Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Lifði í stöðugum ótta

James McDaniel varð fyrir kyn­ferð­is­of­beldi á stúd­enta­görðum Háskóla Íslands eftir hrekkja­vökupartí haustið 2016. Árás­ar­að­il­inn var kven­kynsnem­andi við Háskól­ann sem James hafði farið á nokkur stefnu­mót við laus­lega en þekkti ekki náið.

Lifði í stöðugum ótta
James McDaniel

Það tók James átta daga að kom­ast í sam­band við rétta aðila innan Háskól­ans eftir að hann ákvað að til­kynna brotið og nið­ur­staða Fagráðs háskól­ans um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi, eftir margra mán­aða umfjöllun, var að vísa mál­inu frá á þeim for­sendum að James hefði hvorki verið starfs­maður né nem­andi Háskól­ans þegar meint brot átti sér stað.

James seg­ist hafa upp­lifað þessa nið­ur­stöðu Fagráðs­ins sem annað áfall og það hafi leitt til þess að hann hafi ákveðið að hætta námi sínu við Háskól­ann. Hann þurfti einnig að fá þung­lynd­is­lyf í fyrsta sinn á ævinni og seg­ist enn vera að vinna úr afleið­ingum árás­ar­innar og eft­ir­mála hennar.

„Ég var beittur kyn­ferð­is­legu ofbeldi af konu sem var nem­andi við Háskóla Íslands haustið 2016 á stúd­enta­görð­unum,“ útskýrir James.

Ég var virki­lega hræddur við þessa mann­eskju.

„Ég hafði tvisvar áður orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi, í bæði skiptin af hálfu karl­manna, en grafið afleið­ing­arnar og ekki tek­ist á við þær. Í þetta sinn gat ég það ekki. Kannski var þetta kornið sem fyllti mæl­inn, eða þá að ég var bara orð­inn ófær­ari um að grafa til­finn­ingar mínar með árunum. Ég fór að ganga til sál­fræð­ings og í sam­ráði við hann ákvað ég að hafa sam­band við árás­armann­eskj­una á Facebook og reyna að fá hana til að horfast í augu við gerðir sínar. Ég var á þeim tíma að hefja nám í íslensku fyrir útlend­inga og þar sem hún var nem­andi við skól­ann vildi ég tryggja að leiðir okkar lægju ekki saman innan veggja hans. Hún brást ekki vel við þegar ég ræddi þetta við hana og við­brögð hennar hræddu mig og ollu mér næstum enn meiri van­líðan en árásin sjálf. Ég var virki­lega hræddur við þessa mann­eskju.“

Sagðist geta stoppað umsókn um ríkisborgararétt

Á þessum tíma var James að sækja um íslenskan rík­is­borg­ara­rétt og hann segir stúlk­una sem beitti hann ofbeld­inu hafa sagst hafa sam­bönd til að koma í veg fyrir að hann fengi hann, þar sem hún væri vel tengd inn í íslenska valda­stétt. Það hafi enn aukið á van­líðan hans og óör­yggi.

„Ég ótt­að­ist að hún léti verða af þessum hót­unum ef ég færi lengra með málið og lifði í stöð­ugum ótta við að verða vísað úr landi. Ég veit ekki hvort fólk sem aldrei hefur verið í þeirri stöðu að vera inn­flytj­andi sem beittur er ofbeldi getur skilið þessar til­finn­ingar, en þessi ótti varð til þess að ég þorði ekki að kæra málið til lög­regl­unnar, þótt vinir og sam­starfs­fólk hvettu mig ein­dregið til þess.

Ég held að mjög margir hér á Íslandi upp­lifi mikil van­mátt við að reyna að ná fram rétt­læti í kyn­ferð­is­brota­málum og á þeim tíma bara treysti ég mér ekki í þann slag vegna þess hversu brot­inn ég var. Ég ákvað samt að til­kynna árás­ina til Háskól­ans, sem tók átta daga, eins og fram kom í fréttum á sínum tíma, og leiddi á end­anum ekki til neins. Það upp­lifði ég eins og annað ofbeldi og bara gat ekki haldið áfram að sækja tíma í skól­anum, enda var ég sífellt hræddur um að rekast á árás­armann­eskj­una innan stofn­un­ar­innar.“

Eftir árás­ina og við­brögð Háskól­ans við til­kynn­ing­unni um hana hefur James unnið að því að koma á fót hóp fyrir fólk sem hefur svip­aða reynslu og draumur hans er að koma kennslu um hvað kyn­ferð­is­of­beldi feli í sér inn í alla skóla lands­ins.

„Ég held við þurfum að opna umræð­una um sam­þykki í kyn­ferð­is­málum,“ segir hann. „Ég vil reyna að koma fólki í skiln­ing um að sam­þykki nær langt út fyrir kyn­lífs­at­höfn­ina sjálfa, það teng­ist öllum dag­legum sam­skiptum; milli yfir­manna og und­ir­manna á vinnu­stöðum, mili lækna og sjúk­linga, milli fólks í þjón­ustu­störfum og við­skipta­vina og svo fram­vegis. Og það snertir okkur öll. Ég opn­aði Twitter-reikn­ing í nafni átaks­ins, ConsentIceland, þar sem fólk sem vill hjálpa við að koma þess­ari hreyf­ingu á kopp­inn getur haft sam­band og von­andi verður þetta að öfl­ugri hreyf­ingu á næstu árum.“

„Það slær mig að hver ein­asta kona sem hefur hjálpað mér hefur sjálf sögu um að hafa lent í kyn­ferð­is­legu ofbeldi,“ segir James.

Karlar segja þetta ekki samfélagslegt vandamál

James segir við­brögð ann­arra við máli hans um margt hafa komið sér á óvart en það sé þó einkum tvennt sem hann sé mjög hugsi yfir.

„Í fyrsta lagi þá hafa konur verið í algjörum meiri­hluta þeirra sem hafa stutt mig mest, bæði með því að þýða fyrir mig bréfin til Háskól­ans, hlusta á mig, trúa mér og veita mér til­finnninga­legan stuðn­ing. En það slær mig að hver ein­asta kona sem hefur hjálpað mér hefur sjálf sögu um að hafa lent í kyn­ferð­is­legu ofbeldi, flestar oftar en einu sinni og oftar en tvisvar,“ segir James.

Ég hef furðað mig á því að þeir hafa ekki hikað við að hella yfir mig sví­virð­ingum og gera lítið úr reynslu minni.

„Hitt atriðið sem hefur sjokkerað mig dálítið eru við­brögð karl­manna sem hafa tjáð sig um málið við mig. Ég hef furðað mig á því að þeir hafa ekki hikað við að hella yfir mig sví­virð­ingum og gera lítið úr reynslu minni. Einn maður sagði hreint út að hann liti bara á reynslu mína eins og reynslu alkó­hólista af áfengi; þótt ég hefði slæma reynslu af kyn­lífi þýddi það ekki að það væri eitt­hvert sam­fé­lags­legt vanda­mál eða að fólk þyrfti almennt að breyta hegðun sinni. Mér fannst þessi ummæli hans mjög trufl­andi og þau eru eig­in­lega ein ástæða þess að ég ákvað að stíga fram og tjá mig um málið í fjöl­miðlum. Umræðan um sam­þykki, per­sónu­leg mörk, og ofbeldi er allt í einu orðið eitt­hvað sem fólk telur sig mega hafa mis­mun­andi skoð­anir á og rök­ræða frá ýmsum hliðum. Þetta er ekki efni í rök­ræður, þetta er líf okkar og ég veit það af eigin reynslu að þolendur ofbeldis eiga betra skilið.“

James er tví­kyn­hneigður og hann segir að eins mót­sagna­kennt og það hljómi þá hafi það orðið til þess að hann sé tvisvar sinnum meira á varð­bergi og líti á fólk af báðum kynjum sem hugs­an­legt kyn­ferð­is­legt ofbeld­is­fólk.

„Ég veit að mér ætti ekki að líða þannig þótt ég sé tví­kyn­hneigður, en stundum er það þannig sem mér líður eftir það sem ég hef lent í,“ útskýrir hann.

„Eftir síð­ustu árás­ina hætti ég að heilsa fólki með faðm­lagi og mér er illa við að fólk sem ég þekki ekki snerti mig, mér finnst klapp á öxl­ina meira að segja óþægi­legt núorðið. Ég byrj­aði líka að reykja um það leyti sem ég reyndi að ræða við kon­una sem beitti mig ofbeld­inu, en hef verið að reyna að hætta því und­an­farið. Fíkn er leið sem margir þolendur fara til að reyna að lifa með afleið­ingum ofbeldis. Mér finnst að heil­brigð­is­kerfið ætti að horfa meira til þess þáttar í fíkn þar sem lang­tíma­með­ferð hjá geð­lækni eða sál­fræð­ingi er allt of dýr til að venju­legt fólk geti nýtt sér hana. Mér finnst að við getum og ættum að standa okkur betur í þessum mála­flokki.“

Sjá einnig: Karlar eiga alltaf að vera til í kyn­líf

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ