Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Fólk varð snortið“

Kvik­myndin Agnes Joy var heims­frum­sýnd í Suður-Kóreu á dög­unum og fóru við­tök­urnar langt fram úr vænt­ingum að sögn leik­stjór­ans Silju Hauks­dóttur. Myndin er nú sýnd í bíó­húsum hér­lendis og segir Silja greini­legt að áhorf­endur tengi við sög­una sem hverf­ist um grát­bros­lega þroska­sögu íslenskra mæðgna.

„Fólk varð snortið“
Silja Hauks­dóttir

„Það var magnað að horfa á hana í fyrsta skipti með áhorf­endum svona fjarri heima­högum og ég játa að mér létti þegar ég fór smám saman að sjá að kjarn­inn í sög­unni, það er að segja þessi fjöl­skyldu­dýnamík sem hún hverf­ist um, var að skila sér. Ég átti nefni­lega allt eins von á því að henni yrði bara svona sæmi­lega tekið og hafði stilt vænt­ingum í hóf. En fólk var snortið. Það beið eftir okkur að sýn­ingu lok­inni og vildi spjalla, fá eig­in­handa­á­rit­anir og taka sel­fies með aðal­leik­ur­unum Kötlu Margréti Þor­geirs­dóttur og Donnu Cruz. Þannig að nú er ég von­góð um að þessi saga eigi eftir að höfða til fólks,“ segir Silja Hauks­dóttir um við­tökur mynd­ar­innar Agnes Joy á hinni virtu alþjóð­legu kvik­mynda­há­tíð í Busan í Suður-Kóreu. Þar var mynd Silju heims­frum­sýnd á dög­unum og svo frum­sýnd í íslenskum bíó­húsum fyrir helgi.

Myndin fjallar um mæðgurnar Rann­veigu og Agnesi sem búa á Akranesi ásamt föður Agnesar. Samband fjöl­skyld­unnar ein­kenn­ist af stjórn­semi og spennu. Rannveig er í til­vist­ar­kreppu, óánægð í starfi og hjóna­bandið komið á enda­stöð, á meðan dóttirin Agnes er í upp­reisn. Þegar leik­ar­inn Hreinn, flytur í bæinn til þess að vinna að kvik­mynda­hand­riti hjálpar hann fjöl­skyld­unni að átta sig á að hún stendur á kross­götum sem verður til þess að þroska­saga mæðgn­anna fer af stað.

Silja skrifar hand­ritið að mynd­inni ásamt Rann­veigu Jóns­dóttur og Jóhönnu Friðriku Sæmunds­dóttur. „Sagan fór á flug í hönd­unum á okkur þegar við fött­uðum hversu mikið drama getur verið fólgið í þroska­sögu mið­aldra konu og sam­skiptum hennar við fjöl­skyldu sína, í þessum grát­bros­legum aðstæðum hvers­dags­lífs­ins,“ segir Silja, um það hvernig hug­myndin að sög­unni hafi kviknað. „Okkur fannst það ótrú­lega spenn­andi við­fangs­efni. Og þarft að koma því frá okkur því það er allt of sjaldan sem við sjáum slíkum sögum gerð skil í kvik­myndum.“

„Þessi mynd er kannski per­sónu­legri en það sem ég hef verið að gera í sjón­varpi…“

Talandi um það, síð­ustu ár hefur einmitt verið kvartað undan því að íslenskar myndir hverf­ist allt of mikið um karl­per­sónur í krísu. Und­an­farið hefur þó orðið breyt­ing á og nú lítur dags­ins ljós hver íslenska myndin á fætur annarri með kven­per­sónum í aðal­hlut­verki. Kann Silja ein­hverja skýr­ingu á því? Hún hugsar sig um.

„Ég held að áhorf­endur séu hrein­lega dug­legri að kalla meira eftir slíku efni og að kvik­mynda­gerð­ar­konur séu farnar að láta vaða og gera það,“ segir hún. „Ég held að eft­ir­spurnin eftir slíku efni hafi alltaf verið til staðar en sú eft­ir­spurn virð­ist bara vera að koma betur upp á yfir­borðið. Og þetta er góð þróun því ég held að hún eigi á eftir að skila okkur meiri fjöl­breyti­leika þegar fram líða stundir, ekki bara í per­sónu­sköpun heldur líka í frá­sagn­ar­stíl. Kvik­mynd­irnar koma til með að verða fjöl­breytt­ari.“

Persónulegasta verkið til þessa

Agnes Joy er önnur kvik­myndin í fullri lengd sem Silja gerir. Sú fyrri, Dís, kom út árið 2004. Af hverju leið svona langt á milli mynda? Og hvað hef­urðu verið að gera í milli­tíð­inni? „Ég skellti mér í masters­nám og eign­að­ist barn og svo hef ég verið að skrifa og leik­stýra fyrir sjón­varp, gert nokkrar sjón­varps­s­er­íur og sett krafta mína í það,“ svarar hún.

„Þetta er svipað ferli, að gera þætti og kvik­myndir. Nema þessi mynd er kannski per­sónu­legri en það sem ég hef verið að gera í sjón­varpi þótt sú vinna sé auð­vitað alltaf per­sónu­leg að ein­hverju leyti. Þetta er samt ekki sjálfsævi­sögu­leg mynd,“ tekur hún skýrt fram, „en mig lang­aði að hafa hana per­sónu­lega og hráa og vinna með­vitað með ófegraða mynd af raun­veru­leik­anum. Ég hef mik­inn áhuga á mann­legum breysk­leika og brestum og það er óhætt að segja að þessi mynd end­ur­spegli það,“ segir hún.

En hvað tekur nú við? „Myndin kemur til með að fara eitt­hvað út í heim að viðra sig og ég ætla að sjálf­sögðu fylgja henni eftir. Ég er síðan að fara að leik­stýra í Þjóð­leik­hús­inu leik­rit­inu Kópa­vogskróníkan, sem byggir á bók Kamillu Ein­ars­dóttur og er með Ilmi Krist­jáns­dóttir í aðal­hlut­verki. Já og svo er ég byrjuð að leggja grunn­inn að annarri kvik­mynd,“ ljóstrar hún upp.

„Við Snjólaug Lúð­víks­dóttir hand­rits­höf­undur og uppi­stand­ari erum að vinna í henni. Erum að skoða saman hina sam­settu íslensku nútíma­fjöl­skyldu og hvað er á seyði þar. Þannig að von­andi verður nú eitt­hvað styttra í næstu mynd,“ segir hún sposk í lokin.

Sjá einnig: Myndir: Fjöl­mennt á frum­sýn­ingu Agnes Joy í gær

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ