Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Hætti að drekka og sköpunargáfan blómstraði

Tón­list­ar­konan Karítas hefur í nógu að snú­ast um þessar mundir. Ásamt því að dj-a og vera með­limur í Reykja­vík­ur­dætrum var hún að senda frá sér sína fyrstu plötu, Songs 4 Crying. Albumm hitti á Karítas og byrj­aði á að spyrja út í til­urð plöt­unnar.

Hætti að drekka og sköpunargáfan blómstraði

„Ég fór að semja lög og texta í kringum 2013, en fyrir það hafði ég alltaf átt frekar erfitt með að semja og hélt að ég hefði það ekki í mér. Mig grunar að það hafi eitt­hvað tengst því að ég hætti að drekka á þessum tíma og að það hafi opnað fyrir sköp­un­ar­gleð­ina hjá mér,“ útskýrir Karítas, og bætir við að hana hafi langað til að gefa út sól­ó­verk­efni en aldrei fundið pródúser sem náði hljómnum sem hún leit­aði eftir. Eða alveg þar til hún hlust­aði á plötu Daða Freys, & co.

„Þegar ég heyrði plöt­una hans Daða í fyrra ákvað ég að senda línu á hann og athuga hvort hann væri til í að vinna með mér nokkur lög,“ segir hún. „Þegar við tókum fyrsta stúdíó-„sessionið“ small þetta strax saman og eftir það tók svo í kringum ár að klára plöt­una.“

Mynd / aðsend

Karítas hefur verið Dj í um fimm ár eða frá árinu 2014. Hún segir það hafa byrj­aði með því að hún bað vin sinn sem var plötu­snúður að kenna sér aðeins að dj-a. Stuttu síðar hafi hún fjár­fest í eigin græjum og farið að æfa sig í skipt­ingum og að mixa. Þetta hafi undið frekar hratt upp á sig og áður en hún vissi af var hún byrjuð að spila á skemmti­stöðum í bænum um hverja helgi.

„Ég spila mest á Prikinu og hef verið fastur Dj þar í um það bil þrjú ár. Tón­listin er mjög breyti­leg hjá mér en ég spila mest hip-hop/trap-tón­list. Annars fer það eig­in­lega bara eftir því hvar ég er að spila. Ég hef til dæmis tekið disco/funk/soul-sett og old school hip hop dj-sett sem brýtur upp spila­mennsk­una.“

„Mig grunar að það hafi eitt­hvað tengst því að ég hætti að drekka á þessum tíma…“

Hvað er mest heill­andi við að vera plötu­snúður? „Að lenda á skemmti­legu dans­gólfi og fá góða orku frá fólki.“

Eins og fyrr segir hefur Karítas í nógu að snú­ast en að hennar sögn er gott skipu­lag lyk­il­inn að því að allt gangi upp. Það skemmti­leg­asta við þetta sé að fá tæki­færi til að ferð­ast um allan heim með vin­konum sínum og spila fyrir mörg þús­und manns. „Svo er auð­vitað líka frá­bært að fá svona góðar mót­tökur á tón­list sem maður gefur út sjálfur. Í gegnum spila­mennsk­una hef ég síðan kynnst mörgu frá­bæru fólki sem hefur hjálpað mér með tón­list­ina mína og ég er mjög þakk­lát fyrir það.“

Annars seg­ist hún vera önnum kafin við að klára efni fyrir plötu í fullri lengd. „Já, ætli maður verði ekki bara að fara að aug­lýsa ein­hverja útgáfu­tón­leika bráðum,“ segir hún og brosir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Straumurinn bar bílinn í gegnum ræsi og þurfti að draga hann úr ánni áður en hægt var að ná öðrum ferðamanninum út.
Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Heimur

Ísra­elskur sjón­varps­maður lát­inn víkja eftir rasísk ummæli

Menning

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Tónlist hennar hefur fengið yfir milljón streymi á einu ári. Almenningur getur kosið um áhorfendaverðlaunin til 31. desember.
Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið