Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jón Þór biður fólk um fyrirgefningu: „Ekki öskra á okkur eða gefa okkur puttann“

„Hvað get ég annað sagt en „fyr­ir­gefið mér.“

Jón Þór biður fólk um fyrirgefningu: „Ekki öskra á okkur eða gefa okkur puttann“
|Jón Þór Tómasson

Með þessum orðum hefst færsla sem Jón Þór Tómasson deilir í Facebook-hópnum Hvernig er færðin? Þar skrifar hann um starf sitt við snjó­mokstur, en í færsl­unni kemur fram að oft á tíðum fá bíl­stjórar snjó­mokst­ur­bíla dóna­legar mót­tökur veg­far­enda þegar þeir sinna snjó­mokstr­inum.

„Ég vil bara að þið vitið að ég veit að ykkur langar að kom­ast heim eftir erf­iðan dag í vinn­unni, eftir erf­iðan við­tals­tíma hjá lækni, eftir jarða­för, eftir að hafa keyrt maka í flug. Ykkur langar að kom­ast á við­burð sem þið keyptuð miða á fyrir mán­uðum síðan. Ykkur langar að kom­ast í sunnu­dags­mat til mömmu, upp í bústað­inn, í jóla­boðið, afmælið og fullt af öðrum stöðum,“ heldur Jón Þór áfram.

Jón Þór Tómasson Mynd / Aðsend

Hins vegar eins og Jón Þór bendir á þá er veðrið og færð á vegum ekki alltaf með veg­far­endum, vegir lok­aðir og þá þarf að moka með til­heyr­andi töfum á umferð.

Í sam­tali við Mannlíf segir Jón Þór að hann hafi starfað við snjó­mokstur frá árinu 2000, fyrst í Reykja­vík. „Ég er búinn að vera í snjó­mokstr­inum á Hell­is­heiði í fimm ár hjá Ingileif Jónssyni EHF. Hann hefur séð um snjó­mokstur á Hell­is­heiði óslitið síðan 2004. Þar áður var ég mikið í snjó­mokstri í Reykja­vík.“

„Stundum kemur það samt fyrir að þið kom­ist ekki því það er búið að loka veg­unum. Sem betur fer sýna því flestir skiln­ing, en oft fá þeir sem sinna veg­unum bara skít og skömm og kall­aðir nöfnum sem varla eru birt­ing­ar­hæf. Þetta er ekki leikur hjá okkur, langt í frá. Við erum í vinnu, vinnu sem þarf að vinna, vinnu sem ein­hver annar munu vinna ef ég geri það ekki. Það eru um 200 mann­eskjur á íslandi sem vinna við snjó­mokstur á vegum. Við erum að vinna í öllum veðrum við allar mögu­legar aðstæður, alla daga, sunnu­daga, jól, ára­mót, páska. Alla daga frá 15. sept­em­ber til 15. maí (breyti­legt eftir hvaða vegir það eru). Við leggjum allt á okkur svo þið kom­ist í mat til mömmu, afmæli, vinn­una, bíó eða hvert sem þið eruð að fara. Þegar veðrið er virki­lega vont, ekk­ert ferða­veður og ekk­ert vinnu­veður erum við samt í vinn­unni svo þið kom­ist eins fljótt af stað og mögu­legt er eftir að veðrið lag­ast. Við erum partur af því að þið, ætt­ingjar og vinir kom­ist undir lækn­is­hendur þegar veður er vont.“

Jón Þór er önnur kyn­slóð í starf­inu og má segja að hann hafi alist upp í því. „Pabbi sá um snjó­mokstur í upp­sveitum Árnes­sýslu frá 1988 til 2000 og þá var ég mjög mikið með honum í bílnum.“

Í færsl­unni bendir Jón Þór á að ekki sé verið að tefja veg­far­endur af ásettu ráði, heldur ein­göngu verið að gera ferða­lagið örugg­ara. Biður hann veg­far­endur um að gera sér greiða og sleppa því að öskra, gefa mokst­urs­mönnum putt­ann eða negla niður fyrir framan snjó­mokst­urs­bíl.

„Þó við séum á litlum hraða eða á miðjum vegi erum við ekki að reyna tefja ykkur. Við erum að reyna gera ferða­lagið þitt eins öruggt og við getum. Gerið mér greiða. Ekki öskra á okkur, gefa okkur putt­ana eða negla niður beint fyrir framan snjó­mokst­urs­bíl þó við höfum verið að tefja ykkur. Við erum að þessu fyrir ykkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð