Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Útkoman verður stundum súrrealísk“

Mynd­list­ar­konan Helga Páley Frið­þjófs­dóttir opn­aði sýn­ing­una Innan girð­ingar í Ásmund­ar­sal um helg­ina. „Þetta eru allt tví­víð verk, mál­verk á plötu og verk sem eru skorin út í við. Hress og kaó­tísk verk í bland við minimal­ísk verk,“ segir Helga þegar hún er spurð út í hvernig verk hún sýnir.

„Útkoman verður stundum súrrealísk“
Mynd / Aðsend / Mynd / Kristín Pét­urs­dóttir||||

Sýning Helgu er hluti af sýn­inga­ser­í­unni Í Kring, verk sýn­ing­ar­innar hanga uppi á þremur stöðum, þ.e. á Reykja­vík Roasters á Kárastíg 1, í Braut­ar­holti 2 og á Ásmund­ar­sal.

„Hug­myndin að sýn­ing­unni kom út frá bygg­ing­ar­svæðum. Ég hjóla fram hjá nokkrum á leið upp á vinnu­stof­una mína og finnst gaman að sjá allt bygg­ing­ar­efnið sem er notað. Fyrir mér hafa þessi plast­rör og stál­bitar engan aug­ljósan til­gang, ólíkt því þegar þú gengur um hverfið þitt þar sem þú rekst t.d. á bekki og sól­palla og allt er ein­hvern veg­inn full­mótað,“ segir Helga.

Mynd­list­ar­konan Helga Páley opn­aði sýn­ing­una Innan girð­ingar um helg­ina.

„Þessi svæði gefa eins­konar leyfi fyrir óreiðu og eru milli­bils­á­stand fyrir eitt­hvað var­an­legt. Allt ferlið á bak við það að byggja hús er eftir ströng­ustu verk­reglum enn fyrir utan­að­kom­andi er þetta ekki eins skýrt.“

Bygg­ing­ar­svæði hafa lengi heillað Helgu. „Þegar ég var krakki þá voru bygg­ing­ar­svæði mest spenn­andi leik­völl­ur­inn. Þá gaf maður hlutum nýjan til­gang. Með þess­ari sýn­ingu er ég að leika mér með þessi form og efni og leyfi mér að skálda og leika mér með þau. Útkoman verður stundum súr­r­eal­ísk.“

„Í stað­inn fyrir að nota bygg­ing­ar­efnið til að byggja hús fór ég að stafla þeim upp í píramída og búa til skúlp­t­úra.“

„Þetta eru allt tví­víð verk, mál­verk á plötu og verk sem eru skorin út í við.“

Aðspurð hvaðan inn­blást­ur­inn kemur segir Helga: „Frá svo mörgu, þarf ekki að vera merki­legt stundum er það ein­hver litur eða áferð sem kitlar mann og getur verið kveikjan að næstu mynd. Um dag­inn var ég að vinna á Ill­u­strator sem mér fannst mjög frústrer­andi því þar þarf maður að hugsa meira í formum enn línum. Ég varð að vinna innan ein­hverra tak­markanna frá því sem maður kann og finna nýjar leiðir að loka­út­kom­unni,“ útskýrir Helga.

Hún tekur þá inn­blást­ur­inn að sýn­ing­unni Innan girð­ingar sem dæmi:

„Þegar ég var að vinna í Ill­u­strator var það skemmti­leg­asta sem ég gerði að búa til einn hlut og stafla honum ofan á annan, gera þannig eitt­hvað mjög heimsku­legt en svo full­nægj­andi. Þetta yfir­færð­ist svo í verkin á sýn­ing­unni því þar fór ég að stafla formum ofan á hvort annað. Í stað­inn fyrir að nota bygg­ing­ar­efnið til að byggja hús fór ég að stafla þeim upp í píramída og búa til skúlp­t­úra.“

Mynd / Aðsend

Áttu þér upp­á­halds­verk á sýn­ing­unni?

„Haug­ur­inn með der­húf­una. Þetta er abstrakt verk, en með því að setja der­húfu inn á það tekur það ein­hvern veg­inn alvar­leik­ann af því og gerir það hress­ara. Enn ann­ars er það oft­ast nýjasta verkið sem er í upp­á­haldi, því þá hugsar maður já, þetta er að koma og það heldur manni spenntum fyrir fram­hald­inu.“

Helga Páley verður með leiðsögn og spjall um sýn­ing­una á föstu­dag­inn, 15. nóvem­ber, klukkan 17:00 í Braut­ar­holti 2.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ