Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Í samfélagi jöfnuðar ríkir friður

Í samfélagi jöfnuðar ríkir friður
Verkfall mót­mæli kjara­bar­átta

Stærstu verka­lýðs­fé­lög lands­ins hafa vísað kjara­deilum sínum til rík­is­sátta­semj­ara. Forysta þeirra þykir rót­tæk og sumir nefna þau sem þar eru bylt­ing­ar­sinna. Hugs­an­lega vegna þess að þau nota orð eins og stétta­bar­átta, kúgun, frelsi og jafn­rétti. Kröfur þeirra snú­ast um að tryggja lág­marks­laun sem lifa má af. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem lands­menn heyra það slag­orð í aðdrag­anda samn­inga­við­ræðna. Áratugum saman hefur verka­lýðs­for­ystan hrópað á meiri jöfnuð, hækkun lág­marks­launa og gert kröfur um að laun fylgi lífs­kjara­þróun. En af ein­hverjum ástæðum stöndum við alltaf á sama stað. Stór hópur fólks getur ekki lifað af launum sínum og býr við heilsu­spill­andi aðstæður. Samt erum við öll sam­mála um að í okkar þjóð­fé­lagi eigi að hafa vel­ferð þegn­anna að leið­ar­ljósi.

Hvað er það þá sem klikkar? Oft hefur verið samið um þó nokkrar launa­hækk­anir en það er eins og menn hafi ekki fyrr séð þá krónu­tölu prent­aða á launa­seð­il­inn en þær hverfa í þá botn­lausu hít útgjalda sem blasir við flestu launa­fólki hér á landi. Er það þá hag­kerfi okkar sem er bilað? Sumir segja að krón­unni sé um að kenna, aðrir að ríkið finni ævin­lega leið til að seil­ast dýpra í vasa almenn­ings hafi það grun um að þar leyn­ist fáeinir smá­aurar og enn aðrir að valda­stéttin, menn­irnir með pen­ing­ana, sjái til þess að eng­inn nái að rísa of hátt áður en hann er sleg­inn niður aftur. Það er erfitt að skilja þennan und­ar­lega víta­hring og einnig hvernig smátt sam­fé­lag eins og okkar geti orðið jafn­marglaga og órétt­látt og raun ber vitni.

Tökum til dæmis hús­næð­is­málin. Hér á landi hefur ávallt verið erfitt að koma sér upp þaki yfir höf­uðið og leigu­verð er hátt. Ungt fólk sem er að byrja búskap hefur alltaf mátt búast við erf­ið­leikum með að finna íbúð, halda henni og borga þá leigu sem upp er sett og fjöl­skyldur þar sem ein fyr­ir­vinna er hafa alla tíð búið við gíf­ur­legt óör­yggi hvað þetta varðar. Eitt sinn var hér bygg­ing­ar­fé­lag stutt af hinu opin­bera er gerði tekju­lágum kleift að kaupa íbúðir á góðu verði en það var lagt niður vegna þess að hinn frjálsi fast­eigna­mark­aður átti að tryggja öllum aðgang að þeim sjálf­sögðu mann­rétt­indum að eiga stað til að búa á. Nú horf­umst við í augu við að ástandið er verra en nokkru sinni. Þessu verður að breyta. Mann­kyns­sagan hefur kennt okkur að hinir kúg­uðu rísa alltaf á end­anum upp gegn kúg­urum sínum. Þegar órétt­lætið er orðið hróp­andi er stutt í að upp úr sjóði. Í sam­fé­lagi jöfn­uðar ríkir friður því þar fá allir notið sín. Tæki­færin eru opin og menn geta með vinnu sinni og fram­lagi tryggt börnum sínum ögn betra líf en þeir nutu sjálfir. Þannig eru vel­ferð­ar­sam­fé­lög upp­byggð. Komandi kjara­samn­ingar munu því lík­lega skera úr um hvort á Íslandi ríki vel­ferð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð