Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Gott að vita að maður er ekki einn“

Í des­em­ber stofn­aði hin 22 ára Arnrún Berg­ljót­ar­dóttir Instagram-síð­una Undir Yfir­borð­inu og birtir þar við­töl sem hún tekur við fólk á aldr­inum 16-25 ára um and­leg veik­indi. Á skömmum tíma hefur síðan vakið tölu­verða athygli.

„Gott að vita að maður er ekki einn“

Arnrún segir hug­mynd­ina að síð­unni Undir Yfir­borð­inu hafa kviknað eftir að hún sjálf leit­aði sér aðstoðar vegna þung­lyndis og fann ham­ingj­una á ný.

„Ég var búin að vera þung­lynd í um það bil fimm mán­uði þegar ég ákvað að leita mér hjálpar hjá Píeta sam­tök­unum, sem er for­varn­ar­starf gegn sjálfs­vígum. Ég byrj­aði einnig í hóp­með­ferð hjá Stíga­mótum vegna kyn­ferð­is­of­beldis sem ég varð fyrir versl­un­ar­manna­helg­ina árið 2015. Ég fór í veik­inda­leyfi úr vinnu og bjó til mitt eigið end­ur­hæf­inga­prógram sem gjör­sam­lega bjarg­aði and­lega ástand­inu mínu,“ útskýrir Arnrún.

„Hægt og rólega fann ég að ham­ingjan var að blossa upp á ný, mér byrj­aði að líða eins og ég vildi upp­lifa annan dag. En þá byrj­aði ég að hugsa til þeirra sem eru enn þá á sama stað og ég var á. Ég velti því fyrir mér hvernig ég gæti leyft þeim að finna að þau eru ekki ein í þess­ari and­legu bar­áttu. Ég byrj­aði að taka við­töl við ungt fólk sem ég vissi að höfðu gengið í gegnum and­lega erf­ið­leika. Hægt og rólega fóru fleiri að hafa sam­band við mig sem vildu koma í við­tal og núna eru um það bil 200 manns á biðlista og þeim fjölgar með degi hverjum,“ segir Arnrún. Hún bendir áhuga­sömum að skoða Instagram-síð­una og við­tölin sem þar eru að finna, @undir_yfirbordinu.

Hægt og rólega fann ég að ham­ingjan var að blossa upp á ný, mér byrj­aði að líða eins og ég vildi upp­lifa annan dag.

„Með síð­unni langar mig að fræða fólk um mis­mun­andi upp­lifun ungs fólks af geð­sjúk­dómum og and­legum kvillum,“ segir Arnrún sem vonar þá að verk­efnið muni draga úr for­dómum fólks.

Arnrún segir við­tök­urnar hafa verið afar góðar og að fólk hafi greini­lega áhuga á mál­efn­inu. „Fólk er að hvetja mig áfram með því að segja mér að við­tölin og umræðan hefur hjálpað þeim. Um dag­inn sendi ókunn­ugur strákur mér skila­boð þar sem hann tal­aði um að honum fannst Undir Yfir­borð­inu vera „besta Instagram síða sem hefur verið stofnuð hingað til“. Það hvatti mig alveg rosa­lega, því ég á það til að detta niður sjálf og líður eins og þetta hjálpi engum en það er fólk eins og hann sem lætur mig trúa öðru.“

Skammaðist sín fyrir kvíðaröskunina

Að mati Arnrúnar vantar upp á fræðslu og upp­lýs­inga­flæði til ungs fólks um geð­sjúk­dóma og einnig starf­semi heil­ans.

„Heilinn stjórnar öllu, hann bregst við áföllum án þess að við höfum eitt­hvað um það að segja en samt sem áður höfum við lært mjög tak­markað um hann. Ef ég hefði fengið fræðslu á sínum tíma um kvíða­röskun þá hefði ég ekki falið ein­kennin mín í fjögur ár, logið að öllum að kvíða­lyfin mín væru verkja­lyf og sagt að ég væri að fara til læknis þegar ég var í raun­inni að fara til sál­fræð­ings í áfalla­hjálp.“

Það kom mér smá­vegis á óvart hvað öllum hefur liðið vel í við­töl­unum hingað til.

Núna hefur Arnrún tekið við­töl við um 40 ein­stak­linga og birt hluta þeirra. Spurð út í hvort það hafi gengið vel að finna við­mæl­endur og fá þá til að tjá sig segir Arnrún: „Ég hef ekki orðið vör við að við­mæl­end­urnir eigi erfitt með að tjá sig fyrir framan mynda­vél­ina, ég vil trúa því að það sé vegna þess að þau eru búin að vera að bíða eftir að fá að segja sína sögu, að ein­hverjum þykir vænt um þeirra bata­sögu. Það kom mér smá­vegis á óvart hvað öllum hefur liðið vel í við­töl­unum hingað til. Ég held að ég passa mig nefni­lega á að láta þeim líða eins og þau séu ekki ein og minni þau á að ekk­ert sem þau segja mun koma mér á óvart eða í ójafn­vægi.“

Arnrún kveðst vera þakk­lát fyrir allt það fólk sem er til­búið að leggja verk­efn­inu lið og koma í við­tal til hennar. „Ég hef fengið að kynn­ast ótrú­lega sterkum ein­stak­lingum. Það hljómar kannski skringi­lega en mér þykir vænt um alla sem hafa komið til mín í við­tal.“

Síðan Arnrún setti verk­efnið á lagg­irnar í des­em­ber hefur margt fólk haft sam­band við hana og tjáð henni að við­tölin sem hún tekur á birtir á Instagram hafi hjálpað sér. „Það er gott að vita að maður er ekki einn, sama hvað.“

https://www.instagram.com/p/Brg2bnOhLhl/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð