Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Mín aðaláhersla er að njóta og hafa gaman“

Ragn­heiður Svein­björns­dóttir hefur alltaf notið þess að vera úti í nátt­úr­unni og hreyfa sig á hlaupum, í hjól­reiðum eða í hesta­mennsku. Eftir að hún fór að hlaupa mark­visst fyrir nokkrum árum hafa utan­vega­hlaupin heillað hana og nýlega gerði hún sér lítið fyrir og vann Hengil Ultra, 100 km utan­vega­hlaup.

„Mín aðaláhersla er að njóta og hafa gaman“
|||
„Mér finnst gaman að mæta í keppni af því að maður hittir alltaf svo marga, þetta er ekki bara keppni heldur líka félags­skap­ur­inn.“ Mynd / Hallur

„Ég byrj­aði fyrst að hlaupa í mennta­skóla, bæði vegna þess að á þeim tíma voru kröfur um að fólk hreyfði sig eitt­hvað og pressa á að maður liti vel út,“ segir Ragn­heiður sem er 37 ára gömul. Eftir að hafa hlaupið af og til og hætt ítrekað fór hún að hlaupa reglu­lega árið 2005 og fyrir sjö árum skráði hún sig í hlaupa­hóp.

„Ég hef alltaf verið sjálf­stæð og fund­ist gott að geta hreyft mig ein og á mínum eigin for­sendum. En það er líka meiri­háttar að hlaupa með hópi og kynn­ast fólki með sömu áhuga­mál. Sumir hlaupa­fé­lagar mínir vita líka tölu­vert meira um mig en margir aðrir því lengri hlaup geta verið mjög góður sál­fræði­tími.“

Ragn­heiður byrj­aði að hlaupa utan­vegar fyrir 3-4 árum og hefur núna í eitt ár hlaupið með hópnum Nátt­úru­hlaup. „Ég hleyp og tek þátt í keppnum í bæði götu­hlaupum og utan­vega­hlaupum, þó að þau síð­ari hafi yfir­tekið allt þetta sumar,“ segir Ragn­heiður og bætir við að hún hafi tekið þátt í 5 og 10 km götu­hlaupum, en ekki unnið stór afrek á því sviði. Hún hefur einnig tekið þátt í hálf- og heilmara­þonum og seg­ist ágæt í því. Hún hefur þrisvar verið hraða­stjóri í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu og segir það rosa­lega skemmti­legt og alveg meiri­háttar að upp­lifa stemn­ing­una sem þar er.

Kíló­metra­talan ein og sér segir ekki til um erf­ið­leika­stigið
Ragn­heiður segir marga hlaupa 100 km hlaup og það hafi verið gaman að kynn­ast þeim hópi, „því fyrir nokkrum árum vissi ég ekki að það væri til fólk sem hleypur 100 km.“ Hún bætir jafn­framt við að kíló­metra­fjöld­inn einn og sér segi ekki til um erf­ið­leika­stig hlaups, hvort sem er á mal­biki eða utan­vegar.

„Lengri hlaup geta verið mjög góður sál­fræði­tími“

„Mér finnst álagið minna á lík­amann í utan­vega­hlaupum af því að und­ir­lagið er ekki alltaf það sama, ýmist hart eða mjúkt og maður er því ekki alltaf í sama takti. Það er fólk sem hleypur 100 km hlaup á mal­biki, en það heillar mig ekki. Utan­vegar ferðu upp brekku og þá hægir á þér, eins og í 100 km þá gengur maður upp brekk­urnar. Þú ert lög­lega afsak­aður í utan­vega­hlaup­inu að hægja stundum ferð­ina, götu­hlaupið krefst jafn­ari hraða. Utan­vega­hlaup eru líka ein­hvern veg­inn allt öðru­vísi jafn­vel þótt mann langi til að allt gangi ótrú­lega vel og sigri hlaupið þá upp­lifir maður líka svo mikið á leið­inni og hleypur á allt annan hátt.“

Sigrum utan­vegar raðað inn í sumar
Sigurinn í Hengli er ekki sá eini sem Ragn­heiður vann í sumar því hún tók tvo aðra: Tvöföld Vest­ur­gata, 45 km hlaup, sem fór fram í vest­firsku Ölpunum eða skag­anum milli Arn­ar­fjarðar og Dýra­fjarðar, stundum kall­aður Fjalla­skag­inn og Esja Ultra.

„Þar hlaupum við upp Ker­hóla­kamb og svo niður hann aftur og tökum dal­inn sem er upp að Steini, svo upp á topp, langa leið niður og hana aftur upp og svo tvisvar í við­bót upp að Steini. Maður fer svona fimm sinnum upp,“ segir Ragn­heiður og bendir á að það sé meiri hækkun í því 45 km hlaupi en í 100 km Heng­ils­hlaup­inu. Hún leggur áherslu á að þó að gaman sé að vinna hlaup, þá er það ekki aðal­mark­miðið, heldur frekar gleðin við að taka þátt, stemn­ingin í hlaup­inu og það að hitta og kynn­ast fólki. Ragn­heiður hefur líka hlaupið erlendis og tók þátt í heims­meist­ara­mót­inu í utan­vega­hlaupum í fyrra á Spáni, 88 kíló­metra vega­lengd. „Mér gekk bara vel, það voru engin met slegin en þetta var bara mjög gaman. Ég kláraði fyrst íslenska kvenna og fannst það ótrú­lega skemmti­legt. Ég var ákveðin eftir það að hlaupa næst 100 km.“

Ragn­heiður er önnur konan til að sigra 100 km hlaupið, sú fyrsta var Elísabet Mar­geirs­dóttir árið 2017, en þá var vega­lengdin í boði í fyrsta sinn. Árið 2018 keppti engin kona. „Í ár voru þær nokkrar, en það sem er merki­legt við árangur Ragn­heiðar er að hún var í 2. sæti af öllum. Tíminn hennar var og er braut­ar­met í 100 km hlaupi kvenna í Hengil Ultra Trail,“ segir Einar Bárð­ar­son, fram­kvæmda­stjóri hlaups­ins.

„Þeim fannst aðal­lega töff að ég fékk bikar“
Ragn­heiður er umsjón­ar­kenn­ari í 2. bekk í Húsa­skóla í Graf­ar­vogi, en hún hefur starfað sem kenn­ari í 12 ár. Hún segir að nem­endur hennar hafi fengið veður af því að hún hefði unnið Hengil. „Þau voru spennt yfir því og spurðu hvort ég hefði fengið bikar, þeim fannst það mik­il­væg­ast af öllu og þau báðu fal­lega um að fá að skoða hann þannig að hann fór með í vinn­una einn dag­inn. Þeim fannst aðal­lega töff að ég fékk bikar.“

Ragn­heiður hleypur ekki bara, hún er líka í hesta­mennsku, hjól­reiðum og spinn­ing, ýmist ein, með eig­in­manninnum, Þorkeli Guð­jóns­syni, eða með dætrum þeirra þremur, sem eru á aldr­inum 8-16 ára. Hún hefur fjórum sinnum tekið þátt í WOW-Cyclothon, vann fyrsta árið með hópi kvenna úr Mos­fellsbæ, Team Spinn­egal. Í þriðja skiptið hjólaði hún með Hjóla­krafti. „Þá tók ég tvær eldri dætur mínar með og þetta er eitt það merki­leg­asta og skemmti­leg­asta sem við höfum gert saman. Mér finnst alltaf ótrú­lega skemmti­legt að taka þátt í þess­ari hjól­reiða­keppni.“

Hún seg­ist ekki alveg hafa kjarkinn til að keppa í götu­hjól­reiðum, „þér má ekki mikið fip­ast til vinstri eða hægri í slíkum troðn­ingi.“ Hins vegar tekur hún þátt í götu­hlaupum, sem fara fram allt árið. „Það er gaman að mæta í þær keppnir, til dæmis Powerade-móta­röð­ina sem fer fram annan hvern fimmtu­dag frá októ­ber til mars.“

Ragn­heiður og dæt­urnar þrjár. „Ég hef verið hesta­stelpa alla tíð. Og hef náð að njóta hest­anna með stelp­unum mínum og svo­lítið með eig­in­mann­inum.“ Mynd / Aðsend

Síðan 2016 hefur Ragn­heiður einnig verið í spinn­ing og hefur hjólað ýmist inni eða úti. „Ég er stolt af mér því síð­asta vetur tókst mér að hjóla í vinn­una í 113 daga, 5 kíló­metra úr Breið­holti í Graf­ar­vog og síðan sömu vega­lengd heim aftur. Ég stefni á 100 daga í vetur.“
Þótt Ragn­heiður sé dug­leg að hreyfa sig passar hún að taka minnst einn dag í viku í pásu. „Ég hef reynt það síð­asta árið. Stundum er það föstu­dagur, af því oft tek ég svo­kall­aða sam­loku­æf­ingu um helgar, það er langa æfingu á laug­ar­degi og aðra á sunnu­degi. Maður finnur bara hvaða dagur hentar til að vera kyrr.“

Hverju þakkar þú helst þennan frá­bæra árangur? „Ég hljóp löngu æfing­arnar mínar með Nátt­úru­hlaup hægar en ég hef gert áður og ég held að það hjálpi til við árangur.“
En matar­æðið, hugsar þú mikið um það? „Það er eig­in­lega ekki hægt að skrifa neitt heilsu­tengt við matar­æði mitt, ég borða mikið af hollum mat og stundum borða ég líka mikið af óhollum mat. En kannski er næsta skref að taka matar­æðið í gegn ef ég vil verða enn hrað­ari.“

Ragn­heiður kemur í mark í Hengil Ultra Trail. Mynd / Einar Bárð­ar­son

Aðspurð um hvort að henni finn­ist hlaupa­á­hugi lands­manna hafi auk­ist svarar Ragn­heiður ját­andi og segir mikla vakn­ingu hvað utan­vega­hlaupið varðar. „Við hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu erum mjög heppin með staði til að hlaupa og æfa okkur á. Öskju­hlíðin, þar er hægt að þræða stíga í marga kíló­metra og þú hleypur aldrei sama stíg­inn. Sjálf hleyp ég mikið í Elliða­ár­dalnum. Heiðmörk er meiri­háttar, svo alls staðar í kring, fellin í Mos­fellsbæ, svæðið kringum Hval­eyr­ar­vatn og Hafn­ar­fjörð, Víf­ils­staða­vatn og svæðið þar, þó að við eigum heima á höf­uð­borg­ar­svæð­inu búum við vel að æfinga­svæði fyrir utan­vega­hlaup.

Mín aðal­á­hersla er að njóta og hafa gaman og mér hefur tek­ist að gera það í gegnum þetta allt saman og stundum stend ég mig ótrú­lega vel og er fram­ar­lega en það er ekki aðal­mark­miðið því þetta er svo ótrú­lega skemmti­legt. Ég kynn­ist svo frá­bæru fólki og manni líður líka svo vel með sjálfan sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð