var að vinna sem þjónn á þessum tíma og kastaði mér út í vinn­una, fór að drekka meira en áður og reyndi bara að gleyma að þessu. Það var í raun­inni ekki fyrr en fyrir ári síðan sem ég leit­aði mér aðstoðar til að vinna úr þess­ari reynslu og eft­ir­köst­unum.“

Sveinn Rúnar seg­ist ekki gefa mikið fyrir þann frasa að tím­inn lækni öll sár. Það sem þurfi til að ná sér eftir slíka reynslu sé að læra að vinna með sárin, þau hverfi ekk­ert.

Það skap­að­ist algjör víta­hringur hjá mér sem ég er núna fyrst að koma mér út úr.

„Þegar þetta gerð­ist þá breytti það öllu hjá mér,“ við­ur­kennir hann.

„Ég var búinn að skrá mig í nám en hætti við að fara í það og leit­aði bara í aðstæður sem ég þekkti og mér fannst ég öruggur í. Ég gerði mér ekki sjálfur grein fyrir því hvað ég ótt­að­ist nálægð við fólk, enn þann dag í dag á ég erfitt með að hleypa fólki að mér. Með því að grafa þessa reynslu undir teppi sat ég bara fastur, ég hélt ekk­ert áfram. Það skap­að­ist algjör víta­hringur hjá mér sem ég er núna fyrst að koma mér út úr.“

Vildi ekki ræða atvikið

Spurður um við­brögð fjöl­skyld­unnar segir Sveinn Rúnar að hann hafi haldið þessu leyndu fyrir fjöl­skyld­unni alveg þangað til hann fór í við­tal við Frétta­blaðið ári eftir atvikið.

„Nokkrir nán­ustu vinir mínir vissu af þessu en það var ekki fyrr en ég fór í þetta við­tal sem ég sagði öðrum frá því. Fjöl­skyldan sýndi mik­inn stuðn­ing og hefur stutt mig vel síðan. En ég hef eig­in­lega ekk­ert viljað ræða þetta og það var erfitt fyrir vini og fjöl­skyldu að reyna að hefja ein­hverjar umræður um þetta. Ég var bara ekk­ert til í það.“

Það er til vont fólk og fólk sem gerir svona hluti af ein­beittum brota­vilja.

Spurður hvort hann hafi upp­lifað þau algengu við­brögð fórn­ar­lamba nauð­gana að kenna sjálfum sér um dregur Sveinn Rúnar við sig svarið.

„Ég kenndi mér ekki um að þetta hefði gerst, nei,“ segir hann. „En ég fór í dálítið mikla sjálfs­vor­kunn, mér fannst ein­hvern veg­inn að ég ætti rétt á því að upp­lifa mig sem fórn­ar­lamb í dag­legum aðstæðum. Ég hef líka velt því fyrir mér hvort ég hafi orðið fyrir þessu vegna þess að ég er sam­kyn­hneigður, en ég held að það ekki sé ástæðan. Það er til vont fólk og fólk sem gerir svona hluti af ein­beittum brota­vilja og ég held ég hafi bara lent í því að vera rangur maður á röngum stað á röngum tíma.“

Erfiðast að ná tökum á reiðinni

Reiðin hefur kannski verið það sem Sveinn Rúnar hefur átt erf­ið­ast með að ná tökum á í vinn­unni við að takast á við nauðg­un­ina og afleið­ingar hennar.

„Reiðin er þarna enn, því miður,“ segir hann. „Ég þarf að vinna í sjálfum mér á hverjum degi til að halda henni og kvíð­anum í skefjum. Ég þarf ekki að minna mig á nauðg­un­ina sjálfa enda­laust, en ég þarf að minna mig á að vinna í sjálfum mér. Ef ég geri það ekki þá dett ég aftur ofan í sjálfs­vor­kunn og reiði og þar vil ég ekki vera.“

Sveinn Rúnar Ein­ars­son segir umræð­una um þessi mál auð­vitað hafa gjör­breyst frá því 2012 og það hafi verið opnað fyrir miklu víð­tæk­ari skiln­ing á nauðg­unum og afleið­ingum þeirra. Mynd / Arþór Birk­is­son

Hluti af því að vinna sig út úr þessu var að fara á Þjóð­há­tíð aftur síð­ast­liðið sumar, nokkuð sem Sveinn Rúnar segir hafa vakið mikla furðu fólks­ins í kringum hann.

„Ég vil taka það skýrt fram að ég hef aldrei ásakað Þjóð­há­tíð eða Vest­manna­eyjar,“ segir hann. „Þetta hefði getað gerst hvar sem var. Mér fannst alltaf mjög skrýtið þegar fólk var að segja við mig að Vest­manna­eyjar væru ógeðs­legt bæj­ar­fé­lag og Þjóð­há­tíð byði upp á nauðg­anir. Það var mjög gott fyrir mig að fara aftur, sér­stak­lega gladdi það mig að sjá hvað gæslan hefur auk­ist mikið og hvað það er tekið miklu fastar á kyn­ferð­is­of­beldi. Ég fann aldrei fyrir óör­yggi á meðan ég var þar.“

Karlmenn þurfa að vera óhræddari við að stíga fram

Spurður hvort honum finn­ist tekið öðru­vísi á nauðg­unum á karl­mönnum en konum segir Sveinn Rúnar að því miður haldi hann að sú sé ennþá raunin.

Karlmenn þurfa að vera óhrædd­ari við að stíga fram.

„Ef við tökum til dæmis umræð­una út frá #metoo þá er óskap­lega lítið rætt um það áreiti sem vissu­lega er til staðar innan sam­fé­lags sam­kyn­hneigðra,“ segir hann.

„Það er enn þá ein­hvern veg­inn við­horfið að vegna þess að tveir karl­menn eigi í hlut sé þetta ekk­ert svo alvar­legt af því að karl­menn séu nú alltaf til í kyn­líf. Það þarf að opna þá umræðu meira og karl­menn þurfa að vera óhrædd­ari við að stíga fram. Nokkrir hafa nú þegar gert það en ég held að það séu miklu, miklu fleiri sam­kyn­hneigðir karl­menn sem hafa orðið fyrir áreiti og nauðg­unum heldur en hefur komið upp á yfir­borðið. Ef þú ert í minni­hluta­hóp þá ertu hrædd­ari við að stíga fram vegna for­dómanna, það er bara stað­reynd og það þarf að breyt­ast.“

Mynd / Arnþór Birk­is­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ