Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ekki annað plöntuklúður

Ekki annað plöntuklúður
Mynd/Reykja­vik.is

Dómnefnd sem hafði það hlut­verk að velja sig­ur­veg­ara í sam­keppni um úti­lista­verk í hinu nýja Voga­hverfi kynnti nið­ur­stöður sínar í gær. Fyrir val­inu varð til­laga hinnar þýsku Karin Sander og „gerir ráð fyrir að tveimur pálmatrjám sé komið fyrir í stórum turn­laga gróð­ur­húsum og að frá þeim stafi ljós og hlýja.“ Um var að ræða eina viða­mestu sam­keppni um úti­lista­verk sem efnt hefur verið til í Reykja­vík og er kostn­að­ur­inn, sem bor­inn er sam­eig­in­lega af Reykja­vík­ur­borg og lóða­eig­endum í Voga­byggð, áætl­aður 140 millj­ónir króna.

Úti­lista­verk í umhverfi okkar eru bráð­nauð­syn­leg og það má með góðum rökum halda því fram að það eigi að vera mun fleiri. Listin auðgar ekki aðeins umhverfi okkar heldur segir hún okkur hver við raun­veru­lega erum. Byggð án listar er á mörkum þess að kall­ast sam­fé­lag. Það er líka algengur mis­skiln­ingur að listin megi ekk­ert kosta. Það ber að meta hug­myndir og vinnu lista­manna til fjár, rétt eins og vinnu verka­manna, lög­manna og ann­arra starf­stétta. 70 millj­ónir í fal­legt lista­verk sem standa mun í ára­tugi íbúum og öðrum veg­far­endum til ánægju og ynd­is­auka er ekki sóun á fjár­munum.

Óhætt er að segja að nið­ur­stöðu dóm­nefnd­ar­innar hafi verið fálega tekið og lík­lega hafa þau sem nefnd­ina skip­uðu ekki séð fyrir sér þau ofsa­fengnu við­brögð sem sig­ur­til­lagan átti eftir að vekja. Fjöl­margir ruku á sam­fé­lags­miðla til að ausa úr skálum reiði sinnar á meðan aðrir keppt­ust við að hafa það í flimt­ingum. Að venju er þar margt og mis­gáfu­legt að finna, svo sem popúl­ísk hróp um að óverj­andi sé að eyða fjár­munum í lista­verk á meðan ein­hver þarna úti býr við skort. Annars staðar má þó rekast á góð og gild umhugs­un­ar­efni.

Þannig bendir sagn­fræð­ing­ur­inn Stefán Pálsson á að víða í borg­inni megi finna lista­verk sem ekki þjóna hlut­verki sínu sem skyldi vegna þess að ekki var hugsað til enda hvernig átti að við­halda þeim svo sómi sé að. Til dæmis hefur kostn­aður við umsýslu Fyssu í Laug­ar­dal orðið til þess að slökkt hefur verið á tækja- og tölvu­bún­aði í ára­tug. Gervi­gos­hver­inn Strókur í Öskju­hlíð hefur legið í dvala í mörg ár af sömu ástæðum og Orku­veitan og Reykja­vík­ur­borg deildu um hvor skyldi standa straum af rekstri Frið­ar­súl­unnar í Viðey.

Þessi atriði virð­ast ekki hafa verið hugsuð til enda í vali dóm­nefnd­ar­innar því morg­un­ljóst er að það er helj­ar­innar verk að halda lífi í risa­vax­inni suð­rænni plöntu á 64. breidd­argráðu. Er nóg að horfa á þyrnum stráða sögu pálmatrjáa á Íslandi, til dæmis í Perlunni forðum daga. Dóm­nefndin las borg­ar­búa heldur ekki rétt þegar hún komst að þess­ari nið­ur­stöðu sinni, því af við­brögð­unum að dæma hafa þeir enga þol­in­mæði fyrir öðru mögu­legu plöntu­klúðri líkt og raunin varð í bragga­mál­inu.

Borgin hefur hins vegar annað tromp í erminni sem lítið hefur verið minnst á í umræð­unni fram til þessa. Hún festi nefni­lega einnig kaup á til­lögu dansks lista­manna­hóps sem felur í sér að einn 30 metra ljósa­staur komi í stað venju­legs staurs við ein­hverja götu eða torg í Voga­byggð. Í umsögn dóm­nefndar segir: „Tillagan er húmor­ísk og bætir ljóð­rænni vídd í hvers­dag­inn í þessu nýja hverfi. Við vissar aðstæður getur ljósið á þessum háa staur verið eins og stjarna yfir byggð­inni.“ Þessu trompi þarf borgin að spila út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ