Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Á komandi ári ætla ég …

Á komandi ári ætla ég …

Nú þegar við erum í þann mund að sprengja inn nýja árið eru margir farnir að leiða hug­ann að ára­móta­heitum. Sumir ætla að setja sér heilsu­tengd mark­mið; til dæmis að hætta að reykja, borða holl­ari mat eða hreyfa sig meira, á meðan aðrir ætla að verja meiri tíma með fjöl­skyldu og vinum, ferð­ast meira eða læra eitt­hvað nýtt. Þó að flest okkar strengi ára­móta­heit á hverju ári eru færri sem standa við þau. Ein­hverjir munu eflaust strengja sömu heit í ár og þeir strengdu í fyrra vegna þess að þau hafa ekki enn náðst. Lyk­ill­inn að því að standa við heitin er að ætla sér ekki um of og hér eru nokkur ráð í við­bót sem gott er að hafa í huga.

Ekki strengja ára­móta­heit bara til þess að gera það og ekki ákveða þau korter í mið­nætti, slík heit eru yfir­leitt lít­ils virði. Gefðu þér tíma til að hugsa þig vel um og settu þér mark­mið sem skipta þig raun­veru­lega máli. Reyndu jafn­framt að láta ekki skoð­anir og gildi ann­arra hafa áhrif á val þitt því til þess að ná árangri verður þú að vilja það.

Hafðu mark­miðin nákvæm því það gerir þér auð­veld­ara að fylgja þeim eftir. Í stað þess að strengja loðið ára­móta­heit, eins og að hreyfa sig meira, á maður að vera ákveð­inn og setja sér skýrar reglur, til dæmis að ganga í hálf­tíma á hverjum degi eða fara í rækt­ina kl. 17:00 á mánu-, mið­viku- og föstu­dögum.

Búðu þig undir það að þurfa að bregða út af van­anum. Meg­in­á­stæða þess að fólk nær ekki mark­miðum sínum er sú að það er ekki til­búið að breyta ýmsum venjum þrátt fyrir að þær spilli fyrir. Góð leið er að hugsa á hverjum degi um hvernig þú getir kom­ist nær tak­mark­inu. Önnur leið er að helga alltaf einni klukku­stund dags­ins mark­mið­inu, flest okkar getum jú fórnað klukku­tíma af sófa­hangsi.

Góð skipu­lagn­ing tryggir góðan árangur. Með nútíma­tækni er hægt að auð­velda sér hlut­ina til muna og gera þá næstum sjálf­krafa. Sem dæmi má nefna sparnað; ef þú vilt spara hálfa milljón á kom­andi ári get­urðu ein­fald­lega reiknað út hve mikið þú þarft þá að leggja fyrir á mán­uði og setja þann sparnað í áskrift í heima­bank­anum þínum. Þannig þarftu ekki að muna eftir því að leggja fyrir í hverjum mán­uði heldur leggst sjálf­krafa inn á sparn­að­ar­reikn­ing­inn þinn.

Tak­mark­aðu þig við þann fjölda sem þú ræður við, heppi­leg­ast er að halda sig við tvö eða þrjú heit. Þannig ein­beit­irðu þér að þeim mark­miðum sem þú vilt helst ná fram og ert ekki að sóa tíma þínum.

Skrifaðu ára­móta­heitin niður og hafðu list­ann hang­andi uppi við á sýni­legum stað, til dæmis á ísskápnum eða við skrif­borðið, og lestu þau reglu­lega. Þannig fest­ast þau í und­ir­með­vit­und­inni sem margir vilja meina að sé lyk­ill­inn að því að ná árangri. Einnig er gott að sjá fyrir sér árang­ur­inn og hvernig þér mun líða þegar mark­mið­inu er náð.

Venjan er að halda ára­móta­heitum leyndum. Það getur samt reynst hvetj­andi að segja nokkrum vel völdum ein­stak­lingum frá ára­móta­heit­unum því þá er ein­hver annar sem veit hvort þú ert að standa þig eða ekki. Vanda þarf valið og velja jákvæða ein­stak­linga sem eru góðar klapp­stýrur eða pepp­arar, sleppa nei­kvæðu eða letj­andi ein­stak­ling­unum.

Mik­il­væg­asta reglan er að fyr­ir­gefa þér þegar þér fer aftur. Það er óhjá­kvæmi­legt að þú munir hrasa ein­hvern tím­ann á árinu því það geta ekki allir verið full­komnir alltaf. Margir falla í þá gryfju að gef­ast upp um leið og þeim mis­tekst. Það að mis­takast er hluti af ferl­inu svo maður þarf að taka því og halda áfram ótrauður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð