Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hélt það þyrfti náðargáfu til að skrifa

Þórunn Guð­munds­dóttir hefur verið virkur með­limur í áhuga­manna­leik­fé­lag­inu Hugleik í tutt­ugu ár. Leikið á sviði, verið í hljóm­sveitum sýn­inga og samið nokkur verk í fullri lengd sem félagið hefur sýnt, bæði texta og tón­list, auk margra styttri verka. Sýning Hugleiks, Gesta­gangur, sem er á fjöl­unum þessa dag­ana í Smiðj­unni við Sölv­hóls­götu, er nýjasta verk hennar og auk þess að vera höf­undur þess spilar hún einnig með hljóm­sveit­inni í sýn­ing­unni. Hún segir starfið með Hugleik hafa gefið sér ótrú­lega mikið og að hinir með­limir félags­ins séu eig­in­lega orðnir nokk­urs konar fjöl­skylda hennar.

Hélt það þyrfti náðargáfu til að skrifa
Þórunn Guð­munds­dóttir

En hvernig stóð á því að hún byrj­aði að starfa með leik­fé­lag­inu á sínum tíma? „Ég hef alltaf haft mik­inn áhuga á leik­húsi,“ segir Þórunn. „Pabbi og mamma fóru mikið með okkur systk­inin í leik­hús þegar við vorum krakkar og sá áhugi slokkn­aði aldrei. Fyrir tutt­ugu árum ákvað ég því að fá útrás fyrir leik­hús­á­hug­ann og ganga til liðs við Hugleik, sem þá hafði starfað við góðan orðstír í fimmtán ár, og eftir það varð ekki aftur snúið.“

Þórunn er nokkuð ein­stakur leik­rita­höf­undur því hún lætur sér ekki nægja að skrifa texta verk­anna heldur semur hún líka þá tón­list sem flutt er í sumum sýn­ing­unum og söng­text­ana við þá, auk þess að hafa samið nokkrar óperur. Flestar óper­urnar hefur hún samið fyrir nem­endur Tón­list­ar­skól­ans í Reykja­vík og síðar MÍT. Hún hefur iðu­lega leik­stýrt þeim sjálf og jafn­vel séð um bún­inga og leik­mynd, enda hefur hún áhuga á flestum þáttum leik­húss­ins og hefur sótt margs konar nám­skeið á vegum Banda­lags íslenskra leik­fé­laga. Hún segir það eig­in­lega hafa verið óvart sem hún fór að skrifa.

„Ég hélt alltaf að ég gæti ekki skrifað,“ segir hún og hlær. „Hélt að það væri bara fyrir mjög sér­stakt fólk sem hefði náð­ar­gáfu. Ég lærði söng og fór í fram­halds­nám til Banda­ríkj­anna þar sem ég lauk dokt­ors­prófi í söng og söng­fræðum og þar kvikn­aði líka áhugi minn á óperum. Þegar ég fór að semja leik­rit fannst mér stundum bráð­nauð­syn­legt að hafa tón­list í þeim, ég er ægi­lega veik fyrir orða­leikjum, rími og útúr­snún­ingum og það er auð­veld­ara að leika sér með slíkt í söng­textum en mæltu máli. Þannig þró­að­ist þetta áfram.“

Margvísleg samsömun við okkar tíma

Gesta­gangur ger­ist á her­náms­ár­unum og er sjálf­stætt fram­hald sýn­ing­ar­innar Stund milli stríða, eftir Þórunni sem Hug­leikur sýndi fyrir fimm árum og ger­ist á kreppu­ár­unum. Er þetta tíma­bil í íslenskri sögu henni sér­stak­lega hug­leikið?

„Ekki beint,“ segir hún eftir dálitla umhugsun. „En þegar ég var að skrifa Stund milli stríða grúskaði ég mikið í gömlum heim­ildum frá miðri síð­ustu öld og fannst mjög áhuga­vert hversu margt af því sem þá ein­kenndi þjóð­fé­lagið er enn við lýði. Mannlegt eðli hefur ekk­ert breyst á þessum tíma og það eru margs konar sam­svar­anir á milli okkar tíma og þess tíma sem verkið ger­ist á. Það er tölu­verð spill­ing í gangi í verk­inu, margir að nýta sér ástandið, en það er þarna líka ást og vin­átta og allt þetta sem gerir okkur mann­leg.“

Vildi skapa pláss fyrir skriftirnar

Þórunn starfar sem söng­kenn­ari við Mennta­skóla í tón­list sem varð til við sam­runa Tón­list­ar­skól­ans í Reykja­vík og Tón­list­ar­skóla FÍH haustið 2017. Hún hafði áður verið aðstoð­ar­skóla­stjóri Tón­list­ar­skól­ans í Reykja­vík en ákvað að hætta til að fá meiri tíma fyrir áhuga­málin.

„Þetta var bara orðið allt of mikið hjá mér,“ segir hún. „Eitthvað varð að víkja og ég ákvað sem sagt að það skyldi verða aðstoð­ar­skóla­stjóra­starfið. Ég sé ekki eftir því.“

Það starf er þó ekki það eina sem Þórunn hefur lagt á hill­una til að fá meira rúm fyrir skriftir og starf­semi í leik­fé­lag­inu. Þrátt fyrir að vera með dokt­ors­próf í söng hætti hún að mestu að syngja opin­ber­lega fyrir tíu árum.

„Ég kom tölu­vert fram hér áður fyrr,“ útskýrir hún. „Hélt bæði ein­söngs­tón­leika og söng með kamm­er­sveitum og kórum, en það var sem sagt kom­inn tími til að draga úr því eftir að skrift­irnar fóru að kalla meira á mig.“

En hvað er það við leik­húsið sem heillar svona miklu meira en allt annað?

„Það er bara allt,“ segir hún eftir smá­vegis umhugsun. „Ég gleymi aldrei til­finn­ing­unni sem greip mig á fyrstu sýn­ingu á verki eftir mig og ég upp­lifði hlátur áhorf­enda og önnur við­brögð úr salnum við því sem ég hafði samið. Það er bara alveg ólýs­an­leg til­finn­ing. Svo er sam­starfið í hópnum líka svo gef­andi. Þarna er fólk sem hefur starfað með Hugleik í yfir þrjá­tíu ár og svo alltaf nýir og nýir með­limir sem koma með nýtt blóð og nýjar hug­myndir.“

„Þegar ég fór að semja leik­rit fannst mér stundum bráð­nauð­syn­legt að hafa tón­list í þeim, ég er ægi­lega veik fyrir orða­leikjum, rími og útúr­snún­ingum og það er auð­veld­ara að leika sér með slíkt í söng­textum en mæltu máli.“

Leikararnir þekkja persónurnar betur

Rúmlega þrjá­tíu manns koma að sýn­ingum á Gesta­gangi og Þórunn á vart orð til að lýsa því hvað þau hafi lagt mikið til sýn­ing­ar­innar, sér­stak­lega leik­stjór­inn, Þorgeir Tryggva­son sem fleiri þekkja sem einn af bók­mennta­gagn­rýnendum Kilj­unnar.

„Það var stór­kost­legt að vinna þetta með Þorgeiri,“ segir Þórunn. „Hann hefur svo ferska sýn og kom með margar gagn­legar ábend­ingar um margt sem betur mætti fara, bæði í texta og áherslum. Mér var auð­vitað frjálst að hafna þessum til­lögum hans, en ég gerði það yfir­leitt ekki því ég fann að þær gerðu verkið betra. Það er líka alveg óskap­lega gaman að upp­lifa það að þegar leik­ar­arnir fara að kynn­ast per­són­unum sem þeir leika þá eru þeir oft með ýmsar vanga­veltur um það hvort þessi per­sóna myndi virki­lega segja eitt­hvað á þennan hátt eða gera eitt­hvað svona. Þau fara alveg á bólakaf í per­són­urnar og sjá kannski í þeim eitt­hvað sem ég sá ekki þegar ég var að skrifa þær.“

Það er auð­heyrt að skrifin og starfið með Hugleik er líf Þórunnar og yndi, en hefur henni aldrei dottið í hug að skrifa eitt­hvað annað? Er kannski hálf­kláruð skáld­saga í skúff­unni?

„Ekkert sem hægt er að tala um á þessu stigi,“ segir hún var­færin. „Ég á langauð­veld­ast með að skrifa sam­töl og hef, eins og ég sagði áðan, óskap­lega gaman af orða­leikjum, útúr­snún­ingum og rími sem nýtur sín best í söng­textum. Jú, ég hef skrifað svo­lítið af ljóðum sem ekki hafa ratað í sýn­ing­arnar, en aldrei gefið neitt út. Það kemur kannski að því ein­hvern tíma, hver veit.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð