Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Þegir eftir klukkan 10 á kvöldin

Júníus Meyvant hefur mörg járn í eld­inum þessa dag­ana. Ný plata, Across the Borders, kemur út í dag og svo eru það tón­leikar hér á landi í lok jan­úar og byrjun febr­úar. Hann leggur síðan af stað í tón­leika­ferð um Evrópu í febr­úar. Þá er Júníus kom­inn með útgef­anda í Banda­ríkj­unum.

Þegir eftir klukkan 10 á kvöldin
|

„Nýja platan heitir Across the Borders. Það er vísun í að við erum alltaf að leita að nýjum landa­mærum tengdum því sem við gerum í líf­inu og síðan er þetta vísun í þá sem reyna virki­lega bók­staf­lega að leita að nýjum landa­mærum til að kom­ast á betri stað en geta það ekki. Oft erum við þannig gerð að við búum til landa­mæri sem er tengt mann­legu eðli. Við erum hrædd við breyt­ingar og okkur líður vel í sama fari en maður þarf stundum að breyta til til að þroskast,“ byrjar Júníus Meyvant á að útskýra fyrir blaða­manni.
Júníus mun spila og syngja lög af nýju plöt­unni á tón­leikum í Hafn­ar­firði, Vest­manna­eyjum og í Reykja­nesbæ í lok jan­úar og í byrjun febr­úar. „Þetta verða eig­in­lega allt ný lög. Síðan reyni ég alltaf að segja sögur í kringum lögin; mér finnst svo gaman að sögum og ég reyni að hafa þetta aðeins per­sónu­legra en ella í stað þess að bara spila og syngja og hneigja mig síðan.“
Eftir það mun hann halda ásamt hljóm­sveit sinni til Evrópu í febr­úar þar sem hann kemur fram í ýmsum löndum. „Tón­leika­ferðir eru þannig að ég fer þá í rosa rútínu. Þá er eins og ég fari í nokk­urs konar vinnu­búðir. Ég fer alltaf mjög snemma að sofa en ég passa svefn­inn því ann­ars fer röddin í klessu. Ég sleppi öllu nammi­áti því að nammiát fer illa með rödd­ina og passa mig líka á að þegja eftir klukkan 10 á kvöldin. Það er ýmis­legt sem ég leyfi mér ekki á tón­leika­ferðum.“

Júníus Meyvant gerði í vetur útgáfu­samn­ing við banda­ríska útgáfu­fyr­ir­tækið Glassnote Records um útgáfu nýju plöt­unnar í Banda­ríkj­unum og öðrum mark­aðs­svæðum sem útgáfu­fyr­ir­tækið leggur áherslu á. Myndir / Sigga Ella

Nýr útgáfu­samn­ingur
Júníus er á mála hjá íslenska útgáfu­fyr­ir­tæk­inu Record Records sem sér um útgáfu­mál hans hér á landi og í Evrópu. Hann gerði svo í vetur útgáfu­samn­ing við banda­ríska útgáfu­fyr­ir­tækið Glassnote Records um útgáfu nýju plöt­unnar í Banda­ríkj­unum og öðrum mark­aðs­svæðum sem útgáfu­fyr­ir­tækið leggur áherslu á.
„Þessi samn­ingur þýðir að við erum komin með bak­hjarl inn í Banda­ríkin sem er mjög erf­iður mark­aður en við erum hjá þeim í „publ­is­hing-deild­inni“ sem sér um að koma lögum mínum á fram­færi í kvik­myndir og aug­lýs­ingar. Við erum einnig komin með fleiri til að vinna að mínum málum. Ég er með umboðs­mann og tvö bók­un­ar­fyr­ir­tæki (booking agencies) hér og þar en stundum þyrfti maður í raun­inni 10 umboðs­menn. Þetta er allt spurn­ing um hvern maður hefur á bak við sig. Það er hægt að vera með rosa gott efni en það ger­ist ekki neitt ef maður er ekki með rétt fólk. Ég er þess vegna mjög hepp­inn og líka það að hafa fengið samn­ing kom­inn á þennan aldur, en ég er 36 ára, en það er ekki sjálf­gefið því að þetta er oft „youth before talent“-ver­öld.“

Stóð á kross­götum
Júníus býr ásamt eig­in­konu sinni, tveimur börn­unum og hund­inum Prinsi, sem hann kallar Skúla, í Vest­manna­eyjum. „Við erum nýbúin að kaupa þar hús,“ segir Júníus en hann ólst upp í Vest­manna­eyjum og vann lengi sem leið­sögu­maður í ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki for­eldra sinna í Eyjum.
Júníus, sem heitir ann­ars Unnar Gísli Sig­ur­munds­son, seg­ist hafa valið lisamannsafnið Júníus Meyvant fyrir níu árum eða um það leyti sem sonur hans fædd­ist. „Ég stóð þá á kross­götum og var í hljóm­sveit sem hét Jack London. Ég var að fletta nafna­bók, Hvað á barnið að heita?, og sá nafnið Júníus. Mér hefur alltaf þótt Meyvant vera fal­legt og sterkt nafn og ein­hvern veg­inn fór þetta vel saman: Júníus Meyvant. Ég fór að hugsa um hvort ég ætti að láta son minn heita þessu nafni en ég var hins vegar löngu búinn að ákveða að láta hann heita í höf­uðið á pabba mínum. Þannig varð þetta til. Ég vildi lista­manns­nafn sem myndi virka bæði heima og í útlöndum. Það er erfitt fyrir útlend­inga að segja Unnar Gísli Sig­ur­munds­son. Tungan fer í eitt­hvað flipp.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ