Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Var ráðlagt að hætta á lyfjunum

Ólafíu Kristínu Norð­fjörð hefur verið synjað um þátt­töku í starfs­námi í lög­reglu­fræðum af því að hún tekur kvíða­lyfið Sertral. Virka efni í Sertral heitir sertra­lín og er að finna í þremur lyfjum sem fást hér á landi. Í fyrra fékk 4,1% þjóð­ar­innar ávísað umræddum lyfjum. Í lög­reglu­fræð­unum er nemum kennt að leita sér aðstoðar, það virð­ist þó bara eiga við þegar þeir eru búnir með námið.

Var ráðlagt að hætta á lyfjunum
Mynd / Hallur Karlsson|||

„Ég spurði trún­að­ar­lækn­inn sem fór yfir málið hvort ég mætti senda henni sér­fræði­á­lit en hún sagði nei við því; sagði að þetta væri bara svona og að þetta væri búið. Hún hefði engu við mitt mál að bæta. Hún sagði meira að segja við mig að hún mælti með því að ég hætti á þessum lyfjum.“

Þetta segir Ólafía Kristín Norð­fjörð, sem fékk á dög­unum synjun við umsókn sinni um starfs­nám sem er þáttur í lög­reglu­fræða­nám­inu sem hún stundar við Háskól­ann á Akureyri. Ástæðan? Hún tekur Sertral við kvíða, líkt og 4,1% íslensku þjóð­ar­innar sam­kvæmt tölum frá 2018. Heim­il­is­læknir Ólafíu vott­aði að hún væri að öðru leyti við góða heilsu. „Ólafía er heil­brigð og full­hæf til þess, heilsu­far er gott og almennt ástand ágætt,“ sagði í vott­orð­inu sem trún­að­ar­læknir Mennta- og starfs­þró­un­ar­set­urs lög­regl­unnar (MSL) fékk afhent.

„Ég spurði trún­að­ar­lækn­inn sem fór yfir málið hvort ég mætti senda henni sér­fræði­á­lit en hún sagði nei við því; sagði að þetta væri bara svona og að þetta væri búið. Hún hefði engu við mitt mál að bæta. Hún sagði meira að segja við mig að hún mælti með því að ég hætti á þessum lyfjum.“

Mannlíf hefur rætt við lækna og lyfja­fræð­inga og aðra innan heil­brigð­is­kerf­is­ins sem segja synj­un­ina með ólík­indum. Meta hefði átt and­lega heilsu Ólafíu heild­stætt, í stað þess að úti­loka hana á þeim for­sendum að hún tekur Sertral. Ólafía seg­ist hins vegar ekki hafa hitt neinn á vegum MSL, hvorki trún­að­ar­lækn­inn né aðra. Öll sam­skipti fóru fram í gegnum síma og hefur hún enn ekki fengið skrif­legan rök­stuðn­ing fyrir synj­un­inni, þrátt fyrir að hafa farið fram á það.

MSL birti til­kynn­ingu í gær þar sem sagði m.a.: „Í þeim til­vikum sem umsækj­andi óskar eftir mati á hæfni, þrátt fyrir að hann sé hald­inn sjúk­dómi eða kvilla sem telst vera úti­lok­andi þáttur, er nauð­syn­legt að umsögn eða útskýr­ingu þess sér­fræði­læknis sem hefur ann­ast hann vegna sjúk­dóms­ins fylgi vott­orð­inu. Að öðrum kosti telst vott­orðið ógilt.“

Ólafía bendir hins vegar á að hún hafi aldrei hitt sér­fræði­lækni vegna kvíð­ans, heldur hafi heim­il­is­lækn­ir­inn hennar ávísað kvíða­lyf­inu. Heilsu­gæslan er enda skil­greind sem fyrsti við­komu­staður sjúk­linga í heil­brigð­is­kerf­inu og fjöl­margir sem fá geð­lyfjum ávísað hjá sínum heim­il­is­lækni.

Í til­kynn­ingu MSL segir enn fremur að hver umsækj­andi sé met­inn með til­liti til þess hvort ein­kenni kunni að vera hamlandi í lög­reglu­starfi eða ekki. Þessi skil­yrði eigi einnig við aðrar starfs­greinar, t.d. flug­menn. Stað­reyndin er hins vegar sú að grund­vall­ar­munur er á hæfn­is­mat­inu hjá MSL og flug­mönnum; á meðan það dugði MSL að fá upp­lýs­ingar um lyfja­notkun Ólafíu til að úti­loka hana, ganga flug­menn undir mjög viða­mikið per­sónu­legt mat, þar sem heilsa við­kom­andi er metin með skoð­unum og próf­unum, sbr. reglu­gerð fram­kvæmda­stjórnar ESB nr. 1178/2011.

Lestu frétta­skýr­ingu um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ