Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Saka stjórnvöld um andvaraleysi

nnan fjár­mála- og nýsköp­un­ar­geirans eru menn ugg­andi vegna ákvörð­unar FATF um að setja Ísland á svo­kall­aðan „gráan lista“. Stjórn­völd eru sökuð um seina­gang og skiln­ings­leysi á alvar­leika pen­inga­þvættis.

Saka stjórnvöld um andvaraleysi
||||
Guð­mundur segir umfang pen­inga­þvættis á heims­vísu jafn­gilda átt­unda stærsta hag­kerfi heims.

„Það er svo ein­falt að ímynda sér Ísland sem ein­angr­aða eyju í Atl­ants­hafi sem eng­inn gefur raun­veru­legan gaum. Pen­inga­þvætti á alþjóða­vísu virkar þannig að það leitar að veikasta hlekknum sem til er í alþjóð­legri keðju. Ísland býður í dag upp á tölu­verð tæki­færi til þess að þvætta pen­inga. Með breitt fram­boð fjár­mála­af­urða, sam­starfs­samn­inga við banka erlendis um erlendar milli­færslur en litlar varnir í sam­hengi við stærri ríki gæti Ísland hæg­lega orðið næsta fórn­ar­lamb hneyksl­is­máls eins og Danske Bank fór nýlega í gegnum.“

Þetta segir Guð­mundur Krist­jáns­son, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Lucinity Cognative Technologies, en fyr­ir­tækið sér­hæfir sig í staf­rænum lausnum til að varna gegn pen­inga­þvætti.

Guð­mundur segir að almennt séð geri menn sér ekki grein fyrir því hversu alvar­legt pen­inga­þvætti sé en fleiri ein­stak­lingar sem Mannlíf ræddi við innan fjár­mála- og nýsköp­un­ar­geirans saka stjórn­völd um skiln­ings­leysi á þeirri stöðu sem upp er komin eftir að Ísland var sett á svo­kall­aðan „gráa lista“ Financial Action Task Force (FATF) og á alvar­leika pen­inga­þvættis yfir­höfuð.

Fæstir við­mæl­enda vildu koma fram undir nafni en allir sögðu þeir ótrú­legt að þessi staða væri komin upp; stjórn­völd hefðu haft nægan tíma til að grípa til aðgerða. Einn sagði engu lík­ara en að þau gerðu sér ekki grein fyrir hvaða áhrif það hefði á orð­spor lands­ins að vera á lista með ríkjum á borð við Pakistan, Sýrland og Jemen. Upp­lýs­inga­gjöf virð­ist í það minnsta áfátt, þar sem ein­hver nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki ótt­ast að koma sjálf­krafa að lok­uðum dyrum erlendis þegar kemur að fjár­mögnun.

Áhrifin gætu náð til neytenda

„Þetta er álíka alvar­legt og ef örygg­is­gæslu og landamæra­eft­ir­liti væri ábóta­vant í Leifs­stöð við komu og brott­för flug­véla,“ segir Sveinn Valfells, einn stofn­enda fjár­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Monerium.

„Þetta er álíka alvar­legt og ef örygg­is­gæslu og landamæra­eft­ir­liti væri ábóta­vant í Leifs­stöð við komu og brott­för flug­véla.“

„Slíkt gæti veru­lega raskað sam­göngum til og frá Íslandi. Athuga­semdir FATF vegna seinna við­bragða íslenskra stjórn­valda geta veru­lega heft flæði fjár­magns inn og út úr land­inu og þar með truflað allt hag­kerfið,“ bæti hann við en í umsögn FATF um Ísland segir m.a. að stjórn­völd hefðu þegar tekið skref í rétta átt en að ekki hefði gef­ist tími til að fara yfir upp­lýs­ing­arnar þar sem þær væru aðeins nýlega komnar fram.

„Þessi vand­ræði gagn­vart FATF eru ekki ný af nál­inni og því ákaf­lega klaufa­legt að renna í raun­inni út á skila­fresti,“ segir Guð­mundur. Hann segir að erf­ið­ara gæti orðið fyrir fyr­ir­tæki að stofna til við­skipta erlendis og flytja fjár­magn milli landa. Þá gætu áhrifin hæg­lega náð til neyt­enda. „Það er lík­legt að módel erlendra mót­að­ila taki lista FATF með í útreikn­inga á áhættu­á­lagi íslenskra fyr­ir­tækja. Þannig gæti orðið dýr­ara fyrir íslensk fyr­ir­tæki að eiga við­skipti erlendis og hætt við að því verði ýtt út í vöru­verð.“

Guð­mundur seg­ist gera ráð fyrir að menn muni draga af þessu lær­dóm.

„Við reiknum með að stjórn­völd verði búin að kippa þessum málum í lið­inn fyrir næstu úttekt. Athuga­semdin frá FATF sem við höfum mestar áhyggjur af er inn­leið­ing sjálf­virks kerfis sem tekur á móti til­kynn­ingum frá fjár­mála­stofn­unum lands­ins um mögu­legt pen­inga­þvætti. Við höfum ekki áhyggjur af inn­leið­ing­unni sem slíkri heldur frekar þeim kröfum sem sér­ís­lenskar aðstæður gætu leitt af sér,“ segir Guð­mundur.

„Þessu til við­bótar ætti Ísland auð­vitað ekki að sætta sig við að rétt sleppa af gráum lista varð­andi pen­inga­þvætti. Við höfum allan þann auð­búnað sem þarf til þess að búa til sér­stak­lega öfl­ugt varn­ar­kerfi. Um er að ræða eins­leitan fjár­mála­markað með mikið af sam­eig­in­legum und­ir­stöðum. Með sam­ofnu átaki bank­anna og stjórn­valda ætti okkur að geta tek­ist að lág­marka áhættur vegna pen­inga­þvættis.“

Virðast ekki hafa stórar áhyggjur af stöðunni

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði á opnum fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis á þriðju­dag að sam­töl hans við ráð­herra ann­arra ríkja hefði dregið úr áhyggjum hans af mögu­legum álits­hnekki í tengslum við ákvörðun FATF. Þá sagði hann ferlið hjá stofn­un­inni ófyr­ir­sjá­an­legt og ógagn­sætt, að því leyti að ekki sé greint frá því hvernig ein­stök aðild­ar­ríki ráð­stafa atkvæðum sínum. Ekki hefði verið full sam­staða um að setja Ísland á gráa list­ann.

„Við erum því mun betur í stakk búin að takast á við úttektir og til­mæli en áður,“ sagði Áslaug.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra sagði að í upp­hafi árs 2018 hefðu verk­efni stýri­hóps um mál er snertu FATF verið end­ur­skil­greind og hóp­ur­inn efldur. Hann sinnti stefnu­mótun og sam­stillti varnir gegn pen­inga­þvætti og væri ætlað að tryggja eft­ir­fylgni og úrbætur vegna athuga­semda FATF. „Við erum því mun betur í stakk búin að takast á við úttektir og til­mæli en áður.“

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis hefur ákveðið að hefja frum­kvæð­is­rann­sókn á verk­lagi ráð­herra vegna ábend­inga fram­kvæmda­hóps FATF en málið hefur m.a. heyrt undir dóms­mála­ráðu­neytið, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið.

„Það liggur fyrir að við erum komin á gráan lista FATF og höfum verið að fá athuga­semdir frá þess­ari nefnd frá árinu 2006 og hugur nefnd­ar­innar stendur til að skoða hvernig það gat gerst að við erum komin á þennan gráa lista og hvernig verk­lag ráð­herra hefði mátt betur fara svo við getum lært af þessu í fram­tíð­inni,“ sagði Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í sam­tali við mbl.is á mánu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð