Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Þið eruð allir eins“

Árni Sig­ur­geirs­son var ætt­leiddur frá Indónesíu af íslenskum for­eldrum þegar hann var fjög­urra mán­aða gam­all. Hann hefur aldrei þekkt annað en íslenskt umhverfi, hefur aldrei komið til Indónesíu, og segir það því hafa verið nokkuð skondið þegar hrópað var á hann að koma sér heim þegar hann var á gangi á Lauga­veg­inum.

„Þið eruð allir eins“

„Ég svar­aði sall­ar­ó­legur að ég væri nú einmitt að drífa mig heim í Garða­bæ­inn,“ segir hann og glottir. „Það þagg­aði mjög snögg­lega niður í þeim sem æpti.“

Árni ólst upp í Mos­fells­bænum til sautján ára ald­urs, bjó skamma hríð í Kópavogi en flutti síðan til Akur­eyrar, þar sem hann fór í Verk­mennta­skól­ann og síðan í nám í lög­fræði, og þar bjó hann til 2011 þegar hann flutti til Reykja­víkur. „Þannig að það má eig­in­lega segja að ég hafi búið hálfa ævina á Akureyri,“ útskýrir hann.

Alltaf skilgreindur út frá húðlitnum

Spurður um upp­vaxt­ar­árin í Mos­fellsbæ, hvort hann hafi orðið fyrir for­dómum þar sem barn, seg­ist hann auð­vitað hafa fundið fyrir þeim stundum og þá aðal­lega þegar hann var að keppa í hand­bolta.

„Það var eng­inn í mínum árgangi ætt­leiddur,“ segir hann. „Enda var það ekki orðið algengt á þeim tíma. Ég var eini brúni strák­ur­inn í bekknum og á þeim tíma gerði ég mér enga grein fyrir því hvað for­dómar voru, en það kom fyrir að maður varð fyrir ein­hverju for­dóma­tengdu aðkasti. Ég var mikið í íþróttum og alltaf einn af hópnum en þegar kom að keppn­is­leikjum í hand­bolt­anum var maður oft kall­aður ýmsum nöfnum, bæði af krökkum í hinum lið­unum og for­eldr­unum á lín­unni. Það var reyndar tekið fyrir þetta á end­anum en það var þó nokkuð algengt að leik­menn hins liðs­ins væru hvattir af áhorf­endum til að „taka svarta blett­inn úr umferð“ og svo fram­vegis. Maður var alltaf skil­greindur út frá húð­litnum á vell­inum. Sem betur fer voru þjálf­arar og aðrir for­eldrar fljótir að bregð­ast við og þetta varð smám saman minna áber­andi.“

Árni er þrjá­tíu og sex ára þannig að þetta tíma­bil sem hann er að vísa til var fyrir um það bil tutt­ugu og fimm árum en hann segir svona fram­komu sumra ekki hafa breyst mikið. Þó sjái hann stóran mun á kyn­slóðum hvað þetta varðar.

„Þetta var og er aðal­lega mið­aldra fólk,“ full­yrðir hann.

„Maður finnur ekki mikið fyrir for­dómum frá ungu fólki í dag en þegar ég var ung­lingur fór þetta að aukast og þá urðu for­dómar ann­arra leik­manna meira áber­andi. Kannski ein­hver mis­skil­inn töffara­skapur til að reyna að brjóta mann niður en að sjálf­sögðu á svona orð­ræða aldrei að líð­ast.“

Naut stuðnings frá vinahópnum

Höfðu for­eldrar þínir áhyggjur af því að þú yrðir fyrir aðkasti vegna húð­lit­ar­ins? „Nei, ég varð alla­vega ekki mikið var við það,“ segir Árni. „Ég var mikil félags­vera og átti stóran vina­hóp og það kom í veg fyrir að það væru miklir for­dómar í gangi hjá jafn­öldrum mínum. Þegar ég var svona tíu, ell­efu ára fóru hins vegar eldri strákar að taka mig fyrir, bíða eftir mér eftir skóla og ráð­ast á mig en það ent­ist ekki lengi þar sem við í mínum vina­hóp vorum bæði stærri og stælt­ari en þeir.“

„Oft í versl­unum er fólk til dæmis að tala um mann í kringum mann og gerir ráð fyrir því að maður sé útlend­ingur og skilji það ekki.“

Spurður hvort hann finni meira fyrir for­dómum eftir að hann varð full­orð­inn segir Árni að hann hafi að minnsta kosti farið að gera sér betur grein fyrir því hvað for­dómar væru.

„Maður lendir í ýmsu,“ segir hann. „Oft í versl­unum er fólk til dæmis að tala um mann í kringum mann og gerir ráð fyrir því að maður sé útlend­ingur og skilji það ekki. Það er enn þá aðal­lega eldra fólk sem er að hnýta í mann, en ég reyni alltaf að tækla þetta með húmor og falla ekki í sömu gryfju og það.“

Alltaf ókunnugt fólk

Þetta hlýtur samt að hafa áhrif á þig, eða hvað? „Jú, jú, þetta hefur þau áhrif að þú gerir þér grein fyrir að þú ert öðru­vísi,“ segir Árni.

„Þótt ég sé auð­vitað Íslend­ingur og hafi aldrei litið öðru­vísi á það, þá er ég ekki fæddur hér og það gerir það að verkum að ég stend svo­lítið út. Ég veit að ég á ekki að hugsa þannig, en þetta áreiti síast inn og vekur þessa hugsun. En það minnkar nú sem betur fer með aldr­inum að maður taki þetta inn á sig. Ég hef líka verið svo hepp­inn að ég hef aldrei fundið fyrir neinum for­dómum varð­andi vinnu eða slíkt. Þetta er alltaf fólk sem þekkir mig ekki. Eitt fyndn­asta atvik, alla­vega svona eftir á, sem ég hef lent í var þegar ég var að koma út af veit­inga­stað og lenti inn í hóp af fólki frá Asíu sem var á leið í rútu sem beið fyrir utan. Þá kom að mér mjög reiður leið­sögu­maður og skip­aði mér að koma mér upp í rút­una. Ég vissi ekki alveg hvað væri í gangi þannig að ég byrja að stíga upp í rút­una en átt­aði mig þegar ég sá að hún var full af Kín­verjum og spurði leið­sögu­mann­inn á íslensku hvað hann væri að meina. „Nú, ertu ekki frá Kína?“ spurði hann og þegar ég sagð­ist vera Íslend­ingur fuss­aði hann bara og sagði: „Þið eruð allir eins.“ Baðst ekki einu sinni afsök­unar.“

Hatursorðræða aukist óhemju mikið

Aðspurður hvort honum finn­ist for­dómar og hat­urs­orð­ræða vera að aukast á Íslandi svarar Árni að það sé eng­inn vafi á því.

„Þetta hefur vaxið óhemju mikið,“ segir hann ákveð­inn. „Og auð­vitað þarf að taka harðar á þessu af lög­gjaf­anum. Ég hef séð að fjöl­miðlar eru heil­mikið að strika svona orð­ræðu út í kommenta­kerf­unum og mér finnst mjög jákvætt að þeir taki þátt í því að kveða þetta niður. Það er svo auð­velt, með til­komu Netsins og sam­fé­lags­miðla, að búa til ein­hverja múgsefjun og hún er hættu­leg. Þess vegna er svo mik­il­vægt að kæfa þetta í fæð­ingu með skil­virkum hætti.“

Árni Sig­ur­geirs­son var ætt­leiddur frá Indónesíu af íslenskum for­eldrum þegar hann var fjög­urra mán­aða gam­all.

Árni seg­ist aðspurður hafa tölu­verðar áhyggjur af upp­gangi nas­isma hér­lendis, svona hópar komi reyndar og fari með reglu­bundnu milli­bili en það sé hins vegar umhugs­un­ar­efni að þeir séu farnir að skipu­leggja sig miklu betur og setja fram stefnu sem eigi að höfða til ráð­villtra ung­linga sem séu að leita að mál­stað til að berj­ast fyrir.

„Það er ekki ein­göngu útlend­inga­stefna í anda Hitlers sem þeir setja fram á heima­síðu sinni,“ útskýrir hann.

„Nú eru þeir komnir með nátt­úru­vernd­ar­stefnu, atvinnu­stefnu og svo fram­vegis og eru að herja á hópa sem hafa átt erfitt upp­dráttar í æsku og leita að sam­þykki sam­fé­lags­ins. Við höfum séð að þetta getur spil­ast mjög hratt og það þarf að bregð­ast hratt við. Inn­flytj­enda­stefna þeirra er mjög grimm og það er ljóst að ásetn­ingur þeirra er þjóð­hreinsun. Mér fannst það samt mjög skondið að þeir und­an­skilja þá sem eru ætt­leiddir í þess­ari inn­flytj­enda­stefnu. Taka fram að þeir sem séu ætt­leiddir ógni ekki kyn­þætti nor­ræna manns­ins, það er frekar skrýtið en ágætt fyrir mig þar sem ég á fjögur börn,“ segir Árni og skelli­hlær. „Gott að vita að ég sé ekki að menga nor­ræna kyn­stofn­inn.“

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð