Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Misbýður boðskapur Marie Kondo

Netflix-þættir til­tekt­ar­gúrus­ins Marie Kondo hafa notið mik­illa vin­sælda hér­lendis, en ekki eru þó allir sáttir. Þeirra á meðal er leik­konan Maríanna Clara Lúth­ers­dóttir sem finnst Kondo fara gjör­sam­lega yfir strikið.

Misbýður boðskapur Marie Kondo
||
Maríönnu Clöru Lúth­ers­dóttur er nóg boðið.

„Ertu að url­ast yfir óreið­inu á heim­ilnu? Þá gæti verið orðið tíma­bært að grisja og ein besta aðferðin til þess að fara í gegnum dótið og losa sig við það sem veitir þér enga gleði.“ Þannig hljómar í stuttu máli heim­speki jap­anska til­tekt­ar­gúrús­ins Marie Kondo sem hefur á síð­ustu árum farið sann­kall­aða sig­ur­för um heim­inn, m.a. með bók sinni „The Life Changing Magic of Tidying Up“ og svo í nýlegum Netflix-þætti, Tydying Up With Marie Kondo (Taktu til með Marie Kondo) þar sem Maire beitir þess­ari töfrafor­múlu, svo­kall­aðri KonMarie-aðferð til að hjálpa drösl­urum úr ógöngum. Íslend­ingar hafa ekki farið var­hluta af þessum vin­sældum, hér hefur bæði verið gott áhorf á þátt Kondo og bók hennar, Taktu til í líf­inu selst vel.

„Listir og bækur ganga eftir öðrum lög­málum. Þær eiga ekki aðeins að veita manni gleði.“

Þó eru ekki allir jafn yfir sig hrifnir. Ein þeirra, leik­konan og bók­mennta­fræð­ing­ur­inn Maríanna Clara Lúth­ers­dóttir, segir að sér hafi hrein­lega orðið illt í hjart­anu þegar hún heyrði hvernig Kondo ráð­leggur fólki að fara í gegnum bæk­urnar sínar. „Ég vissi ekki hvort ég átti að hlæja og gráta,“ segir hún. „Það að maður eigi að halda bók­unum upp brjóst­inu, slá á þær með fingrinum og spyrja sig hvort þær veiti manni gleði eða ekki og nota það sem ein­hvern mæli­kvarða á mik­il­vægi bók­mennta er algjör­lega út í hött. Þessi pæl­ing að maður eigi að losa sig við allt sem veitir manni ekki gleði eða gagn eða vinnur ekki að því að koma manni áfram í líf­inu á kannski við um sokka en ekki listir. Það er af og frá. Listir og bækur ganga eftir öðrum lög­málum. Þær eiga ekki aðeins að veita manni gleði, heldur vekja upp sorg, ótta og bara alls konar til­finn­ingar, gera mann ringlaðan, opna fyrir manni nýjar víddir og setja mann í spor ann­arra og það er ekki hægt að smætta það allt niður í tvær kröfur,“ segir hún ákveðin. „Það er bara sorg­legt og rangt.“

Gerir umhverfinu engan greiða

Met­sölu­höf­und­ur­inn og sjón­varps­stjarnan Marie Kondo er ekki allra.

Þess utan segir Maríanna að það sé út í hött að halda því fram að bóka­kost­ur­inn á heim­il­inu eigi að end­ur­spegla þá mann­eskju sem hús­ráð­andi hefur að geyma, eins og Kondo boðar af miklum eld­móð. „Ég veit þá eig­in­lega ekki hvaða álykt­anir væri hægt að draga af mínum bókum. Vissu­lega er hægt að sjá að ég hef áhuga á garð­yrkju og mat­reiðslu en það segir alls ekki alla sög­una og í sann­leika sagt er ég sátt við það. Ég vil nefni­lega ekk­ert endi­lega að fólk sjái á bók­unum hvers konar mann­eskja ég er nákvæm­lega og hvaða skoð­anir ég aðhyllist. Svo er það nú önnur saga að það væri frekar sorg­legt ef ég ætti bara bækur eftir fólk sem ég er sam­mála. Það myndi heldur betur smætta minn veru­leika.“ Fyrir utan það segir hún ákveðna þver­sögn fólgna í þessu öllu. Sem dæmi eigi hún hand­bók um hvernig eigi að kenna öðrum að keyra þótt hún sé sjálf ekki með bíl­próf og viti ekki einu sinni hvernig hún eign­að­ist bók­ina. Bókin end­ur­spegli því engan veg­inn hennar per­sónu­leika en veki alltaf með henni gleði. „Og hvað á ég þá að gera, henda bók­inni eða eiga hana?“

Maríanna við­ur­kennir að eflaust gangi Kondo gott til og jú, eflaust sé eitt­hvað fal­legt við minimal­ískar skoð­anir hennar – svo langt sem þær nái. „Já, já. Þær eru alveg góðar og gildar til að draga neyslu­hyggju. En, eins og mér hefur stundum sýnst, t.d. af lífs­stíls­blöðum, þá hendir fólk dót­inu sínu ein­göngu til þess að kaupa sér nýtt, mínimal­ískt dót og þá get ég ekki séð að við gerum umhverf­inu greiða. Sjálf er ég miklu frekar fyrir að geyma og end­ur­nýta, breyta og bæta. Og jú, því fylgir vissu­lega ein­hver óreiða en ætli megi þá ekki bara segja að óreiðan á heim­il­inu end­ur­spegli mína innri mann­eskju.“

Önnur og betri ráð

Hún bendir á það séu líka til ýmsar aðrar góðar og gildar aðferðir við að halda heim­il­inu, þ.m.t. bók­unum í röð og reglu. „Mitt ráð er ein­falt: Tvö­faldar hillu­ráðir. Maður felur þá bara þær bækur, sem kom­ast ekki fyrir, á bak við hinar. Marie yrði eflaust mjög ósátt við það en mér finnst sú lausn betri en að losa mig við allar bækur sem end­ur­spegla ekki minn innri mann eða færa mér ekki ham­ingu,“ segir hún og bætir ákveðin við: „Á mínu heim­ili verða bæk­urnar a.m.k. það síð­asta sem fer.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ