Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Tekur dauðann í gegn á skemmtilegan hátt

Charlotte Bøving, leik­rita­höf­undur og leik­kona, samdi ein­leik­inn „Ég dey“ sem sýndur er á Nýja sviði Borg­ar­leik­húss­ins. Charlotte skoðar í sýn­ing­unni lífið út frá sjón­ar­hóli dauð­ans og dauð­ann út frá frá sjón­ar­hóli lífs­ins og notar ýmis form í sýn­ing­unni svo sem tón­list og dans.

Tekur dauðann í gegn á skemmtilegan hátt
||
Charlotte Bøving segir að í sýn­ing­unni sé hún að við­ur­kenna eigin dauð­leika. „Ég leyfi mér að gera hluti sem ég hef aldrei gert áður því ég er hvort sem er að fara að deyja.“

Charlotte Bøving seg­ist hafa verið orðin fimm­tug þegar hún fór að velta fyrir sér að hún myndi ein­hvern tím­ann deyja og seg­ist hafa furðað sig á því hvernig hún gat kom­ist hjá því í svona langan tíma að horfast í augu við dauð­ann.
„Ég var svo hissa á að ég hafði ekki tekið meira eftir dauð­anum. Ég fór að spá í dauð­ann og hvers vegna ég hafði ekki velt honum fyrir mér. Ég fór meðal ann­ars að spá í hvernig dauð­inn birt­ist. Það getur til dæmis verið eins og að ganga inn í graf­hýsi að fara inn í mat­vöru­versl­anir. Þar er allt dautt svo sem kjötið í kjöt­borð­inu og græn­metið. Þetta er allt á fyrsta eða öðru stigi rotn­unar. Ég var að reyna að setja kött­inn í megrun og þá fór hann að koma heim með dauða fugla og allt í einu birt­ist dauð­inn inni á stofu­gólf­inu hjá mér. Svo er svo margt í tungu­mál­inu sem vísar í dauð­ann svo sem þegar sagt er að eitt­hvað sé „drep­fyndið“. Við tölum hins vegar sjaldan um dauð­ann, það er eins og hann sé ekki til.“

Charlotte segir að í sýn­ing­unni sé hún að við­ur­kenna eigin dauð­leika. „Ég leyfi mér að gera hluti sem ég hef aldrei gert áður því ég er hvort sem er að fara að deyja,“ heldur hún áfram og bætir við að það sé gott að hugsa um dauð­ann eins og ákveðna end­ur­fæð­ingu. „Ég dey en lífið heldur áfram í börn­unum. Ég vona að ég deyi á undan þeim.“

Til­gangur lífs­ins að elska, þroskast og stækka
Charlotte seg­ist í sýn­ing­unni skoða lífið út frá sjón­ar­hóli dauð­ans og dauð­ann út frá sjón­ar­hóli lífs­ins. Hver er til­gangur lífs­ins að hennar mati? „Til­gang­ur­inn er nátt­úr­lega per­sónu­bund­inn en fyrir mig er hann svo sem að elska en líka að þroskast og stækka. Það er hægt að stækka út á við eða inn á við eða hjálpa öðrum við að stækka. Ég fatt­aði það fyrir löngu að ég þarf að vera skap­andi og fylgja hug­myndum mínum eftir og deila þeim og ég deili þeim í gegnum leik­sýn­ingar. Þetta er þriðji ein­leik­ur­inn minn og ég fjalla alltaf um eitt­hvað per­sónu­legt og von­andi end­ur­speglar það ann­arra manna líf. Fólk fær bara mína sýn eða mínar hug­leið­ingar og svo getur það búið til sín eigin svör,“ segir hún en hinir ein­leikir Charlotte eru „Hin smyrj­andi jóm­frú“ og „Þetta er lífið – og nu er kaf­fen klar“. Hún var til­nefnd til Grímunnar fyrir báðar sýn­ing­arnar.

„Það getur til dæmis verið eins og að ganga inn í graf­hýsi að fara inn í mat­vöru­versl­anir. Þar er allt dautt svo sem kjötið í kjöt­borð­inu og græn­metið. Þetta er allt á fyrsta eða öðru stigi rotn­unar.“

Dauðinn syngur
Þrátt fyrir að dauð­inn sé alvar­legt umfjöll­un­ar­efni þá getur fólk haft gaman af sýn­ing­unni og hlegið en Charlotte notar gjarnan kímni­gáf­una í verkum sínum. „Ég syng nokkur lög,“ segir hún og tekur sem dæmi að eitt lag­anna sé kab­ar­ett­lag þar sem dauð­inn er að sprella. „Þetta er geggjað „show“. Þetta er alls konar – ég leyfi mér að leika mér með alls konar form í sýn­ing­unni. Það er líka dans í sýn­ing­unni og þar kemur beina­grind við sögu. Ég skoða dauð­ann í alls konar myndum. Ég segi meðal ann­ars litlar sögur um mína eigin upp­lifun á dauð­anum. Við upp­lifum öll sömu hluti í líf­inu hvort sem það er gleði eða sorg.“

Charlotte segir að með þess­ari sýn­ingu vilji hún hafa áhrif á fólk. „Ég er engin gúrú en ég vona alltaf að sýn­ing­arnar mínar geti haft áhrif á ein­hvern hátt. Ég held að þetta sé skemmti­leg sýn­ing en um leið líka djúp. Ég er ekki að gera grín að dauð­anum þannig en það er hægt að segja að ég taki dauð­ann í gegn á skemmti­legan hátt. Fólk ætti að fara á sýn­ing­una áður en það deyr.“

Myndir / Saga Sig

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð