Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Flugmiðinn gæti lækkað um allt að helming

Áætla að nið­ur­greiðslur inn­an­lands­flugs fyrir íbúa lands­byggð­ar­innar kosti um millj­arð kóna.

Flugmiðinn gæti lækkað um allt að helming
|

Til skoð­unar er að ríkið nið­ur­greiði flug­far­gjöld fyrir íbúa á afskekktum svæðum lands­ins, þar með talið Akureyri og öðrum dreif­býl­is­kjörnum. Allt að 60 þús­und manns myndu njóta slíkra nið­ur­greiðslna. Verði þessi leið, sem gjarnan er nefnd skoska leiðin, nið­ur­staðan og farið verði eftir til­lögum starfs­hóps um nauð­syn­legar fram­kvæmdir á flug­völlum lands­byggð­ar­innar gæti kostn­að­ur­inn farið upp í þrjá og hálfan millj­arð.

Njáll Trausti Frið­berts­son og Reinhard Reyn­is­son.

Starfs­hópur undir for­mennsku Njál­s­Trausta Frið­berts­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, skil­aði á dög­unum af sér skýrslu undir heit­inu „Upp­bygg­ing flug­valla­kerf­is­ins og efl­ing inn­an­lands­flugs­ins sem almenn­ings­sam­gangna“. Helstu úrlausn­ar­efni starfs­hóps­ins voru ann­ars vegar að efla inn­an­lands­flug með þeim hætti að bæta aðgengi íbúa lands­byggð­ar­innar að mið­lægri þjón­ustu höf­uð­borg­ar­innar. Hins vegar var fjallað um hvernig best væri að standa að við­haldi og nýfram­kvæmdum á flug­völlum lands­ins.

„Það er mat for­ráða­manna Icelandair að smæð flug­hlaða og skortur á flug­stæðum á flug­völl­unum á Akureyri og Egils­stöðum sé stærsta ógn við öryggi flugs til og frá Íslandi.“

Þessi nið­ur­greiðslu­leið eða skoska leiðin eins og hún er kölluð er það verk­efni sem atvinnu­þró­un­ar­fé­lögin í kringum landið tóku upp á sína arma fyrir um tveimur árum síðan.

„Við kynntum þetta í fram­hald­inu fyrir þing­mönnum og for­manni sam­göngu­nefndar og héldum svo ráð­stefnu í Reykja­vík fyrir rúmu ári síðan. Mark­miðið var að koma þessum hug­myndum á fram­færi við póli­tík­ina. Því má segja að þessi vinna komi að því leyti frá þró­un­ar­fé­lög­unum,“ segir Reinhard Reyn­is­son, fram­kvæmda­stjóri Atvinnu­þró­un­ar­fé­lags Þing­ey­inga, í sam­tali við Mannlíf. Hann var fund­ar­stjóri á kynn­ing­ar­fundi um skýrslu starfs­hóps­ins á Húsavík á dög­unum en Njáll Trausti var fram­sögu­maður.

Telur breiða samstöðu á þingi

Njáll Trausti sagð­ist eftir fund­inn vera bjart­sýnn á að skoska leiðin verði farin og hann skynj­aði sam­stöðu um málið í þing­inu. Hann benti jafn­framt á mik­il­vægi þess að frá og með 1. jan­úar 2020 verði milli­landa­flug­vell­irnir, Kefla­vík­ur­flug­völlur, Reykja­vík­ur­flug­völlur, Akur­eyr­ar­flug­völlur og Egils­staða­flug­völlur skil­greindir sem kerfi flug­valla með sam­eig­in­legan kostn­að­ar­grunn og að Isavia ohf. verði falin fjár­hags­leg ábyrgð á rekstri, við­haldi og upp­bygg­ingu þeirra; og að fjórum árum verði milli­landa­flug­vell­irnir og aðrir flug­vellir í grunn­neti hluti af sama flug­valla­kerfi. Þessar hug­myndir byggja á hug­mynda­fræði sem norsk stjórn­völd hafa til­einkað sér með sína flug­velli í gegnum Avinor, félag sem er eigu norska rík­is­ins. Avinor rekur 45 flug­velli í Noregi og eru tekjur af stærri flug­völl­unum not­aðar í rekstur á minni völlum.

Uppsöfnuð viðhaldsþörf vegna niðurskurðar

Njáll Trausti hefur vakið sér­staka athygli á því að á sama tíma og umferð um Kefla­vík­ur­flug­völl hefur marg­fald­ast frá árinu 2010 hefur upp­bygg­ing á vara­flug­völlum í Reykja­vík, Akureyri og á Egils­stöðum ekki fylgt þeirri þróun.

Í skýrslu starfs­hóps­ins er minnst á vax­andi þörf fyrir nýfram­kvæmdir á vara­flug­völl­unum svo sem við gerð akst­ur­brauta með­fram flug­brautum og að flug­véla­stæðum verði fjölgað á Akureyri og Egils­stöðum. Einnig er bent á nauð­syn þess að byggðar séu upp nýjar flug­stöðvar í Reykja­vík og á Akureyri. Njáll Trausti segir að það hafi leitt til þess að upp­söfnuð við­halds­þörf á flug­völlum lands­ins utan Kefla­vík­ur­flug­vallar er talin vera um 2 millj­arðar.

Umsögn Icelandair við sam­göngu­á­ætlun skefur ekki utan af því í þessu sam­hengi: „Það er mat for­ráða­manna Icelandair að smæð flug­hlaða og skortur á flug­stæðum á flug­völl­unum á Akureyri og Egils­stöðum sé stærsta ógn við öryggi flugs til og frá Íslandi,“ segir í umsögn­inni.

Skoska leiðin í hnotskurn

Heimilt verði að nið­ur­greiða far­gjöld íbúa og nem­enda frá afskekktum svæðum til að jafna aðgengi þeirra að þjón­ustu sem ekki er í boði í heima­byggð og til að gera þeim kleift að taka þátt í sam­fé­lag­inu sem fyr­ir­finnst á þétt­býlli svæðum. Hægt er að nið­ur­greiða hvern far­miða hvort heldur sem er um fasta upp­hæð eða fast hlut­fall af far­gjald­inu. Í Skotlandi var hlut­fallið hækkað 1. jan­úar 2016 úr 40 í 50%.

Nið­ur­greiðslan nær aðeins til ein­stak­linga sem búa á svæð­inu, ekki til fyr­ir­tækja eða ein­stak­linga sem vilja sækja svæðið heim. Jafn­framt er hægt að setja krónu­tölu­þak á hvern ein­stak­ling eða hámarks­fjölda ferða sem eru nið­ur­greiddar. Þannig er til dæmis hægt að ákveða að hver ein­stak­lingur fái að hámarki nið­ur­greiddar fjórar ferðir til að byrja með.

Ef fylgt yrði for­dæmi Skota og nið­ur­greiðslan miðuð við 50 pró­sent yrði með­al­verð far­miða í kringum 12.500 krónur. Miðað við for­sendur starfs­hóps­ins sem byggir á reynslu Skota munu um 41 þús­und ein­stak­lingar nýta sér þessa þjón­ustu á ári hverju sem þýðir að árlegur kostn­aður yrði rétt rúmur millj­arður. Ef allir 60 þús­und íbú­arnir sem úrræðið nær til nýta sér það yrði kostn­að­ur­inn einn og hálfur millj­arður.

Útfærsla á leið­inni, það er til hvaða land­svæða nið­ur­greiðslan muni ná, hefur ekki verið kynnt en lík­lega verður miðað við ákveðna vega­lengd frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hefur verið talað um 200 eða 300 kíló­metra með sér­stökum und­an­tekn­ingum, svo sem Vest­manna­eyjum.

Texti / Egill Páll Egilsson og Magnús Geir Eyj­ólfs­son
Mynd / Isavia

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð