Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Hin sanna Thelma komin í ljós“

Thelma Ásdís­ar­dóttir varð lands­þekkt þegar Gerður Kristný skráði sögu hennar. Síðan hefur hún unnið ötul­lega að því að hjálpa brota­þolum ofbeldis. Hún hefur þó ekki ein­göngu tek­ist á við and­legar afleið­ingar ofbeld­is­ins en síð­ast­liðið eitt og hálft ár hefur hún ein­beitt sér að því að koma lík­am­anum í form og árang­ur­inn er ótrú­legur, 74 kíló horfin og líðan hennar er betri en nokkru sinni fyrr.

„Hin sanna Thelma komin í ljós“

„Ég er búin að vera að gera alveg hell­ing fyrir sjálfa mig,“ segir Thelma og ljómar öll. „Ég var lengi í mik­illi ofþyngd, var bara vel feit og hef aldrei verið feimin við að við­ur­kenna það, lít ekki á það sem neina skömm. Fyrir mér var þetta bara stað­reynd; ég var feit og þurfti að taka á því.“

Thelma á for­síðu 33. tölu­blaðs Vikunnar.

Hvað hún hafi gert til að koma lík­am­anum í betra horf segir Thelma að hún hafi tekið á nán­ast öllum þáttum sem hafi verið í ólestri.

„Ég hafði vitað það í nokkurn tíma að þetta væri verk­efni sem kæmi að því að ég myndi fara í,“ segir hún. „Ég fann að lík­ama mínum leið ekki eins og honum átti að líða, hann var ekki í sínu rétta elem­enti. Þannig að ég und­ir­bjó mig vel, gerði áætlun og ákvað að taka þetta í skrefum en ekki kasta mér í ein­hver glóru­laus læti. Ég hafði prófað það áður og veit að svona kúrar og ein­faldar töfra­lausnir virka nátt­úr­lega bara alls ekki til lengdar þannig að ég skoð­aði hvað virkar fyrir mig.“

Tók sykurinn út

Mynd / Hákon Davíð

Beðin að útlista það hvað nákvæm­lega hún hafi verið að gera er Thelma snögg til svars, enda segir hún að sér finn­ist óskap­lega gaman að tala um þá leið sem hún hefur farið.

„Fyrsta skrefið var að auka vatns­drykkju,“ útskýrir hún. „Ég hef reyndar alltaf verið dug­leg við að drekka vatn en ég ákvað að halda betur utan um það. Svo fór ég að ganga og ég gleymi aldrei fyrsta göngut­úrnum sem var um það bil fjögur hund­ruð metrar, því eftir hann leið mér eins og ég hefði klifið fjall. Núna geng ég hik­laust tíu kíló­metra á dag án þess að finna fyrir því, þannig að ýmis­legt hefur breyst.“

Fyrsta skrefið í nýjum lífs­háttum tók Thelma í febr­úar 2018, fyrir einu og hálfu ári, en það er ár síðan hún tók syk­ur­inn út og hún segir að það hafi eig­in­lega verið fyrst þá sem hún fór að sjá veru­legan mun á sér. „Þegar þetta var allt komið saman, fastan, syk­ur­leysið og hreini mat­ur­inn, fóru stórir hlutir að ger­ast,“ segir hún. „Síðan ég tók syk­ur­inn út hafa 63 kíló farið en í heild­ina eru farin 74 kíló, þannig að það er far­inn heill karl­maður af kon­unni.“

Þetta og margt fleira segir Thelma í áhuga­verðu for­síðu­við­tali í nýj­ustu Vikunni.

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun

Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Förðun / Hildur Emils­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur