Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Spegill á samfélagið og okkur sjálf

Alex­andra Briem, vara­borg­ar­full­trúi Pírata í Reykja­vík, seg­ist lesa mikið af vís­inda­skáld­skap og þá ekki hasars­ins vegna þótt vissu­lega geti hann verið skemmti­legur heldur aðal­lega vegna þeirra áleitnu spurn­inga sem slíkar bók­menntir velta upp. Þetta séu þær bækur sem hafi yfir­leitt mest áhrif á hana.

Spegill á samfélagið og okkur sjálf

„Einn helsti styrk­leiki bók­mennta er að leyfa okkur að setja okkur í spor ann­arra og upp­lifa aðstæður sem eru okkur e.t.v. alla jafna fram­andi og vís­inda­skáld­skapur er kannski sú bók­mennta­grein sem gengur hvað lengst í því,“ útskýrir hún.

„Hann notar ýktar og jafn­vel fjar­stæðu­kenndar aðstæður til að afhjúpa sið­ferð­is­leg álita­mál, aðstæður sem gegna því hlut­verki að skilja hismið frá kjarn­anum og er, þegar best lætur speg­ill á sam­fé­lagið og okkur sjálf. Fyrir mig sem les­anda er mjög mik­il­vægt hvernig slíkur skáld­skapur fær mann oft til að hug­leiða hvað sé rétt og hvað sé rangt með því að velta upp allskyns áleitnum spurn­ingum og hvernig hann getur styrkt mann í eigin sann­fær­ingu eða jafn­vel fengið mann til að skipta algjör­lega um skoðun á ein­hverju. Lest­ur­inn verður þá um leið hálf­gerð sjálfs­skoðun mér finnst skipta máli.“

Spurð um hvaða bækur séu áhrifa­rík­astar nefnir hún bóka­flokk­inn Menn­ingin (Culture) eftir Iain M. Banks. Hann sé efstur á lista fyrir utan dæmi­gerðar bækur eins og Handbók putta­ferða­langs­ins um Vetr­ar­braut-ina (Hitchhikers Galaxy through the Galaxy).

„Þetta eru flóknar bækur sem lýsa sam­fé­lagi sem er svo miklu þró­aðra en það sem við þekkjum að meira að segja áhöfnin á Enter­prise virð­ist vera hálf­gerðir stein­ald­ar­menn í sam­an­burði,“ lýsir hún.

Hvenær má svo grípa inn í nátt­úru­lega þróun ann­arra sam­fé­laga?

„Í bók­unum hefur mann­fólkið sest að í flennistórum hring­laga bygg­ingum og býr við gríð­ar­legt sjálf­stæði í einka­líf­inu, sem sést m.a. af því hvernig það getur skipt um kyn og aldur og jafn­vel búið í algjörum sýnd­ar­veru­leika á meðan nán­ast öllu sam­fé­lag­inu er stýrt af gervi­greindum, sem tak­markar aftur áhrif fólks í sam­fé­lag­inu. Þarna er því verið að velta upp alls konar áhuga­verðum spurn­ingum eins og t.d. hversu rétt­læt­an­legt það sé að setja stjórn­ina í hendur gervi­greindar, ef það rænir okkur mögu­leik­anum á frum­kvæði og vexti?

Og ef það er þannig að fólk hefur frelsi í eigin lífi en mögu­leik­arnir til að láta til sín taka eru fáir, er það líf þá mik­ils virði? Hvenær má svo grípa inn í nátt­úru­lega þróun ann­arra sam­fé­laga? Hvert er loka­mark­mið sið­menn­ing­ar­innar? Og svo fram­vegis. Þannig að bæði er verið að skoða fram­sæknar og jákvæðar hug­myndir í þessum bóka­flokki eftir Banks en líka hætt­urnar sem geta fylgt þeim.“ Alex­andra kveðst ein­dregið mæla með honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð