Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Þykir óendanlega vænt um Met“

Dísella Lár­us­dóttir syngur og leikur um þessar mundir á sviði Metropolitan-óper­unnar í New York hlut­verk drottn­ing­ar­innar Queen Tye í óper­unni Akhnaten eftir Philip Glass. Hefur frammi­staða Dísellu, ann­arra söngv­ara og upp­færslan sjálf hlotið afbragðs dóma.

„Þykir óendanlega vænt um Met“
Dísella Lár­us­dóttir.

„Þetta ást­ar­æv­in­týri mitt við Met hófst 2007 þegar ég tók þátt í söngv­ara­keppni sem kall­ast Metropolitan Opera National Council Auditions. Ég komst í „Finals“ þar og eftir það buðu þau mér samn­ing við Met. Ég fékk svo­kall­aðan „cover“ eða stað­geng­ils­samn­ing 2008, en hvert ein­asta hlut­verk á Met hefur stað­gengil, í öllum verkum alltaf! Þannig tryggja þau sýn­ingu þótt ein­hver sé las­inn, alltaf auka­mann­eskja til­búin að stökkva inn ef það ger­ist,“ segir Dísella.

Hlutverk drottn­ing­ar­innar er því ekki fyrsta hlut­verk hennar í Metropolitan. „Það var 2010 sem þau báðu mig að koma aftur í prufu og buðu mér í fram­haldi þrjú „cover“-hlut­verk fyrir 2011-2012-tíma­bilið og 2012-2013-tíma­bilið fékk ég „debut“-hlut­verk. Ég hef sungið fullt af hlut­verkum og „coverað“ síðan þá.“

Mamma sem skreppur á „sjó“

Þrátt fyrir að aðal­vinnan sé í New York, býr Dísella á Íslandi, í Graf­ar­vog­inum nánar til­tekið, með mann, börn og bú. „Við eigum tvo stráka sem eru í grunn­skóla og leik­skóla svo við lifum „eðli­legu lífi“ þar en mamma skreppur svo þess á milli aðeins „á sjó“ til að vinna. Ég reyni að vera heima eins mikið og ég get og tek ekki hvað sem er að mér,“ segir Dísella, sem sást síð­ast á sviði hér heima í sýn­ing­unni Dívur.

„Ég gaf líka út sjálf mína aðra sóló­plötu, Dóttir, og hana má nálg­ast á vef­síð­unni minni, disella.org. Einnig er hægt að nálg­ast plöt­una/diskinn í Pennanum og 12 tónum eða gegnum iTu­nes eða googleplay, en þar má líka kaupa bara ein­staka lag.“

Fjórði Íslendingurinn á sviði Met

Dísella er fjórði Íslend­ing­ur­inn til að stíga á svið óperu­húss­ins sögu­fræga. „Sú fyrsta var María Markan, hún söng eina sýn­ingu af greifynj­unni úr Brúð­kaupi Fígarós tíma­bilið 1941-1942, skilst mér. Kristján Jóhanns­son og Kristinn Sig­munds­son hafa sungið þarna líka. Svo ég er fjórði Íslend­ing­ur­inn sem syngur í þessu merka húsi.“

Dísella á sviði sem drottn­ingin.

Hvernig hafa við­brögðin verið við verk­inu? „Verkinu hefur verið tekið alveg ein­stak­lega vel. Ég eig­in­lega trúi varla hversu vel því er tekið! Músíkin er ekki fyrir alla, Glass er mjög minimaliskur og tón­listin ein­kenn­ist af ein­fald­leika, miklum end­ur­tekn­ingum og í raun fáum hljómum. Þrátt fyrir ein­fald­leik­ann í hlustun er mjög krefj­andi að syngja og spila Glass. Hámarks­ein­beit­ing verður að vera til staðar allan tím­ann og sér­stak­lega fyrir hljóm­sveit­ina með arpegg­íur nán­ast allan tím­ann, þær verða að vera jafnar, hljómar ein­falt en er það alls ekki! Svo hefur leik­stjór­inn Phelim McDermott gert sýn­ing­una að algjöru augna­konfekti, bún­ing­arnir eru dýrð­legir í höndum Kevin´s Pollard og svo er juggl­ara­grúppa þarna undir stjórn Sean Gandini´s og þau eru öll ótrú­legir fjöl­lista­menn.“

En hvernig er að syngja í þessu sögu­fræga húsi? „Það er algjör­lega dásam­legt að syngja og almennt að vinna á Met. Þar sem þetta er orðið svona mitt heima­hús þykir mér óend­an­lega vænt um húsið og allt starfs­fólkið hér,“ segir Dísella. „Í fyrsta sinn sem ég söng hér var ég mjög stressuð og hrædd, húsið er svo svaka­lega stórt, enda sæti fyrir 4000 manns. Maður getur ekki ímyndað sér að röddin nái til allra sæt­anna, en með réttri tækni þá gerir hún það og nú er maður far­inn að treysta þessu. Met er alveg topp­ur­inn, fag­fólk í hverju ein­asta horni að aðstoða mann við að gera sitt besta, allir með fyr­ir­myndar fag­mennsku­vinnu­brögð og svo bara á ég orðið svo marga vini þarna líka.“

Sambíóin munu sýna Akhnaten 23. nóv­em­ber, sjá hér.

Myndir / Aðsendar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ