Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Buff fagnar 20 árum með sögutónleikum

Hljóm­sveitin Buff er 20 ára í ár og fagnar áfang­anum með þrennum tón­leikum þar sem hljóm­sveit­ar­með­limir ætla að spila eigin tón­list auk þess að rifja upp skemmti­legar sögur og við­burði frá 20 ára ferli.

Buff fagnar 20 árum með sögutónleikum
Buff skipa: Einar Þór Jóhans­son

„Okkur fannst ekki hægt annað en fagna þessum tíma­mótum á ein­hvern hátt og fannst við hæfi að gera það með því að spila okkar tón­list. Það var eig­in­lega ómögu­legt að fara yfir 20 ára tíma­punkt­inn án þess að gera nokkurn skap­aðan hlut,“ segir Pétur Örn Guð­munds­son. „Við höfum haldið útgáfu­tón­leika fyrir plöt­urnar okkar, en þar fyrir utan höfum við ekki spilað eigin tón­list í því formi sem við ætlum að gera núna. Þrennir tón­leikar eru ákveðnir en gætu orðið fleiri, við erum að skoða fleiri staði.“

Hljóm­sveitin Buff var stofnuð í tengslum við stofnun sjón­varps­stöðv­ar­innar Skjá­sEins. „Við vorum beðnir um að vera hús­bandið í spjall­þætt­inum Axel og félagar, sem Axel Axelsson, útvarps­maður og fjöl­miðla­maður, sá um. Svo tók Gunni Helga við í smá­tíma, og við vorum Gunni og félagar, en end­uðum svo sem Björn og félagar, þegar Björn Jörundur Frið­björns­son tók við þætt­inum,“ segir Pétur Örn. „Við vorum þarna í tvö til þrjú ár sirka og spil­uðum svona inn og út úr aug­lýs­inga­hléum með ein­hver stef á kassagítar, ekki okkar eigin tón­list. Svo vorum við líka með einn grínskets í hverjum þætti.“

Plöturnar, böll og mannabreytingar

Buff hefur gefið út þrjár plötur með eigin lögum, sú fyrsta kom út árið 2003. „Mörg lag­anna á henni voru gömul lög eftir mig síðan í mennta­skóla,“ segir Pétur Örn. Þegar næsta plata kom út árið 2005 höfðu orðið nokkrar manna­breyt­ingar á sveit­inni. Bergur Þór Geirsson, Villi Goði og Matti Matt voru hættir. „Í sömu viku og Buff var að fara af stað sem ball­hljóm­sveit fékk Matti boð um að fara í Papana, sem hann þáði og allir vita hvernig það gekk. Þannig að ég ákvað bara að syngja meira sjálfur.“ Þriðja platan var tekin upp í Danmörku og kom út árið 2008. „Það var rosa gaman og sú plata inni­hélt mörg lög sem gerðu það bara mjög gott og voru tals­vert mikið spiluð og lyftu sveit­inni á hærra stig.“

„Maður fær gamlan gleði­fiðr­ing og áttar sig á af hverju maður ákvað að verða mús­í­k­ant.“

Í rúm tvö ár var sveitin alla sunnu­daga á Glaumbar. „Það var fastur kjarni sem kom og hlust­aði á okkur þar alla sunnu­daga og við leyfðum fólki ein­fald­lega að velja lögin og vorum svo með grín á milli laga.“

Buff kom einnig fram í þátt­unum Það var lagið, sem Hemmi Gunn heit­inn stýrði og segir Pétur Örn að þeir hafi alltaf kallað hann pabba og hann þá syni sína. „Okkur þótti óskap­lega vænt um hann og það fór svo vel á með okkur. Þætt­irnir voru rosa­leg törn en gaman að vera í sjón­varp­inu.“

Sex manna sveit

Í dag er Buff skipuð sex mönnum og þar af fimm laga­höf­unum. „Það er hver snill­ing­ur­inn þar á fætur öðrum. Hljóm­sveitin Buff hefur alltaf í raun verið tvær hljóm­sveitir, hljóm­sveitin sem spilar á böllum og svo hljóm­sveitin sem semur eigið efni og tekur upp. Við höfum líka tekið upp mörg lög sem hafa ekki komið út á plötu en hafa kannski komið út í ein­hverju formi.“

Meðlimir eru allir á fullu í öðrum verkerfnum. Pétur Örn og Einar Þór eru í Dúnd­ur­fréttum, Hannes og Haraldur eru í Dead Sea Apple. „Halli er gjör­sam­lega „over-qualified,“ hann er að útsetja fyrir Dúnd­ur­fréttir The Wall-tón­leik­ana og Sinfó-tón­leik­ana hjá Skálmöld. Hann er líka stór­feng­legur laga­höf­undur og er að gefa út sína aðra sóló­plötu, sú fyrri fékk Íslensku tón­list­ar­verð­launin.“

Aðspurður segir Pétur Örn að von sé á nýrri tón­list en ekki er afráðið með nýja plötu. „Við erum að taka upp tvö lög sem koma út á næstu vikum og að minnsta kosti annað þeirra verður frum­flutt á tón­leik­unum. Við erum allir rosa­lega spenntir fyrir þessu, bara eins og að vera í bíl­skúrnum í gamla daga, hitta strák­ana og búa til músík. Ástæðan fyrir því að maður fór í músík er sú að manni þótti gaman að semja og gera tón­list. Skemmti­krafta­hliðin er aukreitis og það sem maður hefur lifað á í gegnum tíð­ina.“

30 prósent sögustund

„Við ætlum að spila skemmti­lega tón­list og segja líka alls konar sögur enda gengið á ýmsu á 20 árum og ýmsir skemmti­legir hlutir komið upp á. Þetta verður 70% músík og 30% sögu­st­und,“ segir Pétur Örn. „Maður fær gamlan gleði­fiðr­ing og áttar sig á af hverju maður ákvað að verða mús­í­k­ant, það skiptir máli að gleyma ekki upp­haf­inu, hvað ýtti manni þangað sem maður er í dag. Það skiptir máli að hlúa að draumunum.“

Tón­leik­arnir fara fram í Bæj­ar­bíói 25. októ­ber, Alþýðu­hús­inu Vest­manna­eyjum 26. októ­ber og á Græna hatt­inum Akureyri 2. nóv­em­ber. Miða má kaupa á midi.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina