Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ofbeldi af þessu tagi á ekkert skylt við ástríðu

Ofbeldi af þessu tagi á ekkert skylt við ástríðu

Árlega eru átta­tíu og sjö þús­und konur drepnar í heim­inum og helm­ingur þeirra fellur fyrir hendi maka, fyrr­ver­andi maka eða ein­hverjum úr fjöl­skyldu sinni. Umfang ofbeldis gegn konum er slíkt að því er líkt við far­aldur. Fjallað var ítar­lega um málið í nýjasta Mannlífi.

Margir fjöl­miðlar hafa fjallað um þessi mál og nefna má að nýlega var í Guardian grein um þessi mál. Blaða­maður þar hefur eftir Elizabeth Yardley, pró­fessor í afbrota­fræði við Birming­ham­há­skóla, að langur aðdrag­andi sé að þessum morðum.

Ofbeldi af þessu tagi eigi ekk­ert skylt við ástríðu eða ástríðu­glæpi eins og áður var gjarnan talið. Ofbeld­is­menn séu ekki skap­bráðir menn sem missi skyndi­lega stjórn á sér sé þeim ögrað. Þvert á móti sé að baki langvar­andi lík­am­legt og and­legt ofbeldi sem oft leiði til ein­angr­unar þess sem fyrir því verður.

Byrjar smátt en stigmagnast hratt

Rann­sóknir hafa einnig sýnt fram á að heim­il­is­of­beldi er langt í frá fyr­ir­vara­laust og ósjálf­ráð við­brögð við ein­hvers konar áreiti. Þvert á móti eru flestir ofbeld­is­menn mjög með­vit­aðir um þær aðferðir sem þeir beita og margir hafa þróað þær á löngum tíma. Til dæmis má nefna að þeir sýna allir sínar bestu hliðar þar til þeir hafa fest sig í sessi, eru fluttir inn, giftir kon­unum eða þær barns­haf­andi eftir þá. Þeir byrja á að brjóta þær niður and­lega og ein­angra eins og hægt er. Þetta er gert með því að kenna þeim ævin­lega um það sem miður fer í sam­band­inu.

Ofbeldið byrjar venju­lega smátt en stig magn­ast hratt. Hrind­ingar, spörk og kinn­hestar verða fljótt að hnefa­höggum. Í byrjun gæta þeir þess vand­lega að þyngstu höggin lendi þar sem eng­inn sér, þ.e. á búk, fótum eða hand­leggjum. Það er ekki fyrr en ástandið er orðið mjög slæmt að þeir taka að kýla í and­lit eða berja konur í höf­uðið. Þeir gæta þess einnig vel að eng­inn verði vitni að hvorki þeim and­legu né lík­am­legu pynt­ingun sem þeir beita konur sínar. Þetta sýnir góða skipu­lagn­ingu og umtals­verða yfir­vegun.

Oftast magn­ast ofbeldið þegar konan er barns­haf­andi. Það fer í taug­arnar á karl­inum að konan sé upp­tekin af því sem er að ger­ast í lík­ama hennar og hafi til­finn­ingar til barns­ins. Þess eru mörg dæmi að ofbeld­is­menn hafi bein­línis drepið eigin börn í móð­ur­kviði. „Hvernig geta menn gert slíkt?“ spyrja eflaust margir.

Samkvæmt rann­sóknum eiga þessir menn allir erfitt með að setja sig í spor ann­arra. Þeir hafa litla hæfni til með­líð­unar og mikla stjórn­un­ar­þörf. Að auki taka þeir enga ábyrgð á eigin gerð ­um. Þeir vita vissu ­lega að þetta er rangt en eru full­kom­lega sann­færðir um að konan hafi kallað þetta yfir sig. Hún hafi ögrað þeim og ýtt þeim yfir ein­hverja brún þar sem þeir misstu alla stjórn.

Lyk­ill­inn að því að því að ofbeld­is­maður láti af hegðun sinni er að hann geri sér grein fyrir því að engu skiptir hvað fer á undan. Það er alltaf sá sem reiðir hönd­ina til höggs sem ber ábyrgð á ofbeld­inu og aldrei er ásætt­an­legt að grípa til bar­smíða til að ná fram vilja sínum í mann­legum sam­skiptum.

Sjá einnig: Ólíkar birt­ing­ar­myndir heim­il­is­of­beldis

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð