Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fjölskyldufyrirtæki í áratugi

Virðing fyrir hinum látna er alltaf í for­grunni hjá fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu Útfar­ar­þjón­ustu Rúnars Geir­munds­sonar enda er leið­ar­ljós þess hlýja, auð­mýkt og virð­ing.

Fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Helga Katrín Stef­áns­dóttir við drag­ster­inn Batman. Ingólfur Arn­ars­son er eig­andi þessa trylli­tækis. Vélin er 11

Gott orð­spor skiptir mjög miklu máli í útfar­ar­þjón­ustu og það veit Rúnar Geir­munds­son mæta­vel enda starfað í grein­inni í nær fjóra ára­tugi. Hann hóf störf hjá Kirkju­görð­unum árið 1983 en stofn­aði Útfar­ar­þjón­ustu Rúnars Geir­munds­sonar árið 1990.

Rúnar Geir­munds­son.

„Virðing fyrir hinum látna er alltaf í for­grunni hjá okkur. Þannig skiptir í raun ekki máli hvaða trú við­kom­andi aðhyllt­ist eða hvort við­kom­andi hafi verið trú­laus. Leið­ar­ljós okkar er hlýja, auð­mýkt og virð­ing, algjör­lega óháð því hvaða ein­stak­lingur á hlut að máli,“ segir hann.

Útfar­ar­þjón­usta Rúnars Geir­munds­sonar er elsta starf­andi útfar­ar­þjón­ustan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hefur hann veitt fyr­ir­tæk­inu for­stöðu alla tíð. Fyr­ir­tækið er sann­kallað fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki en hann og eig­in­kona hans, Kristín Sig­urð­ar­dóttir, eiga það saman. Hjá þeim starfa svo synir þeirra tveir, Elís og Sigurður.

Gott orðspor spyrst út

Þegar and­lát ber að garði er mik­il­vægt að hafa sam­band við útfar­ar­þjón­ustu sem fyrst að sögn Rúnars. „Fyrsta skrefið er að flytja hinn látna af dán­ar­stað í lík­hús og næst hefst und­ir­bún­ingur kistu­lagn­ing­ar­innar. Daginn eftir heim­sækir útfar­ar­stjór­inn oft­ast aðstand­endur sem leggja yfir­leitt fram óskir sínar varð­andi fram­kvæmd kistu­lagn­ingar og síðan jarð­ar­farar. Um leið er yfir­leitt val­inn prestur eða athafn­ar­stjóri og allar helstu athafnir eru tíma­settar auk þess sem graf­ar­taka eða bálför er bókuð.“

Að því loknu þarf að taka ákvarð­anir um hvaða verk­efni falla í hlut starfs­manna. „Við sjáum um allt er lýtur að und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd útfara, t.d. höldum við utan um öll sam­skipti við aðstand­endur, tón­list­ar­fólk, kirkjur, blóma­búðir, kirkju­garða og í raun alla þá sem koma að útför­inni.“

„Við leggjum mesta áherslu á að taka til­lit til þess að fólk er í sárum eftir ást­vin­ar­missi.“

Eftir allan þennan tíma í grein­inni og þá reynslu sem hann og aðrir starfs­menn hafa öðl­ast gegnum árin, er ekki við öðru að búast en vönd­uðum vinnu­brögðum og fag­mann­legri þjón­ustu. „Ef maður sinnir sínu starfi vel er það fljótt að spyrj­ast út,“ segir Rúnar. „Við leggjum mesta áherslu á að taka til­lit til þess að fólk er í sárum eftir ást­vin­ar­missi. Því þurfum við að gæta að því sem við gerum og segjum og eins að nálg­ast fólk með hlýju og auð­mýkt. Það getur t.d. verið mjög erfitt að bjóða fólki þjón­ustu gegn greiðslu við þessar aðstæður en þetta hefur lærst í gegnum árin og við tökum mikið til­lit til þess hvernig aðstæður eru hverju sinni,“ bætir hann við.

Fallegar kistur á góðu verði

Útfar­ar­þjón­usta Rúnars Geir­munds­sonar leggur ekki bara áherslu á vand­aða þjón­ustu heldur líka á fal­legar kistur á sann­gjörnu verði sem stand­ast ströng­ustu kröfur um umhverf­is­vernd að sögn Rúnars. „Hefð­bundnu hvítu og umhverf­is­vænu kist­urnar eru algengastar en það er alltaf spurt um harð­viðar kistur, t.d. eik eða mahóní.“

Fyrir stuttu síðan létu þau, fyrst íslenskra útfar­ar­stofa, hanna og smíða íslenskar kistur úr íslenskum viði í sam­starfi við Þorstein B. Jón­munds­son tré­smið. „Um er að ræða sér­staka kistu og duft­ker sem er hannað út frá hug­mynd­inni um íslenska kistu úr alís­lenskum við til brennslu og jarð­setn­ingar,“ útskýrir Rúnar. „Kist­urnar eru úr viði sem er unn­inn og þurrk­aður í Hall­orms­staða­skógi. Kistan er mjög fal­leg, úr grófum viði, ólökkuð og nátt­úr­leg.“

Þekkir ekkert annað

Annar sonar þeirra hjóna er Elís Rún­ars­son sem hefur þrátt fyrir ungan aldur starfað hjá fyr­ir­tæk­inu í rúma tvo ára­tugi.

Elís Rún­ars­son.

„Ég man ekki eftir öðru en að sjá föður minn starfa í þessu fagi enda var fyr­ir­tækið stofnað þegar ég var níu ára gam­all. Fyrir mér var þetta því alltaf hefð­bundið starf þótt ég hafi vissu­lega gert mér snemma grein fyrir því að þetta starf væri mjög krefj­andi og krefð­ist vand­virkni.“

Fyrstu verk­efni Elísar hjá fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu voru að þrífa bíla og ann­ast ein­föld við­vik. Síðar tók hann þátt í dag­legum störfum með föður sínum og Sigurði eldri bróður sínum. Und­an­far­inn ára­tug hefur Elís svo starfað dag­lega við hlið föður síns við útfara­þjón­ustu og allan almennan rekstur. „Það eru for­rétt­indi að fá að leggja sitt af mörkum við að aðstoða fólk í krefj­andi aðstæðum og að geta boðið fram reynslu okkar og per­sónu­legu þjón­ustu fjöl­skyldu­fyr­ir­tækis á erf­ið­ustu stundum í lífi fólks,“ bætir Elís Rún­ars­son við.

Siðareglur mikilvægar

Utan rekstur útfar­ar­þjón­ust­unnar er Rúnar Geir­munds­son einnig for­maður Félags íslenskra útfar­ar­stjóra. Félagið hefur verið starf­rækt í yfir ára­tug og hefur Rúnar verið for­maður þess allt frá upp­hafi. Hann segir aðal­til­gang félags­ins vera að skapa vett­vang til að halda utan um sið­reglur útfar­ar­stjóra. „Starf mitt felst aðal­lega í því að halda utan um funda­starf og fram­fylgja reglum og sam­þykktum aðal­funda. Ég sæki einnig fundi erlendis enda á félagið í tals­verðum erlendum sam­skiptum. Siða­reglur evr­ópskra útfara­stjóra eru til að mynda grunnur íslensku siða­regln­anna,“ segir Rúnar. Ekki er laga­skylda fyrir útfar­ar­stjóra að vera í félag­inu að hans sögn en nán­ast allir starf­andi útfar­stjórar eru þó félags­menn og hafa und­ir­ritað siða­reglur félags­ins.

Nánari upp­lýs­ingar má finna á utfarir.is eða í síma 567 9110 allan sól­ar­hring­inn, alla daga árs­ins.

Útfar­ar­þjón­ustu Rúnars Geir­munds­sonar
í sam­starfi við Stúdíó Birtíng

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur