Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Stjórnarskrá á ís

Á sunnu­dag­inn verða sjö ár liðin frá því að íslenskir kjós­endur sam­þykktu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu að leggja til­lögur stjórn­laga­ráðs til grund­vallar nýrri stjórn­ar­skrá. Síðan hefur lítið þok­ast.

Stjórnarskrá á ís
Katrín Odds­dóttir lög­fræð­ingur

„Þetta er stærsta og mik­il­væg­asta spurn­ingin, sem mætti líka end­ur­orða með eft­ir­far­andi hætti: Er í alvör­unni lýð­ræði á Íslandi?“ segir Katrín Odds­dóttir, lög­fræð­ingur og for­maður Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins, spurð að því af hverju Íslend­ingar séu ekki búnir að eign­ast nýja stjórn­ar­skrá. Á sunnu­dag­inn verða sjö ár liðin frá því að kjós­endur sam­þykktu með 65% greiddra atkvæða að leggja til­lögur stjórn­laga­ráðs til grund­vallar nýrri stjórn­ar­skrá. Katrín sem átti sæti í stjórn­laga­ráði segir ótrú­legt að þjóðin sitji enn uppi með „gam­alt kon­ungs­plagg“ og kallar við­leitni stjórn­valda til end­ur­skoð­unar í áföngum „von­lausan búta­saum“.

„Það er mjög sorg­legt að við séum í þess­ari stöðu,“ segir Katrín. „Það var ein­dreg­inn vilji hjá þeim kjós­endum sem mættu að leggja nýja stjórn­ar­skrá til grund­vallar. En það eina sem þingið gerir, og það skiptir greini­lega ekki öllu máli hver er við völd, er að skipa ein­hverja nefnd innan þings­ins til að vinna í ein­hverjum afmörk­uðum ákvæðum, eins og þau eigi bara þennan rétt sjálf. Það er grund­vall­armis­skiln­ingur, því í stjórn­skip­un­ar­rétti þá er það þjóðin sem er stjórn­ar­skrár­gjaf­inn. Þetta er eitt­hvað sem Alþingi hefur ekki með­tekið en ég held að smám saman sé þetta að breyt­ast og að tak­mark­inu verði náð.“

Katrín segir seina­gang stjórn­mál­anna m.a. mega rekja til stórra hags­muna­mála.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur kannski beitt sér mest gegn þessu og ég held að ástæðan fyrir því sé að þar á bæ sé fólk ekki spennt fyrir því að fá almenni­legt auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrána, þar sem tryggt er að þjóðin fái arð­inn af auð­lind­inni í sinn vasa en ekki útvaldir aðilar. Svo held ég líka að það sé tregða hjá stjórn­völdum að jafna vægi atkvæða, sem er mikið mann­rétt­inda­mál.“ Katrín segir því máli oft slegið upp sem ágrein­ings­máli milli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og lands­byggð­ar­innar en í raun snú­ist and­staðan um hags­muni ákveð­inna flokka, sem hún nafn­greinir ekki.

„Það gagn­ast ekk­ert að spyrja fólk hvað það vill ef fólk hefur enga vissu fyrir því að það sé farið eftir því sem það segir“

Katrín segir þá stjórn­ar­skrá sem stjórn­laga­ráð hafi komið sér saman um þá lýð­ræð­is­leg­ustu í heimi og gefur lítið fyrir yfir­lýs­ingar Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, sem skrif­aði grein í vik­unni þar sem hún tal­aði um heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar á tveimur kjör­tíma­bilum, í sam­ráði við almenn­ing. „Það gagn­ast ekk­ert að spyrja fólk hvað það vill ef fólk hefur enga vissu fyrir því að það sé farið eftir því sem það segir,“ bendir Katrín á. Hún segir aðgerð­ar­leysi stjórn­mál­anna gagn­vart nið­ur­stöðum þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar ekki til þess fallið að auka traust almenn­ings.

„Þegar stjórn­laga­ráð fékk þetta verk­efni að skrifa nýja stjórn­ar­skrá þá var það bara alls konar fólk úr öllum áttum sem fékk eitt afmarkað verk­efni og átti engra hags­muna að gæta. Þannig mynd­að­ist allt öðru­vísi and­rúms­loft í hópnum og að allir þessir 25 ein­stak­lingar, með gríð­ar­lega ólíkar skoð­anir og bak­grunn, hafi sam­mælst um þessa stjórn­ar­skrá í heild sinni er algjört krafta­verk. Og í því er stóra mála­miðl­unin fólgin,“ segir hún.

Allar hug­myndir sem komið hafi fram á Alþingi í kjöl­farið um end­ur­bætur á stjórn­ar­skránni hafi verið útþynntar útgáfur af drögum stjórn­laga­ráðs. „Það er verið að reyna að ná þverpóli­tískri sam­stöðu um ákveðin grund­vall­ar­at­riði í stjórn­ar­skránni og af því að flokk­arnir hafa mis­mun­andi hags­muni að leið­ar­ljósi er hætt við að þetta verði lægsti sam­nefn­ari,“ segir Katrín. Úr verði ein­hvers konar „miðju­moð“. „Það er ekk­ert sama hvernig auð­linda­á­kvæði við fáum,“ segir hún sem dæmi. „Við þurfum að fá auð­linda­á­kvæði sem virkar, þannig að hags­munir þjóð­ar­innar ráði för en ekki ein­hverra þröngra hags­muna­hópa.“ Þá nefnir hún einnig nátt­úru­vernd, sem sé stærsta hags­muna­málið í dag. „Það hefur verið háð stríð um nátt­úru Íslands í ára­tugi og stór­iðjan hefur alltaf sigrað,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ