Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sértæk þjónusta fyrir einstök börn

Tryggja þarf sjúk­lingum með sjald­gæfa sjúk­dóma einn við­komu­stað í heil­brigð­is­kerf­inu og halda þannig utan um þá að þeir verði ekki horn­reka. Ýmis vinna er í gangi til að bæta stöðu þessa hóps en for­maður Ein­stakra barna segir afar mik­il­vægt að sjúk­lingar og aðstand­endur þurfi ekki að berj­ast fyrir því að fá þjón­ustu.

Sértæk þjónusta fyrir einstök börn
|Guð­mundur Björgvin Gylfason.

„Það sem við höfum verið að velta fyrir okkur eru þessi skil sem börn lenda í þegar þau verða 18 ára. Þetta er oft mjög erfitt tíma­bil hjá fjöl­skyld­unni þar sem það verður rof í þjón­ust­unni, ekki bara heil­brigð­is­þjón­ust­unni heldur félags­þjón­ust­unni, skóla­þjón­ust­unni og þess háttar. Ef þú værir með deild ein­hvers staðar sem sinnti þá börnum en ein­stak­ling­arnir fengju að halda áfram í þjón­ustu eftir 18 ára; það væri nátt­úr­lega bara draumur ef það yrði að raun­veru­leika.“

Þetta segir Guð­mundur Björgvin Gylfason, for­maður stjórnar Ein­stakra barna, stuðn­ings­fé­lags fyrir börn með sjald­gæfa, alvar­lega sjúk­dóma og fjöl­skyldur þeirra. Lögð hefur verið fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga um skipan starfs­hóps sem á að gera til­lögur að fyr­ir­komu­lagi sér­tækrar þjón­ustu­ein­ingar fyrir ein­stak­linga sem grein­ast með sjald­gæfa sjúk­dóma. Henni yrði ætlað að „tryggja að sjúk­lingar hafi einn við­komu­stað í heil­brigð­is­kerf­inu og til þess að ný þekk­ing og nýj­ustu rann­sóknir skili sér í bættri þjón­ustu sem bygg­ist á nýj­ustu gagn­reyndu þekk­ingu hverju sinni.“

Í umsögn Ein­stakra barna, sem von­ast til að eiga aðkomu að mál­inu, er m.a. ítrekað að líf ein­stak­lings með sjald­gæfan sjúk­dóm eða heil­kenni ein­kenn­ist af sam­skiptum við marga og ólíka aðila innan og utan heil­brigð­is­kerf­is­ins.

Guð­mundur segir að oft mynd­ist gjá milli þjón­ustu rík­is­ins og sveit­ar­fé­lag­anna, sem sé ein­stak­lega óheppi­legt fyrir fjöl­skyldur sem upp­lifa að líf þeirra umturn­ist. „Það þarf sér­fræð­inga úr ólíkum kerfum sam­fé­lags­ins til að aðstoða fjöl­skyld­una og líka stuðn­ing á mis­mun­andi ævi­skeiðum barns­ins. Og það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að [for­eldr­arnir] þurfi ekki sjálfir að berj­ast fyrir þjón­ust­unni, heldur að það sé hálf­gerð hand­bók til og eitt­hvert við­bragð­steymi,“ segir hann.

Guð­mundur Björgvin Gylfason.

Bindur vonir við nýtt teymi

Nú þegar hefur verið komið á fót stuðn­ings- og ráð­gjafateymi lang­veikra barna með sjald­gæfa sjúk­dóma og miklar stuðn­ings­þarfir á Barna­spít­ala Hrings­ins. Teymið tók til starfa 2. sept­em­ber sl. en í því eru félags­ráð­gjafi, fjöl­skyldu­fræð­ingur, hjúkr­un­ar­fræð­ingur og þroska­þjálfi. Guð­mundur segir fólk hafa fengið mjög mis­mun­andi við­brögð í kjöl­far grein­ingar hingað til en bindur miklar vonir við nýja teymið. „Það er farið að taka mun fag­legar á því hvernig farið er í gegnum það með fjöl­skyldum hvað það þýðir að vera með við­kom­andi sjúk­dóm og hvers megi vænta í fram­hald­inu,“ segir hann. „Ég ber miklar vonir til þessa teymis á Land­spít­al­anum, að það verði svo­lítið til að grípa og halda utan um þessa for­eldra sem eru að fá grein­ingar á börn­unum sínum; að þau séu með sjald­gæfan og alvar­legan sjúk­dóm.“

Hann seg­ist von­ast til að teymið muni ekki ein­göngu veita for­eldrum stuðn­ing heldur einnig sér­fræð­ingum í sveit­ar­fé­lag­inu þar sem fólk býr.

Í fyrr­nefndri þings­á­lykt­un­ar­til­lögu segir að styrkja þurfi umgjörð­ina um þá ein­stak­linga sem þjást af sjald­gæfum sjúk­dómum, fylgj­ast með umræddum sjúk­dómum og sjá til þess að heil­brigð­is­starfs­fólk hafi aðgang að nýj­ustu þekk­ingu í með­ferð við þeim. Þá er fjallað um sér­staka mið­stöð fyrir sjald­gæfa sjúk­dóma á rík­is­spít­al­anum í Kaup­manna­höfn og sér­fræði­þjón­ustu fyrir sjald­gæfa sjúk­dóma í Noregi. „Flutn­ings­menn til­lög­unnar gera ráð fyrir því að við vinnu starfs­hóps­ins verði litið til þess­ara fyr­ir­mynda og kannað hvernig útfæra megi þær hér á landi. Grund­vall­ar­at­riðið er að til staðar sé sér­tæk ein­ing sem bregð­ist við þeim til­fellum sem upp koma, leið­beini sjúk­lingum og tryggi að þeir verði ekki horn­reka í heil­brigð­is­kerf­inu.“

Nánar má lesa um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ