Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Einar Þor lögmaður Atla Rafns segir hann og fjölskyldu hans einu þolendurna sem hafa verið nafngreindir

Einar Þor lögmaður Atla Rafns segir hann og fjölskyldu hans einu þolendurna sem hafa verið nafngreindir
„Alltaf þegar verða ein­hverjar hreyf­ingar í sam­fé­lag­inu

Einar Þór Sverr­is­son, lög­maður Atla Rafns Sig­urðs­sonar í mál­inu gegn Borg­ar­leik­hús­inu og Kristínu Eysteins­dóttur leik­hús­stjóra, segir það engum vafa und­ir­orpið að brotið hafi verið á rétti Atla Rafns með fyr­ir­vara­lausri upp­sögn án þess að hann væri upp­lýstur um meintar sakir sínar. Einu þolend­urnir sem hafi verið nafn­greindir í þessu máli og sé alveg víst að séu til séu Atli og fjöl­skylda hans. Það sé ekki hægt að breyta reglum sam­fé­lags­ins að geð­þótta í takt við þær átaks­hreyf­ingar sem séu í gangi á hverjum tíma.

„Mál Atla Rafns er ekki kyn­ferð­is­brota­mál,“ segir lög­maður Atla Rafns, Einar Þór Sverr­is­son, og vill und­ir­strika að málið snú­ist um brot á lög­gjöf í vinnu­rétti. Spurður hvernig Kristín Eysteins­dóttir, leik­hús­stjóri Borg­ar­leik­húss­ins, hefði átt að bregð­ast við kvört­unum ann­arra starfs­manna vegna meintrar kyn­ferð­is­legrar áreitni Atla Rafns segir Einar að það séu alveg skýrar reglur um hvernig bregð­ast skuli við í slíkum málum í reglu­gerð sem gefin er út af rík­inu og hann segir gilda um alla atvinnu­rek­endur í land­inu, hvort sem þeir séu á vegum ríkis eða sveit­ar­fé­laga eða einka­að­ila.

„Þessi reglu­gerð kveður á um það að það eigi að fara yfir málið með öllum aðilum, þar með talið þeim sem bor­inn er sökum, og gefa þeim færi á að tjá sig. Sé ekki nægi­leg þekk­ing fyrir hendi inni á vinnu­staðnum á að kalla til ytri aðila til að fara yfir málið. Samkvæmt reglu­gerð­inni er alveg ljóst að þessi skoðun verður að fara fram. Það getur síðan leitt til þeirrar nið­ur­stöðu að eitt­hvert brot hafi verið framið en það getur líka leitt í ljós að ekk­ert brot hafi verið framið. Slík skoðun getur líka leitt í ljós að brotið sé minni­háttar og aðilar geti sæst eða þá að þetta sé meiri­háttar brot sem leiði til þess að sá sem ásak­aður er sé rek­inn, það er allur gangur á því. En hvernig sem þessu er snúið þá byggja regl­urnar á þeirri hugsun að koma í veg fyrir að ein­hver aðili geti, í skjóli nafn­leyndar, vegið að öðrum aðila úr laun­sátri. Það ætti að vera öllum aug­ljóst ef þeir lesa þessa reglu­gerð.“

Einar segir ekki hægt fyrir Borg­ar­leik­húsið að skáka í því skjóli að það ríki óvissa um það hvernig koma eigi að slíkum málum hjá einka­fyr­ir­tækjum eins og haldið hafi verið fram í yfir­lýs­ingu þess eftir að dóm­ur­inn féll.

„Það er bara þvæla,“ segir hann. „Það er einmitt talað um báða aðila í reglu­gerð­inni og það er engin óvissa um það ferli sem fella þarf slík mál í.“

Þannig að þú hefur engar efa­semdir um að Lands­réttur muni stað­festa þennan dóm?

„Ég kann ekki þá lög­fræði sem gæti leitt til ein­hverrar ann­arrar nið­ur­stöðu,“ segir Einar. „Það væri því handan míns skiln­ings ef Lands­réttur gæti kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þessi máls­með­ferð í máli Atla Rafns hafi verið í lagi. Það er algjör­lega úti­lokað.“

Ekki háar miskabætur

Nú hefur staðið mik­ill styr um upp­hæð þeirra bóta sem Atla Rafni voru dæmdar í hér­aðs­dómi en Einar segir þá umræðu byggða á dálitlum mis­skiln­ingi.

„Honum voru dæmdar 5,5 millj­ónir sam­kvæmt dóms­orði,“ útskýrir hann. „Fjórar af þeim millj­ónum voru fjár­tjóns­bætur vegna atvinnu­missis og síðan ein og hálf milljón í miska­bætur. Miðað við það sem Atli Rafn hefur þurft að ganga í gegnum, þar sem hann var gerður að nokk­urs konar hold­gerv­ingi ger­enda í #metoo-bylt­ing­unni, úthróp­aður sem ein­hver kyn­ferð­is­brota­maður og svertur eins mikið og menn geta orðið, þá er alveg á hreinu að þessi fjár­hæð bætir ekki hans tjón. Hitt er svo aftur annað mál að miska­bætur í íslensku rétt­ar­kerfi eru almennt mjög lágar og þar með talið í alvar­legum kyn­ferð­is­brota­málum þar sem illa leiknir þolendur fá smán­ar­lega lágar bætur. En það má und­ir­strika það að Atla voru ekki dæmdar 5,5 millj­ónir í miska­bætur.“

„Hitt er svo aftur annað mál að miska­bætur í íslensku rétt­ar­kerfi eru almennt mjög lágar og þar með talið í alvar­legum kyn­ferð­is­brota­málum þar sem illa leiknir þolendur fá smán­ar­lega lágar bætur.“

Einar segir mál Atla Rafns ein­stakt að því leyti að réttur þess sem ber fram ásök­un­ina sé sagður svo mik­ill að það sé í lagi að taka öll rétt­indi af þeim sem fyrir ásök­un­unum varð. Er þá eng­inn mögu­leiki að svona mál geti haft fram­gang nema að sá sem ber ásak­an­irnar fram komi fram undir nafni?

„Nei, ég get ekki séð það,“ segir hann. „Vegna þess að það er ekki hægt að upp­lýsa mein­tan ger­anda um málið án þess að hann fái að vita hver það er sem hann á að hafa brotið á. Regl­urnar eru þannig að atvinnu­rek­andi sem fær inn á borð til sín kvörtun með því skil­yrði að sá sem ber kvörtun­ina fram vilji njóta nafn­leyndar getur ekki tekið kvörtun­ina lengra. Hann getur auð­vitað boðið þeim sem ber kvörtun­ina fram alls kyns aðstoð og gert allt til að halda utan um þann aðila, en hann getur ekki gert mein­tan ger­anda algjör­lega rétt­lausan í ferl­inu. Níutíu og níu pró­sent allra reglna í sam­fé­lag­inu eru byggðar á ein­hverri hugsun og hugsun þess­ara reglna er aug­ljós­lega sú að þetta séu við­kvæm og erfið mál, það er óum­deilt. En regl­urnar gera það að verkum að það er komið í veg fyrir að það sé hægt að vega að fólki úr laun­sátri og þær koma í veg fyrir að það séu teknar ákvarð­anir án þess að málið sé skoðað frá báðum hliðum.“

Ekki hægt að breyta reglum í takt við átakshreyfingar

Í umræð­unni hefur komið fram ótti um að þessi dómur muni fæla meinta þolendur frá því að segja frá, hvað segir Einar um þær hug­leið­ingar?

„Ég hef ekki trú á því, nei,“ segir hann. „Enginn sem telur sig hafa verið beittan ein­hverjum rang­indum, í hvaða formi sem það er, getur búist við því að það sem hann hvíslar að ein­hverjum öðrum með skil­yrði um nafn­leynd geti haft ein­hverjar afleið­ingar fyrir annan ein­stak­ling. Ég er ekki að gera lítið úr neinum sem ber fram sakir. Stað­reyndin er hins vegar sú að stundum eiga ásak­anir ekki við rök að styðj­ast, hvort sem þær lúta að kyn­ferð­is­legri áreitni, ein­elti eða ein­hverju öðru, eða eru það brog­aðar að eitt­hvað sem leit út fyrir að vera mjög alvar­legt í fyrstu er ekki eins alvar­legt og talið var.“

Þannig að þú lítur svo á að þessi dómur sé for­dæm­is­gef­andi?

„Já, ég held hann geti verið það,“ segir Einar. „Ég man ekki til þess að það hafi reynt á þessa reglu­gerð með jafn­n­á­kvæmum hætti fyrr. Þetta mál Atla Rafns sýnir það mjög vel hversu gríð­ar­lega mik­il­vægt það er að það séu reglur um svona mál og að stjórn­endur í fyr­ir­tækjum fylgi þeim. Alltaf þegar verða ein­hverjar hreyf­ingar í sam­fé­lag­inu, eins og #metoo-hreyf­ingin sem er í heild sinni af hinu góða, skiptir rosa­lega miklu máli að við virðum þær reglur sem við höfum sett. Það er aldrei leyfi­legt að segja að nú sé ein­hver hreyf­ing í gangi og þess vegna eigum við að víkja regl­unum til hliðar. Það nátt­úr­lega bara gengur ekki upp. Frá fyrstu mín­útu þessa máls vissi Atli Rafn ekk­ert hvað um var að ræða og hann hefur hafnað því að hafa áreitt ein­hvern aðila, hvorki kyn­ferð­is­lega né með öðrum hætti, og það er ekki ásætt­an­legt fyrir neinn að fá ekki einu sinni að vita hvaða sökum hann er bor­inn og geta þar af leið­andi ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Atli Rafn er eng­inn ger­andi í þessu máli, miklu frekar þol­andi rang­inda og algjör­lega van­hæfrar vinnu­stjórn­unar á þeim vinnu­stað sem hann starf­aði tíma­bundið á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð